Fréttatíminn - 07.02.2014, Blaðsíða 2
ÞETTA ER MÁLIÐ 2014
Kaffimál
og áfylling allt árið
aðeins 2.490 kr.
Vinur við veginn
Mikil fjölgun gistinátta
í jólamánuði
Gistinætur á hótelum í desember voru
117.100 sem er 31% aukning miðað við
desember 2012. Gistinætur erlendra gesta
voru 84% af heildarfjölda gistinátta í
mánuðinum en þeim fjölgaði um 43% frá
sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum
Íslendinga fækkaði um 5%, segir Hagstofa
Íslands.
Á höfuðborgarsvæðinu voru 93.200
gistinætur á hótelum í desember sem
er fjölgun um 27% miðað við desember
2012. Á samanlögðu svæði Vesturlands og
Vestfjarða voru 2.200 gistinætur sem er
fjölgun um 135% miðað við sama tímabil
2012. Á Suðurlandi voru gistinætur 9.600
í desember sem er aukning um 66% frá
fyrra ári. Á Austurlandi voru gistinætur
1.700 sem er 62% aukning samanborið
við desember 2012. Á Suðurnesjum voru
6.000 gistinætur í desember sem er
aukning um 48% frá fyrra ári. Á Norður-
landi voru gistinætur 4.500 í desember
og fjölgaði um tæp 8% samanborið við
desember 2012. - jh
Vöruskipti hagstæð um
nær 70 milljarða
Vörur voru fluttar út í desember fyrir tæpa
45,7 milljarða króna og inn fyrir rúma 41,2
milljarða króna. Vöruskiptin voru því hag-
stæð um 4,4 milljarða króna. Í desember
2012 voru vöruskiptin hagstæð um 3,8
milljarða króna á gengi hvors árs, að því er
fram kemur hjá Hagstofu Íslands.
Allt árið 2013 voru fluttar út vörur fyrir
610,7 milljarða króna en inn fyrir 541,3
milljarða króna. Afgangur var því á
vöruskiptum við útlönd sem nam 69,4
milljörðum króna, en árið 2012 voru þau
hagstæð um 77,3 milljarða á gengi hvors
árs. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 7,9
milljörðum króna lakari árið 2013 en árið
2012, samkvæmt bráðabirgðatölum. -jh
Tveir þriðju nema í fjarnámi
á Austurlandi eru konur
Tveir þriðju nema í fjarnámi á
Austurlandi eru konur. Háskóla- og
rannsóknasvið Austurbrúar hefur tekið
sem tölfræðilegar upplýsingar um nem-
endur í fjarnámi í fjórðungnum. Alls eru
158 nemendur á skrá, þarf af eru 66%
konur, að því er fram kemur í tilkynningu
Austurbrúar.
„Fjölmargir nemendur stunda fjarnám
á Austurlandi líkt og undanfarin ár. Þeir
sækja nám við alla háskóla landsins
og í fjölda greina, s.s. félagsvísindum,
heilbrigðisvísindum, menntavísindum
og raunvísindum. Liðlega þriðjungur
nemenda, eða 39%, eru þrítugir eða
yngri, 31% er á milli 31 og 40 ára. Ungar
konur eru langstærsti hluti nemenda,
eða 27%, karlar dreifast jafnar á milli
aldurshópanna. Nokkur skýr kynjaskipt-
ing er í námsvali, konur er t.a.m. í 33%
tilvika í námi í menntunar- og uppeldis-
fræðum. 25% karla eru tækni- og verk-
fræðinámi og önnur 23% í viðskiptum,“
segir enn fremur.
Háskóla- og rannsóknasvið stendur nú
fyrir könnun með starfandi kennara á
öllum skólastigum, að því er segir í til-
kynningunni, þar sem verið er að kanna
hver vilji þeirra og þarfir eru í símenntun
og á hvaða sviðum hennar er helst þörf.
Ef í ljós kemur að á Austurlandi eru
fjölmennir hópar með svipaðar þarfir,
hyggst sviðið leita til háskóla um úrræði
fyrir þessa hópa í heimabyggð. Hug-
myndin er að verkefnið verði tilrauna-
verkefni um þjónustu við fagstéttir. - jh
StjórnSýSla lögregluStjóraembætti verði átta í Stað fimmtán
Sýslumannsembættum fækkað úr 24 í 9
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hélt fund á Hvolsvelli og kynnti
frumvörp um breytingar á umdæmum sýslumanna og lögreglu. Með ráðherra á
myndinni eru Þórólfur Halldórsson, Ragnhildur Hjaltadóttir, Ólafur Helgi Kjartans-
son, Drífa Kristjánsdóttir og Unnur Brá Konráðsdóttir. Mynd/Innanríkisráðuneytið
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hefur
mælt fyrir tveimur frumvörpum sem gera annars
vegar ráð fyrir fækkun og stækkun á umdæmum
sýslumanna og hins vegar lögreglustjóra. Frumvörpin
gera ráð fyrir að sýslumannsembættum fækki úr 24 í
9 og lögregluembættum úr 15 í 8. Gert er ráð fyrir að
breytingin taki gildi 1. janúar 2015. Tilgangurinn með
stærri rekstrareiningum sýslumannsembætta er, að
því er ráðuneytið greinir frá, að auka og efla þjónustu
ríkisins í héraði og skapa aukin tækifæri til að færa ný
verkefni til sýslumanna. Á sama hátt er tilgangurinn
með breytingum á umdæmum lögreglustjóra að auka
samhæfingu og samstarf innan lögreglunnar um land
allt, standa vörð um grunnþjónustu lögreglunnar,
efla stjórnun innan lögreglu og gera lögreglustjórum
kleift að sinna alfarið lögreglustjórn.
