Fréttatíminn - 07.02.2014, Page 40
40 heimili Helgin 7.-9. febrúar 2014
Ólafur Þór Erlendsson
húsgagna- og
innanhússarkitekt, FHI
Hani, krummi, hundur, svín er samstarfsverkefni þeirra Ólafs Þórs Erlendssonar húsgagna- og innanhússarkitekts og Sylvíu Kristjánsdóttur
grafísks hönnuðar. Þau sækja innblástur í sögur, vísur og ævintýri og hanna hagnýta hluti með vísun í þau minni.
Sylvía Kristjánsdóttir
Grafískur hönnuður FÍT
Skólavörðustíg 12 • sími 578 6090 • www. minja.is • facebook: minja
Minja er
gjafavöruverslun
með áherslu á
íslenska og
erlenda hönnun
Efni: Húðað, útskorið ál. Verð: kr. 11.900,- Til í þremur litum - Einnig fleiri útgáfur með öðrum dýramyndum.
Hönnunarteymið: Hár úr hala
K
raftaverk
L eifur Welding hefur hannað og haft yfirum-sjón með uppsetningu marga af þeim fallegu veitingastöðum, kaffihúsum, hótelum og
verslunum sem opnuð hafa verið í Reykjavík og
víðar á landinu á undanförnum árum. Núna í næstu
viku opnar veitingastaðurinn KOL við Skólavörðu-
stíg þar sem Leifur og hans fólk sá um hönnun
og gerð heildarmyndar staðarins. Leifur lærði
húsasmíði og vann áður fyrr hjá A. Karlssyni við
innflutning húsgagna og innréttinga. „Svo æxlaðist
það þannig að maður hafði sterkar skoðanir á því
hvernig hlutirnir ættu að vera og þá þróaðist þetta
í þá átt að ég fór að taka að mér að sjá um uppsetn-
ingu veitingastaða, hótela, verslana og kaffihúsa frá
upphafi til enda. Það var alls ekki stefnan að starfa
við þetta þó ég hafi alltaf haft brennandi áhuga á
arkitektúr og hönnun,“ segir Leifur.
Hver fersentimetri skiptir máli
Starfstitill Leifs er „concept creator“ og þaðan
kemur nafn fyrirtækis hans W CONCEPT CREA-
TION, en það felur í sér að koma að hönnun og upp-
byggingu staða og er þá ekkert smáatriði undan-
skilið. „Við sköpum heildarmyndina í samvinnu við
rekstaraðila í hverju og einu verkefni. Oft byrjum
við vinnuna okkar algerlega frá byrjun, eða frá
deiliskipulagi. Þegar það er búið höldum áfram allt
ferlið þangað til
starfsemin hefst
í húsinu. Stærstu
verkefnin núna er
hönnun tveggja
stórra hótela á
Íslandi ásamt
margra stórra
veitingastaða og
verslana. Þar á
meðal er 100 her-
bergja hótel við
Geysi í Haukadal,
sem verður fjög-
urra stjörnu SPA
hótel. Við hönnum
líka skrifstofur,
verslanir, einka-
húsnæði, nætur-
klúbba, kaffihús
og fleira.“
Í uppsetningarferlinu er Leifur og hans fólk til
staðar allan tímann þar sem það hefur umsjón með
að allt sé gert samkvæmt áætlun. „Maður er mikið
á ferðinni og endalaust að taka verkið út og fylgjast
með. Að mínu mati er það lykilatriði svo vel takist til
að vera til staðar. Það er alltaf eitthvað sem kemur
upp á og þá þýðir ekki vera langt í burtu. Þessi vinna
er líka mikið tilfinningamál. Það er ekki bara að
gera eitthvað, heldur erum við í þessu af lífi og sál
og hver einasti fersentmetri skiptir máli.“
Ástríðunni fylgir fullkomnunarárátta
Mikilvægt að hlusta
Við hönnun á heildarmynd
veitingastaðar eða annars
reksturs hefur Leifur sérhæft
sig í því að hanna í kringum
ákveðnar rekstrarforsendur.
