Fréttatíminn - 31.01.2014, Blaðsíða 2
Bíttu í Þorragráðaostinn, áður
en hann bítur í þig. Sterkur,
bragðmikill og sómir sér vel á
þorrahlaðborðinu.
Þorragráðaosturinn er
konungur gráðaostanna
og fæst núna tímabundið
í verslunum.
Þorragráðaostur
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Málmhaus hlaut flestar tilnefningar
Andri
Snær og
Sjón hlutu
í gær Bók-
mennta-
verðlaun
Íslands.
Kvikmyndin Málmhaus
hlýtur flestar tilnefningar
til Edduverðlaunanna í ár,
eða 16. Hross í oss hlýtur
14 tilnefningar og XL 11.
Verðlaunin verða afhent í
Hörpu 22. febrúar.
Þrjár kvikmyndir fá
tilnefningu sem kvikmynd
ársins, Hross í oss, Málm-
haus og XL. Charlotte
Böving er tilnefnd fyrir
leik í aðalhlutverki fyrir
Hross í oss. Auk hennar
eru tilnefndar þær Ilmur
Kristjánsdóttir fyrir Ástríði
2, María Birta Bjarnadóttir
fyrir XL, Ólafía Hrönn
Jónsdóttir fyrir Fiskar á
þurru landi og Þorbjörg
Helga Þorgilsdóttir fyrir
Málmhaus. Ágúst Örn B.
Wigum er tilefndur sem
leikari í aðalhlutverki fyrir
leik sinn í Hvalfirði, Ingvar
E. Sigurðsson fyrir Hross
í oss, Kjartan Guðjónsson
fyrir Ástríði 2, Ólafur Darri
Ólafsson fyrir XL og Styr
Júlíusson fyrir Falskan fugl.
Þær leikkonur sem
tilnefndar eru fyrir leik í
aukahlutverki eru Hall-
dóra Geirharðsdóttir fyrir
Málmhaus, María Helga
Jóhannsdóttir og Nanna
Kristín Magnúsdóttir
fyrir XL, Maríanna Clara
Lúthersdóttir fyrir Þetta
reddast og Sigríður María
Egilsdóttir fyrir leik sinn
í Hross í oss. Þrír karlar
eru tilnefndir fyrir leik í
aukahlutverki í Málmhaus;
þeir Hannes Óli Ágústsson,
Ingvar E. Sigurðsson og
Sveinn Ólafur Gunnarsson.
Auk þeirra eru tilnefndir
þeir Björn Hlynur Haralds-
son fyrir Ástríði og Steinn
Ármann Magnússon fyrir
Hross í oss.
Þeir frétta- og viðtals-
þættir í sjónvarpi sem til-
nefndir eru Auðæfi hafsins,
Ísþjóðin, Kastljós, Málið og
Tossarnir. Ávaxtakarfan,
Stundin okkar og Vasa-
ljós eru tilnefndir í flokki
barna- og unglingaþátta.
Fatasöfnun fyrir Sýrland
Rauði krossinn stendur fyrir fatasöfnun
dagana 30. janúar til 9. febrúar ásamt
Fatímusjóði og hópnum Sendum hlýjan
fatnað til Sýrlands. Einungis verður tekið
við nýjum fatnaði og prjónavörum sem
dreift verður til sýrlenskra flóttamanna.
Stefnt er að því að safna um 5.000 kílóum
af nýjum flíkum og er sérstök áhersla lögð
á skjólfatnað fyrir konur og börn.
Fólki sem vill leggja söfnuninni lið er bent
á að merkja fatapoka vel Sýrlandssöfnun.
Best er að skila fatnaði beint í fatasöfnun
Rauða krossins að Skútuvogi 1, Reykjavík
eða í fatagáma Rauða krossins á grenndar-
stöðvum á höfuðborgarsvæðinu.
Skyrið selst vel í Noregi
Q-mjókursamlagið í Noregi hefur þriðja
árið í röð aukið vöxt sinn um yfir 100
milljónir norskra króna eða tólf prósent og
er það mikið til íslenska skyrinu að þakka,
að því er fram kemur á vef Bændablaðsins,
bbl.is. Þar segir jafnframt að Q-mjólkur-
samlagið hafi tryggt sér uppskriftaleyfi
hjá Mjólkursamsölunni og að skyrið sé
selt sem léttjógurt í Noregi. Skyr var sett
á markað í Noregi árið 2009 og hefur nú
tíu prósenta hlut af jógúrtmarkaðnum þar
en sala þess jókst um 30 prósent frá árinu
2012 til 2013 eða um 34 milljónir norskra
króna sem samsvarar rúmlega 637 millj-
ónum íslenskra króna.
Þorbjörg Helga Þorgils-
dóttir er tilnefnd fyrir
leik í aðalhlutverki fyrir
leik sinn í Málmhaus.
Menning BókMenntaverðlaunin voru afhent á BessastöðuM í gær
Guðbjörg, Andri Snær og Sjón verðlaunuð
Rithöfundarnir Guðbjörg Kristjáns-
dóttir, Andri Snær Magnason og Sjón
hlutu í gær Bókmenntaverðlaun Ís-
lands fyrir árið 2013. Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, tilkynnti
val lokadómnefndar á verðlaunahöf-
um við athöfn á Bessastöðum.
Guðbjörg hlaut verðlaunin í flokki
fræðirita og bóka almenns efnis fyrir
Íslensku teiknibókina. Útgefandi er
Crymogea. Sjón var verðlaunaður
í flokki fagurbókmennta fyrir bók
sína Mánasteinn – drengurinn sem
aldrei var til. Útgefandi er JPV. Andri
Snær hlaut fyrstur manna verðlaunin
í flokki barna- og unglingabóka. Þær
höfðu áður fallið undir flokk fagur-
bókmennta. Andri var verðlaunaður
fyrir Tímakistuna sem Mál og menn-
ing gaf út.
