Fréttatíminn - 17.01.2014, Qupperneq 28
É
g vil alls ekki vera markaðs-
settur sem kyntákn, ég og út-
gáfufyrirtækið One little Indi-
an erum alveg á sömu blaðsíðu
með það. Ég er alveg andstæð-
an við eitthvað svoleiðis og
þeir sem maður vinnur með og þekkja mann
vita hver maður er og hvað maður stendur
fyrir. Fyrirtækið er ekta „underground“ og
flott vörumerki sem leggur áherslu á að vera
raunverulegt,“ segir Ásgeir Trausti Einars-
son tónlistarmaður sem hefur verið að túra
í tæplega ár plötuna sína Dýrð í dauðaþögn.
Eins og staðan er nú lítur út fyrir að næsta ári
verði svipað.
Ásgeir átti róleg og góð jól með foreldrum
og vinum sínum á Hvammstanga en kom
þó fram fjórum sinnum á milli jóla og nýárs.
Einnig gaf hann sér tíma til að sýna frönsk-
um fjölmiðlamönnum heimaslóðir sínar á
Hvammstanga en frönsk sjónvarpsstöð var
að gera þátt um hann. „Við fengum alveg
frábært veður, mjög róleg stemning myndað-
ist og við vorum að spila og tala saman. Það
getur verið mjög skemmtilegt en ég get ekki
sagt að ég sækist sérstaklega eftir athygli
fjölmiðla,“ segir Ásgeir Trausti, jarðbundinn
og hógvær.
Betra með hverjum mánuðinum
„Það er ekki eitthvert eitt svæði sem mér
finnst við vera leggja áherslu á meira en
annað nema helst þá Bretland, Frakkland og
Norðurlöndin,“ segir Ásgeir en platan hefur
aðeins verið gefin út á ensku í Hollandi og í
Danmörku en kemur ekki opinberlega út alls
staðar fyrr en 29. janúar.
„Fyrst þegar við ákváðum að gefa út plötu
úti og byrja að túra þá leist mér alls ekki vel
á það því að ég hafði enga reynslu af því og
fannst það aðeins of stórt skref. Ég sagði
eiginlega nei fyrst, ég ætlaði ekki að gera
þetta því að ég var hræddur við það. Ég vissi
svo sem ekki hvað ég var að fara að gera. Svo
hugsaði ég að þetta gæti verið eina tækifærið
sem við fengjum til þess að láta á þetta reyna
og fara út og gera okkar besta þannig að þeg-
ar maður leit á heildarmyndina og sá þetta í
réttu ljósi þá lét maður af þessu verða. Mér
fannst allt mjög erfitt fyrst en hefur orðið
betra og betra með hverjum mánuðinum og
akkúrat núna þá er þetta voðalega einfalt og
þægilegt. Það getur verið þreytandi en líka
mjög skemmtilegt,“ segir Ásgeir.
„Ég hef þroskast að einhverju leyti vegna
þess að maður er búinn að vera að gera öðru-
vísi hluti en flestir eru að gera og maður er
búinn að vera að ferðast endalaust út um
allt og verið að kynnast nýjum hlutum. En
þroskinn er ekki endilega á öðru stigi en hjá
jafnöldrum mínum. Ég er alltaf sami vitleys-
ingurinn,“ segir Ásgeir.
Saknar alltaf Íslands
Ásgeir hefur ekki haft mikinn tíma til að gera
það sem honum þykir skemmtilegast, að
semja tónlist.
„Þegar kemur frír tími þá reynir maður að
semja eins mikið og maður getur en það er
voðalega lítið af honum. Við þurfum oft að
vera vinna lögin okkar öðruvísi vegna mark-
aða eins og í Japan og Ástralíu sem vilja gefa
út smáskífur. Við þurftum nýlega að gera „co-
ver“ lag fyrir einn markað úti til að geta gefið
út vegna þess að þau vildu fá eitthvað sem
enginn annar er með til þess að hafa eitthvað
nýtt fram að færa. Núna erum við ekki mikið
að einblína á nýtt efni. Maður reynir alltaf að
semja þegar maður hefur tíma og það er það
skemmtilegasta sem maður gerir en þegar ég
er á túr og bý á hóteli þá dettur maður ekki
oft í fílinginn til þess,“ segir Ásgeir.
