Fréttatíminn - 07.02.2014, Side 60
Í takt við tÍmann vordÍs EirÍksdóttir
Mætir í ræktina klukkan
sex á morgnana
Vordís Eiríksdóttir er 24 ára veðurfréttakona frá Neskaupstað. Hún er í masters-
námi í jarðeðlisfræði með áherslu á jarðhita. Vordís byrjaði í veðurfréttunum á
Stöð 2 í nóvember og hefur fengið að heyra að það sé búið að vera vont veður
síðan hún byrjaði. Hún vonast til að geta staðið undir nafni á næstunni.
Staðalbúnaður
Ef mér gefst tækifæri til þess reyni ég að kaupa
sem mest af fötum í útlöndum. Undanfarið hef ég
gengið mikið í skrautlegum leggings, bleiser-
jökkum, fínum bolum og kósí peysum.
Annars hef ég ferðast með Strætó í vetur
og það takmarkar svolítið fatavalið. Ég
er ekki mikið á hælum í hálkunni þessa
dagana. Ég er yfirleitt í Timberland-
skóm og Þórsmörk parka-úlpu.
Hugbúnaður
Mér finnst skemmtilegra að hitta
vinkonur mínar á kaffihúsum eða
að vera í heimapartíum en að
fara niður í bæ að skemmta mér.
Það er kannski sveitastelpan
í manni sem ræður því. Ég
reyni að mæta klukkan sex á
morgnana í ræktina til að
ná þar tveimur tímum.
Svo er ég að vinna uppi
í Orkuveitu og þess
utan er ég formaður
nemendafélagsins
Foldu og aðstoðar-
manneskja á Dale
Carnegie-nám-
skeiðum fyrir
ungt fólk. Það er því ekki mikið um lausar stundir
en þegar ég á frítíma reyni ég að hitta vinkonur
mínar. Eða eyði honum í nördaskap á netinu. Ef ég
fæ áhuga á einhverju þá sökkvi ég mér í það, hvort
sem það er líkamsrækt, lyftingar, næringarfræði
eða eitthvað annað. Ég lærði innhverfa íhugun fyrir
tveimur árum og það gefur mér mikið þegar tími
gefst til að stunda hana.
Vélbúnaður
Ég er svolítið Mac-óð, er með Macbook Pro, iPhone
5 og iPod Nano. Líf mitt er skipulagt út og inn í sím-
anum og ég er með allt í honum. Þau öpp sem ég
nota mest eru Instagram, Facebook og Strætó. Svo
er ég með svona notes og skrifa alltaf allt sniðugt
sem mér dettur í hug niður. Ég er með frekar of-
virkan huga og þarf að skrifa allt strax niður.
Aukabúnaður
Uppáhaldsgræjan mín í eldhúsinu er safavélin mín.
Ég hef ekki mikinn tíma til að elda en ég útbý mér
alltaf nesti á kvöldin. Þá sýð ég egg og geri eitthvað
úr avokadó, kotasælu, ávöxtum, hnetum, möndlum
og fleiru. Það kemst ekki meira fyrir í dagskránni
hjá mér í dag en þegar ég klára mastersnámið er ég
komin með langan „to do“ lista sem verður gaman
að vinna á. Uppáhaldsstaðurinn minn er sveitin hjá
mömmu og pabba í Norðfirði. Það er yndislegt að
fara þangað og hlaða batteríin.
Mannréttindi hversdagsins
föstudaginn 7. febrúar kl. 13.00 – 17.00 á Grand Hóteli
Málþingsstjóri: Bergur Þorri Benjamínsson, málefnafulltrúi Sjálfsbjargar landssambands fatlaðra.
Allir velkomnir, ekkert þátttökugjald. Síðasti skráningardagur er 6. febrúar.
Skráning, upplýsingar um túlkun og fleira á vef Öryrkjabandalags Íslands www.obi.is
MÁLÞING
Sveitarfélög og fatlaðir íbúar
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-2
2
6
6
Setning: Ellen Calmon, formaður Öryrkjabandalags Íslands
Ávarp: Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra
Aðferðafræði, þátttakendur og framkvæmd rannsóknarinnar
Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar
Reynsla fatlaðs fólks og öryrkja sem íbúa sveitarfélaga
Rannveig Traustadóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs í fötlunarfræðum
Reynslusögur íbúa
Arnar Helgi Lárusson, íbúi í Reykjanesbæ og Kári Auðar Svansson, íbúi í Reykjavík
Fyrirspurnir og umræður
Kaffihlé
Reynsla sveitarstjórnarfólks og starfsmanna sveitarfélaga
Hrafnhildur Snæfríðar- og Gunnarsdóttir, verkefnastjóri
Reynsla starfsfólks sveitarfélaga
Soía Lárusdóttir, framkvæmdastjóri búsetudeildar Akureyrarbæjar
Fyrirspurnir og umræður
Viðhorf almennings til fatlaðs fólks, öryrkja og velferðarþjónustu sveitarfélaga
Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar
Fyrirspurnir og umræður
13.00
13.05
13.15
13.25
14.15
14.35
14.50
15.20
16.00
16.15
16.30
16.45
Kynntar verða niðurstöður nýrrar rannsóknar.
Dagskrá:
appafEngur
„How to make origami“
Origami er japönsk list við að brjóta pappír og hefur
öðlast vinsældir víða um heim, og var origami meðal
annars kynnt á japönskum dögum í Háskóla Íslands.
Pappírsbrotin geta verið allt frá því að vera afar ein-
föld yfir í mjög flókin. Börnum finnst einfalt origami
almennt mjög heillandi og tilvalið að hlaða niður
appinu „How to make origami“ og föndra aðeins með
börnunum. Appinu fylgja góðar leiðbeiningar til að
búa til fugl, bát, box, samúræjahjálm, hús, blóm og
hjarta. Appið er ókeypis en fyrir rúman einn Banda-
ríkjadollara er hægt að kaupa 10 leiðbeiningar til við-
bótar, og fyrir tæpa fjóra dollara fást leiðbeiningar til
að gera 40 origami í viðbót. Ódýr og skemmtileg leið
til að hafa ofan af fyrir sér og öðrum, auk þess sem
origami-fígúrurnar vekja alltaf aðdáun.
Vordís Eiríksdóttir
ólst upp í Neskaupstað
en flutti nítján ára
gömul á mölina til að
hefja háskólanám. Hún
er ánægð í starfi sínu
sem veðurfréttakona á
Stöð 2. Ljósmynd/Hari
TENNIS
er skemmtileg hreyfing
Nú er rétti tíminn til að
panta fastan tíma í tennis.
Eigum nokkra tíma lausa.
Skemmtilegu byrjendanámskeiðin
fyrir fullorðna eru að hefjast.
Skráning og upplýsingar í síma 564 4030 eða á tennishollin.is
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
60 dægurmál Helgin 7.-9. febrúar 2014