Félag íslenskra bókaútgefanda
fagnar 125 ára afmæli um þessar
mundir og í ár er jafnframt 25 ára
afmæli Íslensku bókmenntaverð-
launanna. Verðlaunahafar fengu eina
milljón króna hver en auk þess fengu
þeir skrautrituð verðlaunaskjöl og
verðlaunagripi, sem hannaðir eru af
Jóni Snorra Sigurðssyni á gullsmíða-
verkstæði Jens.
í kjölfar umfjöllunar í Fréttatímanum í síðustu viku um að nýráðinn eftirlitsmaður Matvælastofnunar með velferð og aðbúnaði dýra í Suðurlandsum-
dæmi hefði sumarið 2007 orðið uppvís að vanrækslu
stóðhests bárust stofnuninni upplýsingar um önnur
mál tengd því og öðrum á árunum 2006 og 2009. Þau
mál eru nú til athugunar hjá stofnuninni sem hefur
í samráði við dýraeftirlitsmanninn ákveðið að hann
hverfi tímabundið frá störfum.
Í tilkynningu sem Matvælastofnun sendi frá sér
í gær, fimmtudag, kom fram að vegna fyrrgreindra
ásakana um að dýraeftirlitsmaðurinn hafi í nokkrum
tilvikum ekki sinnt skyldum sínum um umhirðu og
eftirlit með stóðhestagirðingum muni hann víkja
tímabundið frá störfum á meðan málin eru tekin til
skoðunar. Þeir Eggert Gunnarsson dýralæknir sem á
sæti í Dýralæknaráði, Atli Már Ingólfsson, lögmaður
hjá Landlögmönnum og Ágúst Sigurðsson, fulltrúi
frá Landbúnaðarháskóla Íslands, fara á næstunni yfir
málið sem verður tekið til endanlegrar ákvörðunar
þegar niðurstöður liggja fyrir. Jafnframt kemur fram í
tilkynningu MAST að ekki megi draga úr trúverðug-
leika stofnunarinnar né véfengja verk þeirra sem þar
starfa. Samkvæmt upplýsingum frá MAST verður
dýraeftirlitsmaðurinn í launuðu leyfi þar til niðurstaða
liggur fyrir.
Starfsmaðurinn var ráðinn til MAST um síðustu
áramót þegar búfjáreftirlit færðist frá sveitarfélögun-
um til stofnunarinnar, samkvæmt lögum sem þá tóku
gildi. Staðan felur í sér eftirlit með dýrahaldi, þar með
talið fóðrun og aðbúnaði, ásamt móttöku og úrvinnslu
tilkynninga um illa meðferð dýra. Í fréttatilkynningu
MAST kemur fram að starfsmaðurinn hafi uppfyllt
allar kröfur sem gerðar voru til starfsins og hafði í
rúman áratug sinnt sambærilegu starfi fyrir sveitarfé-
lög í Árnes- og Rangárvallasýslum. Í ráðningarferlinu
hafði MAST spurnir af því að haustið 2007 hafi Land-
búnaðarstofnun haft til skoðunar og gert alvarlegar
athugasemdir við fóðurástand og umhirðu stóðhests
sem tímabundið var í umsjón hans. Mat dýralækna
var að hesturinn hefði ekki orðið fyrir varanlegum
skaða, engin kæra lögð fram og því hafi ekki þótt
ástæða til að grípa til frekari aðgerða. Eins og fram
kom í Fréttatímanum í síðustu viku hélt eigandi
hestsins málið í réttum farvegi þar sem dýralæknir
hefði sent um það skýrslu til Matvælastofnunar. Í máli
hans kom jafnframt fram að hesturinn hafi verið lengi
að ná fullri heilsu og þjáðst af kvíða í nokkur ár eftir
dvölina hjá umræddum dýraeftirlitsmanni.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Dýravelferð áBenDingar uM vanrækslu fleiri hrossa
Hesturinn Blær frá Torfunesi dvaldi hjá umræddum dýraeftirlitsmanni, Óðni Erni Jóhannssyni, sumarið 2007. Í skýrslu
dýralæknis segir að holdafar hans hafi verið mjög slæmt, hesturinn vanfóðraður og að ekki hafi verið hugsað nógu vel um hann.
Matvælastofnun og dýraeftirlitsmaðurinn hafa komist að samkomulagi um að hann víki tímabundið frá störfum á meðan aðrar
ábendingar um vanrækslu hans á hrossum á árunum 2006 og 2009 eru skoðaðar.
Dýraeftirlitsmaður
víkur vegna rannsóknar
Eftirlitsmaður með velferð og aðbúnaði dýra í Suðurlandsumdæmi sem hóf störf hjá Matvæla-
stofnun í byrjun ársins hefur vikið tímabundið frá störfum. Eftir að Fréttatíminn fjallaði í síðustu
viku um vanrækslu eftirlitsmannsins á stóðhesti í hans umsjón árið 2007 bárust stofnuninni
ábendingar um að hann hafi í nokkrum öðrum tilfellum ekki sinnt skyldum sínum um umhirðu og
eftirlit með stóðhestagirðingum. Málið er nú til skoðunar og verður tekin endanleg ákvörðun um
framhaldið þegar niðurstaða liggur fyrir. Þangað til er dýraeftirlitsmaðurinn í launuðu leyfi.
2 fréttir Helgin 31. janúar–2. febrúar 2014