„Þetta er ekki eins og að hanna
heimili eftir smekk einhvers
heldur þarf að greina markað-
inn á hverjum og einum stað
og sjá hvað passar og virkar.“
Að opnun hvers nýs staðar
kemur yfirleitt stór hópur og að-
spurður hvort ekki sé erfitt að
komast að niðurstöðu um það
hvernig best sé að hafa hlutina
segir Leifur svo ekki vera. „Það
er algjört lykilatriði að kunna
að hlusta á viðskiptavinina og því
er ekki verra að vera góður í mann-
legum samskiptum.“
Frá einu verkefni til annars er það
mikið til sami hópur fólks sem Leif-
ur vinnur með. „Það fer eftir hverju
og einu verkefni. Þegar verkefnin
eru stór eins og í stórum hótel-
verkefnum þá þekkjast ekki allir, en
það hefur ekki verið vandamál en
auðvitað er það öðruvísi við smærri
verkefni eins og kaffihús eða veit-
ingastaði. Yfir höfuð er þetta hópur
sem þekkist orðið vel. Við þekkjum
hvernig iðnaðarmennirnir vinna
og það er gagnkvæmt. Ég hef notið
þess að vinna með alveg ofboðslega
kláru fólki á sínu sviði í þessum
verkefnum.“
Vinnan er áhugamálið
Leifur fylgist mjög vel með því sem
er í gangi á hverjum tíma og ferðast
mikið um heiminn til að fá innblást-
ur í hönnun sína og skoðar hótel
og veitingastaði og sækir sýningar
reglulega um allan heim. „Það er
brjáluð vinna að halda hausnum allt-
af uppfærðum og ferskum en bara
hluti af þessu og virkilega skemmti-
legt. Ég tel að lykillinn að því að
ganga vel sé að hafa gaman af því
sem maður er að fást við. Vinnan er
mitt helsta áhugamál og er því eitt
það skemmtilegasta sem ég geri.“
En hvernig tilfinning skyldi það
vera að fara út að borða á stað þar
sem maður hefur sjálfur hannað
hvert smáatriði? „Það er góð til-
finning að setjast niður og anda að
sér verkefninu þegar það er tilbúið,
hvort sem það er veitingastaður,
kaffihús eða hótel. Maður er samt
endalaust að gagnrýna sjálfan sig
og finnur yfirleitt eitthvað sem hefði
mátt fara betur en það er bara eitt-
hvað sem fylgir því að gera hlutina
af ástríðu.“
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Leifur Welding hefur
komið að hönnun
marga þeirra flottu
veitingastaða og
kaffihúsa sem
sprottið hafa upp hér
á landi að undan-
förnu. Fyrirtækið
hans W CONCEPT
CREATION sér um að
skapa heildarmynd
staða og er þá ekkert
smáatriði undan-
skilið.
Leifur Welding
á heiðurinn
að hönnun á
heildarmynd
marga veitinga-
staða, kaffihúsa
og verslana hér
á landi. Hann
lærði húsasmíði
og hefur alltaf
haft brenn-
andi áhuga
á arkitektúr
og hönnun.
Fyrir honum eru
verkefnin ekki
aðeins vinna
heldur tilfinn-
ingamál sem
hann sinnir af
lífi og sál.
W
CONCEPT
CREATION hannaði
heildarmynd veit-
ingastaðarins Fjalar-
kattarins í miðbæ
Reykjavíkur.
Ljósin
á Grillmark-
aðnum hafa
hlotið verðskuld-
aða athygli.
Hlý-
leg og
notaleg stemn-
ing á Primo við
Grensásveg.
Leif-
ur og hans
fólk hannaði
heildarmynd
veitingastaðarins
Sushi Samba.
Skemmti-
legir litir og
falleg hönnun
á Sushi Samba
við Þingholts-
stræti.