Fréttatíminn - 07.02.2014, Qupperneq 45
heilsa 45Helgin 7.-9. febrúar 2014
Svarið býr í náttúrunni
REYKJANESBÆAKUREYRISELFOSSISMÁRATORGIKRINGLUNNILÁGMÚLALAUGAVEGI
ótrúleg
TILBOÐ!
aðeins í heilsuhúsinu
Komdu og gerðu góð kaup!
Tilboðin gilda
til 9. feb.
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.IS
H
LS
6
75
81
0
2/
14
Higher Nature – hágæða bætiefnalína
Fullkomin nýting og virkni.
25%
Guli miðinn
Bætiefnin sem allir
þekkja vegna gæða.
25%
Solaray gæði – hrein og virk bætiefni
Komdu og fáðu upplýsingar.
25%
Organic Burst – lífræn súperfæða
Komdu og fáðu upplýsingar.
25%
Pulsin Prótein
Auðmeltanleg hágæða
prótein án eiturefna!
25%
Arctic Root – Burnirót extra sterk
Vantar kraftinn? Ekki gefast upp!
25%
Raw Chocolate
Ofurfæði, lífrænt hráfæðis innihald.
25%
L árperan er talin vera einn hollasti ávöxtur sem völ er á. Hún eru stútfull af lífs-
nauðsynlegum fitusýrum, víta-
mínum og steinefnum auk þess að
innihalda mestar trefjar af öllum
ávöxtum og grænmeti. Svo er lár-
peran upplagt fæði fyrir ungbörn
vegna fullkominnar samsetningar
kolvetna og próteina auk þess að
vera mjög auðmeltanleg.
Margir forðast lárperur eins og
heitan eldinn vegna hás fituinni-
halds og fjölda hitaeininga. Það
eru þó mikil mistök því lár-
perufitan er ein sú hollasta sem
fyrirfinnst. Hún inniheldur ein-
ómettaðar fitusýrur sem minnka
kólesteról í blóðinu og þar með
líkur á hjartasjúkdómum.
Hollasti hluti lárperunnar liggur
við skinnið en þar er að finna mest
af andoxunarefnum. Sá hluti er
oftast aðeins dekkri en skærgræn
miðjan svo það er langbest að rífa
hýðið af lárperunni líkt og gert er
við banana, en alls ekki borða bara
innan úr henni.
Lárperan gerir ekki aðeins
kraftaverk fyrir heilsuna heldur
líka fyrir útlitið. Lárperuolían
er virkilega góð fyrir húð og hár
og því notuð af fjölda snyrtivöru-
fyrirtækja en það er óþarfi að leita
langt yfir skammt því einn besti
andlitsmaski sem völ er að maka
lárperu beint á andlitið.
Svo er lárperan svo skemmtileg
því það er hægt að njóta hennar á
marga vegu. Sniðugt er að skera
hana í tvennt og fylla hvorn helm-
inginn af einhverju gómsætu og
bjóða upp á í forrétt. Svo er hægt
að skera hana í bita út á salat, gera
allskonar góðar sósur og mauk,
nota í morgunhristing eða maka
henni bara beint á brauð. Lárperan
er ættuð frá Suður-Ameríku og
víða í álfunni er hún á boðstólum
við öll tækifæri og flestir þekkja
hina margfrægu ídýfu, Guaca-
mole. En færri vita að Þjóðverjar
eru duglegir við að borða lárperur
í morgunmat og ekki er óalgengt
að sjá hálfskorna lárperu í þýskum
ísskápum, með steininum enn í því
þannig geymast þær best og verða
ekki brúnar. Þetta er reyndar stór-
sniðug aðferð til að nýta lárperuna
vel, þ.e að skera ofan af henni, í
stað þess að skera hana í tvennt,
og taka svo úr henni kjötið í smá-
skömmtum með teskeið. Þýska að-
ferðin er mjög nýtin og hentar því
vel hér á landi þar sem lárperan
er alls ekki ódýr. Reyndar getur
verið mjög svekkjandi að kaupa
lárperur hérlendis þar sem þær
eru oft of-eða óþroskaðar. Betra er
að velja minna þroskaðar lárperur
og geyma í glugganum, en alls
ekki í ísskápnum, og bíða þess af
þolinmæði að þær þroskist, en að
opna þær heima og verða fyrir von-
brigðum þegar hún er öll svört að
innan eftir langt ferðalag úr öðrum
heimshluta.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Lárpera Magnaður ávöxtur
Eitt hollasta fæði sem fyrirfinnst
3 lárperur
1 lime
1/2 tsk. salt
1/2 tsk. cúmín
1/2 tsk. ceyenne pipar
1/2 laukur, skorinn mjög fínt
1/2 jalapenjo pipar, niðurskorinn
2 tómatar, fínt skornir í litla bita
1 hvítlauksrif, kramið
Slatti af kóríander, fint skorið
Svo er hægt að skreyta og
bragðbæta með jalapenjo pipar
eða sólþurrkuðum tómötum.
Öllu er blandað vel saman. Best
er að láta lárperumaukið standa
í klukkustund áður en boðið er
upp á það.
Gott er að setja einn stein í
maukið til að halda því vel
grænu.
Lárperur. Sumir segja að ein lárpera á
dag komi heilsunni í lag.
Guacamole, eða lárperumauk, er ekki bara gott heldur líka hollt.
Einfalt og gott ekta Guacamole