Hanna Birna kynnti fyrr í vikunni fyrirhugaðar
breytingar á fundi á Hvolsvelli fyrir fulltrúum sveitar-
félaga á Suðurlandi. Vel var mætt á fundinn og fulltrú-
ar hinna ýmsu sveitarstjórna á Suðurlandi tóku þátt í
umræðum. Með ráðherra á fundinum voru formaður
allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, formaður
Sýslumannafélagsins, varaformaður Lögreglustjóra-
félagsins og þeir embættismenn ráðuneytisins sem að
málinu koma.
Fundurinn á Hvolsvelli var sá fyrsti í röð funda
innanríkisráðherra til að fá fram álit og ábendingar
heimamanna vegna þessara breytinga. -jh
Þ að er komin smá bóla á fast-eignamarkaðnum núna í byrjun árs. Þeir sem hafa verið að bíða með að kaupa geta einfald-
lega ekki beðið lengur og eru að reyna
að festa sér húsnæði. Eftirspurnin er
meiri en framboðið,“ segir Ingólfur Geir
Gissurarson, framkvæmdastjóri Valhallar
fasteignasölu og löggiltur fasteignasali.
Margir ákváðu að bíða eftir endurútreikn-
ingi húsnæðislána þar til þeir festu sér
nýja eign, auk þess sem enn er ekki komið
í ljós hvort og þá hvenær verður staðið við
loforð stjórnmálamanna um afnám verð-
tryggingarinnar, en þó er orðið ljóst að
niðurfærsla lána fer ekki yfir fjórar millj-
ónir.
Eiríkur Svanur Sigfússon, löggiltur
fasteignasali hjá fasteignasölunni Ási,
segist einnig finna fyrir auknum áhuga
fasteignakaupenda. „Almennt er markað-
urinn á uppleið. Íbúðir sem eru 100% veð-
settar hjá Íbúðalánasjóði fara alltaf strax.
Þegar við setjum auglýsingar um slíkar
íbúðir á netið verður allt gjörsamlega
vitlaust. Þá þarf fólk að leggja mun minna
út en þegar íbúðirnar eru veðsettar hjá
bönkunum. Íbúðir sem líta illa út og eru
á lægra verði fara líka mjög hratt. Það
virðast allir hugsa það sama, ætla að gera
íbúðirnar upp og græða,“ segir hann.
Vegna aukinnar eftirspurnar eftir þess-
um illa förnu íbúðum hefur verð þeirra
þó hækkað mikið og segir Ingólfur að
oft séu þetta ekki endilega bestu kaupin.
„Verðið á þeim hefur nálgast mjög verðið
á fullbúnum íbúðum og það borgar sig
því oft að kaupa þær frekar,“ segir hann.
Á Framkvæmdaþingi Húsamiðjunnar,
sem haldið var í gærmorgun um stöðu og
horfur á byggingamarkaði, kynnti Þröstur
Sigurðsson, ráðgjafi frá Capacent, grein-
ingu á fasteignamarkaðnum í Reykjavík
og nágrannasveitarfélögum. Þar kom fram
að bjartsýni ríkir á markaðnum, en fólki á
höfuðborgarsvæðinu fjölgar og færri íbúar
eru í hverri íbúð. Árleg íbúðaþörf hefur því
aukist og á árunum 2009 til 2012 var byrjað
að byggja alls 901 íbúð en árið 2013 var
byrjað að byggja 1.520 íbúðir.
Ingólfur Geir segir að þegar þessar
nýbyggingar koma á markað muni nást
meira jafnvægi en hann telur að jafnvel séu
ekki nema tveir til þrír mánuðir til að það
gerist. Sem fyrr eru eignir í póstnúmerum
101 og 107 afar eftirsóttar. „Á þessu svæði
hafa stórir sjóðir á borð við Gamma hins
vegar keypt upp eignir og fermetraverðið
komið út í algjöra vitleysu þannig að fólki
blöskrar. Fleiri leita því í úthverfin,“ segir
hann. Tveggja til fjögurra herbergja íbúðir
eru enn eftirsóttastar og hafa því hækkað
í verði. „Nú er svo komið að verðmunur á
þeim og stórum eignum, raðhúsum og ein-
býlishúsum er í sögulegu lágmarki. Fólk
er farið að átta sig á því og þess vegna er
að færast líf í sölu á stærri eignum. Þeir
sem hafa þurft að stækka við sig grípa nú
tækifærið,“ segir Ingólfur Geir.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Fasteignabóla
í ársbyrjun
faSteignir mikill fjöldi nýbygginga kemur á markað á árinu
Umframeftirspurn er á fasteignamarkaði eftir tveggja til fjögurra her-
bergja íbúðum á höfuðborgarsvæðinu. Illa farnar íbúðir sem þarfnast
andlitslyftingar eru ekki lengur endilega bestu kaupin því þær hafa hækkað
mikið og slegist er um íbúðir sem eru að fullu veðsettar hjá Íbúðalánasjóði.
Verðmunur á minni og stærri eignum er í sögulegu lágmarki og því er líf að
færast í sölu á stórum eignum.
Umframeftirspurn
er eftir minna íbúð-
arhúsnæði á höfuð-
borgarsvæðinu
en framkvæmda-
stjóri Valhallar
fasteignasölu
reiknar með að
markaðurinn nái
jafnvægi á næstu
mánuðum þegar
fjöldi nýbygginga
fer á markað.
Ljósmynd/Hari
Fer-
metra-
verðið
þar er
komið út
í algjöra
vitleysu
þannig
að fólki
blöskrar.
2 fréttir Helgin 7.-9. febrúar 2014