Fréttatíminn - 17.01.2014, Blaðsíða 44
44 heilsa Helgin 17.-19. janúar 2014
heilsumeistarar ráðleggingar í ársbyrjun
207
h eilsumeistararnir Ásta Ólafs-dóttir og Katrín Níelsdóttir segja tengingu fólks við náttúruna og
árstíðirnar vera tækifæri til breytinga,
heilunar og þroska. Vetrartíminn sé tími
sjálfsskoðunar og næringar svo hug-
myndir okkar og ætlun geti þroskast hið
innra áður en þær springi út að vori. „Því
er nauðsynlegt að sinna sjálfum sér vel
líkamlega og andlega allan veturinn og
gefa sér tíma til að hægja á, hvílast og
hugleiða. Það skilar sér svo í betri líðan.“
Þær segja ástæður orkuleysis í janúar ein-
staklingsbundnar en oft tengdar melting-
unni.
Dagleg hreyfing utandyra í birtu
og hreinu lofti er góð fyrir líkama og sál.
Góður svefn er mikilvægur og ef regla
er á svefntímanum eru meiri líkur á að
við sofum vel. Hugleiðsla nærir andann
og stuðlar að andlegu og líkamlegu jafn-
vægi.
heil og holl fæða nærir og end-
urnýjar líkamann. Gott er að borða fæðu
sem íþyngir ekki líkamanum, minnka
skammta, sleppa sykri, hveiti og öllum
unnum matvælum. Ferskt, lífrænt græn-
meti, salat og spírur mega gjarnan vera
í aðalhlutverki því þá fáum við ensím og
góðar bakteríur í meltingarveginn. Niður-
brot og upptaka næringar verður betri og
það skilar sér í betri líðan og léttari lund.
Góð prótein eru chlorella og spirulina
blágrænir þörungar, baunir, hnetur og
spínat.
Ýmis bætiefni geta hjálpað til við að
losna við slenið og má helst nefna omega
3 fitusýrur, B og D vítamín, magnesíum
og kalíum. Best er að fá þessa næringu úr
fæðunni sjálfri.
Jurtate sem bæta meltinguna og létta
lundina eru til dæmis fennelte, piparmyn-
tute, lakkrísrótarte, engiferte og Chai-te.
Volgt sítrónuvatn að morgni dags hreyfir
við meltingu og losar úrgang. Lækninga-
jurtir sem hreinsa lifur, blóðið og melt-
inguna geta bætt andlega og líkamlega
líðan.
Ýmsar góðar ilmkJarnaolíur
styðja við hugleiðslu og slökun, aðrar eru
hressandi og gefa mikla orku. Við mælum
með ilmolíumeðferðum sem styrkja
líkamann og veita slökun og vellíðan.
Burt með slenið í janúar
Margir finna fyrir sleni og orkuleysi í skammdeginu í janúar og fékk Fréttatíminn þær Ástu
Ólafsdóttur og Katrínu Níelsdóttur heilsumeistara til gefa nokkrar ráðleggingar um betri líðan í
upphafi ársins. Þær stöllur útskrifuðust frá Heilsumeistaraskólanum síðasta haust og opnuðu í
kjölfarið náttúrulækningastofur að Strandgötu 33 í Hafnarfirði.
Góður svefn
er mikil-
vægur og
ef regla er
á svefntím-
anum eru
meiri líkur á
að við sofum
vel.
Ásta Ólafsdóttir og Katrín Níelsdóttir heilsumeistarar segja nauðsynlegt að sinna sjálfum sér vel allan veturinn, bæði
líkamlega og andlega og gefa sér tíma til að hægja á, hvílast og hugleiða. Ljósmynd/Hari
kortatímabil
!Nýtt
kortatímabil
!
50%afsláttur
Blandaðu
í kassann
12 stk.
af þínum
uppáhald
s
bragðteg
undum!
Hámark
4 kassar
á mann meðan
birgðir endast!
1200kr.kassinn
Verð áður 2388 kr.
kassinn
Don Simon safi, 12 í
kassa,
5 tegundir sem má
blanda
saman í kass
a!
tilBoðSaf
aríkt
v
1
lítri
S: 568 3868/699-2676 matarkn@matarkn.is www.matarkn.is
Hlíðasmára 10 · 201, Kópavogur
Stjórnar át og þyngdarvandi lí þínu?
Fráhald í forgang: 10 vikna meðferðahópar að
heast 3. og 5. febrúar.
Nýtt líf: 5 vikna námskeið fyrir byrjendur hefst 11.
febrúar.
Esther Helga Guðmundsdóttir M.Sc.