Fréttatíminn - 07.02.2014, Side 26
Löður er með Rain-X
á allan bílinn
Við erum á sex stöðum á höfuðborgarsvæðinu
www.lodur.is - Sími 544 4540
Rain-X býður upp á fullkomna yfirborðsvörn
Rain-X verndar bílinn, eykur útsýni og öryggi
Hreinn bíll eyðir allt að 7% minna eldsneyti
Margir kannast við Maríus Sverrisson. Sumir muna eftir honum
frá níunda áratug síðustu aldar en þá hann vakti athygli fyrir
uppistand og drag ásamt góðvini sínum Páli Óskari á meðan
aðrir þekkja hann sem son Möggu Pálma kórstýru með meiru.
Flestir hafa þó heyrt af góðu gengi hans í söngleikjum utan
landsteinanna. Hann er alkominn heim og frumsýnir grínsöng-
leikinn Spamalot í leikstjórn Hilmis Snæs í Þjóðleikhúsinu nú í
febrúar. Þar mun hann dansa og syngja eins og honum einum
er lagið tuttugu árum eftir að hann steig þar fyrst á svið.
K
ona úr Sandgerði sagði
mér frá því að þegar
Margrét Pálmadóttir
kórstýra byrjaði að
kenna tónlist í þorpinu
hafi hún án efa verið það flippaðasta
sem þorpið hafði áður kynnst. Hún
var öðruvísi en allir aðrir, nýkom-
in úr söngnámi frá Vínarborg og
síðan eru liðin 30 ár. Þessi sama
kona úr Sandgerði sagði mér líka
að sonur flippaða söngkennarans
hafi stundum komið með í vinnuna
en hann hafi líkt og söngkennar-
inn heillað alla upp úr skónum því
hann var svo hrikalega sætur og
sjarmerandi. Sonurinn var auðvitað
Maríus og hann er löngu orðin stór
en heldur samt áfram að heilla alla í
kringum sig og uppi á sviði þar sem
hann hefur sungið, leikið og dansað
í 20 ár. Og nú er hann meira að
segja farinn að stjórna kór, eins og
mamma hans.
Alltaf að leika sér
„Já, ég var bara alltaf syngjandi og
dansandi sem krakki. Búandi til
einhver leikrit og „performanca“
í kjallaranum heima með vinum
en aðallega vinkonum. Svo það
hefur semsagt bara ekkert breyst,“
segir Maríus og skellihlær sínum
smitandi hlátri. „Ég er í rauninni
alltaf að leika mér, það er bara orðið
aðeins meira „professional“ núna.“
Hann segist alltaf hafa haft þörf
fyrir að koma fram og búa eitthvað
til og móðir hans að sjálfsögðu haft
mótandi áhrif á hann. „Við mamma
höfum alltaf verið góðir vinir og
átt gott samband. Hún hefur verið
ótrúlegur stuðningur í kórastarfinu
hjá mér og alltaf til í að hjálpa.“
Maríus stofnaði Kvennakórinn
Hrynjandi ásamt nokkrum vin-
konum stuttu eftir að hann flutti
heim frá Berlín fyrir þremur árum
og segir stofnun hans vera hluta
af þessari þörf fyrir að taka þátt
í skemmtilegum verkefnum með
góðu fólki. „Við stofnuðum kórinn
þegar ég var nýfluttur heim. Lísa
Kristjáns vinkona hringdi í mig og
vildi byrja að syngja í hóp og fá mig
sem kórstjóra. Þetta byrjaði hægt
og rólega, fyrst var mætingin svona
upp og ofan, en nú er þetta tekið
mjög alvarlega og það hefur mynd-
ast rosalega góður kjarni í hópnum.
Þetta eru konur úr öllum áttum
en eina skilyrðið fyrir inntöku er
að vera skemmtilegur. Við höfum
tekið þátt í allskonar uppákomum,
leikhúsi listamanna og listahátíð,
haldið vor- og jólatónleika, auk þess
að troða upp hér og þar um bæinn.
Nú erum við á leiðinni til Berlínar
í júní þar sem við munum syngja á
tvennum tónleikum. Svo eru reynd-
ar nokkur mjög spennandi verkefni
sem liggja í loftinu en ég má ekki
segja frá þeim ennþá,“ segir Maríus
mjög sposkur á svip.
Leitandi unglingur
Maríus er svo heppinn að vinna
við það sem hann elskar og elskaði
alltaf að gera sem krakki, að syngja,
dansa og leika. Það lá eiginlega
beint við að hann færi í söngleikj-
anám þó hann hafi ekki séð það
sjálfur fyrr en löngu eftir á. „Ég var
semsagt stöðugt dansandi svo einn
daginn sögðu foreldrar mínir „jæja
það er best að senda bara drenginn
í dans fyrst hann er dansandi allan
daginn“ og ég var skráður í ballett
átta ára og var þar til tólf ára aldurs.
Ég hætti í ballett þegar unglings-
árin byrjuðu og fór að leita fyrir mér
í hinu og þessu, eins og til dæmis
afródansi og hipp hoppi. Ég vissi
í raun ekkert hvað mig langaði að
gera. Ég byrjaði aðeins í MH en
hætti því, ekki því ég væri svo „laid
back“ heldur frekar því ég var of
orkumikill. Og bara frekar „lost“,
eins og flestir unglingar held ég.
Mig langaði að leika, dansa, syngja
og setja upp „show“ en vissi ekk-
ert hvert ég ætti að fara með alla
þessa orku.” Nú fer Maríus aftur að
hlæja, í þetta sinn af því hvað týndir
unglingar geta verið fyndnir og það
er nokkuð augljóst að hann hefur
einstakan hæfileika til að sjá björtu
hliðarnar á tilverunni.
„Lífið á að
vera létt og
skemmtilegt“
Í draumahlutverKið Í Kjölfar söngleiKjaferils ytra
Maríus Sverrisson.
„Ég vinn við það
sem ég elska.“
Ljósmyndir/Hari
„Ég var
kominn
þarna á
einhvern
endapunkt
og það var
mjög mikil-
vægt fyrir
mig að fara
að gera eitt-
hvað sem
skipti meira
máli fyrir
mig pers-
ónulega“
26 viðtal Helgin 7.-9. febrúar 2014