„Fyrir næstu plötu væri ég helst til í að
taka alveg frí frá öllu í nokkra mánuði og geta
verið einhvers staðar með sjálfum mér og
varið nokkuð góðum tíma í að semja án þess
að vera í einhverju stressi,“ segir Ásgeir.
Ásgeir og hópurinn hans hafa fundið fyrir
auknum áhuga. Áhorfendum á tónleikum
fjölgar auk þess sem þeir spila á sífellt stærri
stöðum. Segist hann ekki vera að huga að
Ég er ekki að stressa mig á neinu
Ásgeir Trausti hefur verið að túra allt síðasta árið og kom heim í smá frí um jólin til að hlaða
batteríin fyrir það næsta. Hann fann fyrir óöryggi og var jafnvel lokaður fyrir ári síðan en núna
er hann farinn að njóta ferðalagsins sem útgáfufélagið One little Indian skipulagði fyrir hann.
Tónlistarmaðurinn tekur frægðinni þó með jafnaðargeði og saknar Íslands þegar hann er úti.
Framhald á næstu opnu
Ásgeir Trausti Einarsson var maður ársins í íslensku tónlistarlífi árið 2012. Hann seldi
22.000 eintök af fyrstu plötu sinni, Dýrð í dauðaþögn. Í febrúar árið 2013 greindi Frétta-
tíminn frá því að Ásgeir hefði samið við útgáfufyrirtækið One Little Indian og að plata hans
kæmi út í hinum stóra heimi. John Grant snaraði textum Ásgeirs yfir á ensku fyrir plötuna,
In the Silence, og nú kallar hann sig bara Ásgeir. Ýmislegt hefur drifið á daga Ásgeirs
síðasta árið.
Ásgeir hefur leikið á 170 tónleikum síðasta árið, bæði hér á landi en þó aðallega úti í heimi.
Plata hans er komin út í Hollandi og Danmörku. Hún kemur út í Bretlandi og Evrópu í lok
mánaðarins. Platan situr í 16. sæti á iTunes-listanum í Hollandi og er númer 54 á gamla
góða sölulistanum.
Ásgeir hlaut EBBA-verðlaunin í Hollandi á miðvikudagskvöld. Hann situr í efsta sæti
á Hot Overseas Chart á Billboard í Japan.
Erlendir fjölmiðlar sýna Ásgeiri mikinn áhuga. Franski sjónvarps-
þátturinn Alcaline kom til Íslands til að gera þátt um hann. Stór-
blaðið Le Monde kom líka í heimsókn um daginn. Sunday Times
verður með grein um Ásgeir innan skamms. Ásgeir var líka til
umfjöllunar í Der Spiegel online fyrir skemmstu.
Þá er ótalin gagnrýni á plötuna. Platan hefur fengið
frábæra dóma í Mojo, Uncut, Guardian, The Line of Best
Fit, Independent og fleiri miðlum.
Ásgeir er bókaður við tónleikahald fram í miðjan
apríl en að sögn Maríu Rutar Reynisdóttur, umboðs-
manns hans, er núna verið að bóka hann á tónlist-
arhátíðir og annað fyrir sumarið.
Í lok mánaðarins verður kynningarvinna í Bret-
landi og Frakklandi þegar platan kemur þar út.
Strax í kjölfarið fylgir túr um Noreg þar sem Ás-
geir kemur fram á 300-450 manna tónleikastöð-
um. Þegar er orðið uppselt í Osló og Stafangri.
Í febrúar fer hann í tónleika- og kynningarferð
um Suðaustur-Asíu: Tókýó, Taipei, Singapor
og Hong Kong. Þar kemur hann meðal annars
fram á tónleikum með The National og Mogway.
Einnig er uppselt á 350 manna tónleika í París
11. febrúar.
Í mars verður að líkindum 10–14 daga túr um
Ameríku í kringum SXSW tónlistarhátíðina.
Hinn 21. mars hefst þriggja vikna túr um
Evrópu sem lýkur 12. mars. Þar kemur Ásgeir
meðal annars fram í Union Chapel í London sem
er 850 manna staður. Og á Store Vega í Köben
sem er 1500 manna staður. Í maí er stefnt að
annarri tónleikaferð um Ameríku og í sumar
leikur hann á tónlistarhátíðum í Ameríku,
Japan og í Evrópu.
Ljósmynd/Hari
Annasamt ár að baki – ennþá strembnara ár fram undan
28 viðtal Helgin 17.-19. janúar 2014