Fréttatíminn - 17.01.2014, Page 54
Þegar japönsku bardagakapparnir
sem kenndir eru við samúræja
standa uppi húsbóndalausir eru þeir
kallaðir ronin. Þetta er ekki eftir-
sóknarverð staða enda er tilvera
samúræja sem ekki hefur herra til
þess að þjóna með sverði sínu hálf
tilgangslaus.
Hér segir af 47 slíkum sem eru
á hrakhólum eftir að illur stríðs-
herra drepur meistara þeirra. Þeir
dreifast um landið en sameinast til
þess að leita hefnda og verja þannig
heiður sinn og síns fólks. Leynivopn
þeirra í baráttunni við illmennið er
blendingurinn Kai, sem ættbálkur
þeirra hafði áður snúið baki við.
Keanu Reeves leikur Kai sem
slæst í ævintýraför með stríðs-
köppunum en föruneytið þarf að
brjóta sér leið í gegnum goðsagna-
heim þar sem alls kyns óvættir og
skrímsli reyna að hefta för þeirra.
Aðrir miðlar: Imdb: 6,7, Rotten Tom-
atoes: 11%, Metacrtitc: 28%
Cloudy With a Chance of Meatballs 2 er
eins og nafnið gefur skýrt til kynna fram-
hald teiknimyndarinnar Cloudy With a
Chance of Meatballs sem kom út 2009.
Ógurlegur matarstormur fyrri
myndarinnar varð til þess að Flint og
vinir hans hrökkluðust burt úr bænum. Í
kjölfarið býður Chester V, átrúnaðargoð
Flints, honum vinnu hjá fyrirtæki sínu. Þar
starfa fremstu uppfinningamenn heims
við að finna upp tækni til að betrumbæta
mannkynið.
Þegar Flint uppgötvar, sér til mikillar
skelfingar, að tækið hans er ennþá virkt
og dælir út úr sér stökkbreyttum matar-
skrímslum á borð við lifandi, súrsaðar
gúrkur, glorhungraða takódíla, rækjuapa
og eplakökukyrkislöngur, neyðist hann
til að snúa aftur með félögum sínum og
bjarga heiminum á ný.
Aðrir miðlar: Imdb: 6,6, Rotten Tom-
atoes: 87%, Metacritic: 66%
54 bíó Helgin 17.-19. janúar 2014
Gagnrýn-
endur hafa
keppst við
að ausa
12 Years
a Slave
lofi og
verðlauna-
tilnefn-
ingarnar
streyma
inn.
Frumsýnd 12 Years a slave
12 Years a Slave er þriðja kvikmynd leikstjórans Steve McQueen. Hann gerði Hunger 2008 þar sem hann
fjallaði um hungurverkfall í fangelsi á Norður-
Írlandi. Árið 2011 vakti hann athygli og umtal
með Shame þar sem Michael Fassbender fór
á kostum sem kynlífsfíkill í andlegri kreppu.
Óhætt er að segja að samstarf Fassbenders og
McQueen hafi verið farsælt en leikarinn hefur
verið í öllum myndum leikstjórans. Hann lék
í Hunger og í 12 Years a Slave fer hann með
hlutverk grimms plantekrueiganda sem gerir
Solomon lífið leitt.
Solomon var frjáls maður og bjó ásamt eigin-
konu og tveimur börnum í New York. Hann var
fær trésmiður og liðtækur tónlistarmaður sem
var býsna flinkur á fiðluna. Líf hans hrundi vetur-
inn 1841 þegar tveir menn buðu honum starf sem
undirleikari í leiksýningu sem þeir þóttust vera að
undirbúa. Hann fór því með þeim til Washington
þar sem þeir höfðu hann undir og seldu í þrældóm
til New Orleans.
Plantekrueigandinn William Ford, sem Bene-
dict Cumberbatch leikur, kaupir þrælinn sem á
bærilega vist þar sem Ford er ágætisnáungi og
það fer vel á með þeim. Hann lendir síðan í úti-
stöðum við rasískan trésmið og eftir áflog þeirra
í milli sér Ford ekki aðra leið til þess að bjarga
lífi Solomons en að selja hann Edwin nokkrum
Epps, plantekureiganda og óþverra sem Fass-
bender leikur.
Ævisaga Solomons, 12 Years a Slave, kom
út 1853, í kjölfar hinnar vinsælu Kofi Tómasar
frænda en bækurnar tvær áttu sinn þátt í þeirri
vitundarvakningu sem náði hámarki þegar þræla-
stríðið braust út 1861.
Gagnrýnendur hafa keppst við að ausa 12
Years a Slave lofi og verðlaunatilnefningarnar
streyma inn. Myndin fékk sjö tilnefningar til
Golden Globe og hreppti verðlaunin sem besta
dramamyndin. Chiwetel Ejiofor þykir fara á kost-
um í hlutverki Solomons og í gær var hann til-
nefndur til óskarsverðlauna fyrir leik sinn. 12
Years a Slave er einnig tilnefnd sem besta mynd-
in, fyrir leikstjórn, besta aukaleikarann og leik-
konuna en myndin hlaut níu tilnefningar alls.
Aðrir miðlar: Imdb: 8,6, Rotten Tomatoes: 97%,
Metacritic: 97%
Breski leikstjórinn Steve McQueen gerði mikla lukku með Shame 2011 en þar túlkaði Michael
Fassbender kynlífsfíkil í krísu eftirminnilega. 12 Years a Slave er þriðja mynd McQueen og með
henni hefur enn frekar aukið hróður sinn sem leikstjóri. Myndin segir sanna sögu Solomons Nort-
hup en árið 1841 var honum rænt og hann hnepptur í þrældóm á plantekrum í Suðurríkjunum þar
sem hann var í ánauð í tólf ár þar til hann fékk frelsið á ný.
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Tólf ára ánauð
Chiwetel Ejiofor leikur Solomon Northup og þykir gera persónunni frábær skil.
Matarmikil veðurspá
Frumsýnd ChanCe oF meatballs 2
Flint stendur enn í ströngu og þarf
nú að mæta matarskrímslum.
Keanu Reeves leikur þrælinn og út-
skúfaða blendinginn Kai sem er eina
von landlausra samúræja um að ná
fram hefndum.
Frumsýnd 47 ronin
Sverðaglamur í Japan
SKÓLANEMAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR & KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS - MIÐASALA: 412 7711
BORGMAN (16)
SÝNINGARTÍMAR Á MIDI.IS
THE NIGHT OF THE HUNTER (16)
SUN: 20.00
Styrkir
Barnavinafélagið
Sumargjöf
Auglýsir styrki til rannsókna, lista og
þróunarverkefna, sem geta nýst börnum
á leik- og grunnskólaaldri.
Umsókn, ásamt greinargerð um verkefnið, skal
senda fyrir 14. febrúar 2014.
Stjórn Barnavinafélagsins Sumargjafar áskilur sér rétt
til að óska eftir nánari upplýsingum um verkefnið og
ármögnun þess og leita umsagnar fagaðila.
Reykjavík 14. janúar 2014 • Barnavinafélagið Sumargjöf
Pósthólf 5423, 125 Reykjavík • Netf: sumargjof@simnet.is