Fréttatíminn - 17.01.2014, Page 20
Y firleitt þegar ég segi um hvað lokaverkefn-ið mitt fjallar biður fólk mig um að endur-taka mig og síðan spyr það hvað „wicca“
sé eiginlega,“ segir Rósa Alexandersdóttir sem
vinnur lokaverkefni sitt í þjóðfræði við Háskóla
Íslands um wicca, eða náttúrutrú. „Enginn hefur
áður skrifað lokaverkefni um þetta þannig að það
er mjög erfitt að finna heimildir en markmið mitt
er að skoða yfirfærslu menningar og hvar nátt-
úrutrúin er á þeirri vegferð.“
Wicca er heiti á heiðinni sértrú sem er stunduð
víðs vegar um heiminn. Einn þeirra fyrstu sem
fjallaði um Wicca var Bretinn Gerald Gardner sem
um miðbik síðustu aldar hélt því fram að wicca
væri endurvakin nornatrú sem rekja mætti til
heiðins siðar fyrir kristni í Evrópu. „Það er mjög
misjafnt hvernig fólk túlkar wicca og því iðkar fólk
trúna á mjög ólíkan hátt. Sumir einbeita sér bara
að því að hlúa að náttúrunni en aðrir tilbiðja líka
gyðju og enn aðrir bæði gyðju og guð.“
Rósa hefur vegna verkefnisins gert óformlega
könnun á því í gegnum Facebook hvað fólk telur
að wicca sé. „Ég reiknaði alveg með því að fólk
hefði neikvæðari mynd af þessu og tengdi wicca
við djöfulinn. Það eru vissulega sumir í wicca sem
trúa á og stunda galdra, en aðrir ekki. Tengingin
Rannsakar nornatrú
Rósa Alex and
ersdóttir vinnur
að lokaverkefni
sínu í þjóðfræði
um náttúrutrú,
eða „wicca.“
Bæði karlar
og konur sem
ástunda trúna
kalla sig nornir
og segir Rósa
að trúarbrögðin
séu lífsstíll sem
liti alla þætti
daglegs lífs.
Hún hefur þegar
tekið viðtöl við
þrjár íslenskar
nornir en leitar
að fleiri við
mælendum.
Rósa Alexandersdóttir er ekki náttúrutrúar en segist verða spenntari fyrir þessum
trúarbrögðum eftir því sem hún kynnist þeim betur.
við nornir er hins vegar skýr enda
kalla þeir sem ástunda wicca sig
nornir, bæði konur og karlar.
Fyrst og fremst er þetta lífsstíll
sem snýst um virðingu fyrir nátt-
úrunni. Fólk er meðvitað um að
náttúran er lifandi, og hugsar mik-
ið um að flokka og endurvinna.
Sumir fara líka út í náttúruna og
ástunda ýmsa helgisiði.“
Rósa er ekki náttúrutrúar en
hún segir að því meira sem hún
kynnist henni því áhugasamari
verði hún. „Ég er bara áhuga-
manneskja. En ég er ekki kristinn-
ar trúar.“ Hún hefur þegar tekið
viðtöl við þrjár konur sem aðhyll-
ast náttúrutrú. „Þær hafa stundað
þetta mis lengi, og ein þeirra var í
hópi fólks sem hittist reglulega og
stundaði trúna saman.“ Konurnar
gáfu ekki kost á viðtali við Frétta-
tímann. Ekkert starfandi trúfélag
er fyrir wicca og segir Rósa að
sumir þeirra skrái sig í Ásatrúar-
félagið, því bæði trúarbrögðin séu
heiðin og ýmislegt líkt með þeim.
Vetrarsólstöður er ein helsta
hátíð ársins hjá þeim sem eru
náttúrutrúar, en á nýliðnu ári
voru vetrarsólstöðurnar þann
21. desember. Hátíðin Samhain
er einnig heiðin en hún fellur á
31. október, þegar hluti heimsins
fagnar hrekkjavöku. Samkvæmt
wicca-fræðunum eru skilin milli
okkar heims og andaheimsins þá
minnst og því besti tíminn til að ná
sambandi við framliðna.
Rósa á enn mikið eftir af verk-
efninu, bæði hvað varðar heimilda-
vinnu og viðtöl, en hún vonast eftir
því að ná einnig tali af íslenskum
karlmönnum sem stunda wicca.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Ein helsta hátíð
þeirra sem
aðhyllast wicca
er 31. október
þegar hluti
heimsins fagnar
Hrekkjavöku.
Þeir sem eru
náttúrutrúar
kalla sig nornir.
Mynd/NordicPhotos/Getty
ÚTSALA
Bankastræti 4 I sími: 551 2770 I www.aurum.is
10-50% AFSLÁTTUR
EINGÖNGU Í HÖNNUNARBÚÐINNI.
FRÁ 16. JANÚAR - 6. FEBRÚAR.
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18
laugard. 11-16
Milano sett 3+1+1 verð 199.900 áður 35
6.900
Roma Hornsófi 2H2 verð 129.900 áður 2
38.900
AFSLÁTTUR AF
VÖLDUM VÖRUM 70%
Allt a
ð
ÚTSALA
Rúm 153x200
frá 69.000
verð áður 218.900
*gildir einungis fyrir sýningareintak
Heilsukoddar
2.900
verð áður 6.900
Barskápur 119x158x52
frá 89.000
verð áður 149.900
Tungusófar frá 125.900 kr
Hornsófar frá 129.900 kr
Sófasett frá 199.900 kr
Bast stólar
5.900
verð áður 24.900
Skenkur 235x80x52
frá 77.000
verð áður 221.900
Sjónvarpsskápar
frá 33.500
verð áður 47.900
Fólk er meðvitað um
að náttúran er lifandi,
og hugsar mikið um að
flokka og endurvinna.
20 viðtal Helgin 17.19. janúar 2014