Fréttatíminn


Fréttatíminn - 31.01.2014, Page 4

Fréttatíminn - 31.01.2014, Page 4
Calvin Klein mætir á Hönnunarmars veður Föstudagur laugardagur sunnudagur A 10-18. Rigning A-til, en slyddA nA-lAnds og þuRRt V-til. Hiti 0 til 5 stig. HöfuðboRgARsVæðið: A 8-15 m/s og skýjAð. Hiti 0 til 3 stig. A og nA 8-15 m/s. snjóKomA á n- og nV-til, Rigning A-til AnnARs þuRRt. KólnAR. HöfuðboRgARsVæðið: NA 5-13 m/s. HálfskýjAð og Hiti 0 til 3 stig. nA 8-15 m/s en 13-18 nV-til. snjóKomA n-til AnnARs þuRRt. fRost 0 til 5 stig. HöfuðboRgARsVæðið: NA 5-13 m/s. HálfskýjAð og frost 0 til 3 stig. Austanátt og vætu- samt fyrir austan A og NA hvassviðri og rigning sA- og A-til. NA-lægari vindur og snjókoma fyrir norðan seinni- partinn á morgun og á sunnudag en úrkomulítið s- og sV-til. Hiti í kringum frostmark en mildara fyrir austan. 1 2 2 4 3 0 -1 -2 1 3 0 -2 -2 0 1 elín björk jónasdóttir vedurvaktin@vedurvaktin.is Calvin klein. Bandaríski fatahönnuðurinn Calvin Klein flytur erindi á DesignTalks, fyrirlestradegi Hönnunarmars í ár. Einvalalið alþjóðlegra hönnuða og arkitekta flytja erindi á fyrirlestrardeginum sem ber heitið Dealing with Reality en hann verður 27. mars næstkomandi í silfurbergi Hörpu og stendur frá klukkan 9.30-16. Þar verða ný hlutverk hönnuða og arkitekta í brennidepli og hönnun skoðuð sem leiðandi afl á umbrotatímum, í óvæntu samhengi og samstarfi, að því er fram kemur í tilkynningu Hönnunarmiðstöðvar. Auk Calvin Klein flytja erindi Robert Wong frá Google, Mikael Schiller frá Acne Studios, Marco Steinberg frá Helsinki Design Lab og Kathryn Firth frá London Legacy Development Corporation. Fundarstjórar eru Hlín Helga Guðlaugsdóttur, hönnuður, listrænn stjórnandi og lektor við konstfack listaháskólann í stokkhólmi og stephan sigrist frá svissnesku hugveitunni W.I.R.E. Calvin klein fatahönnuður er stofnandi og eigandi Calvin klein inc. Hann hefur um árabil verið einn fremsti fatahönnuður heims. Í erindi sínu mun hann meðal annars fjalla um stefnumótun og aðferðir á ólíkum stigum starfsferils síns og mikilvægi samvinnu þvert á hönn- unargreinar. - jh gjaldþrotum fækkar milli ára Alls voru 54 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í desember síðastliðnum en gjaldþrot fyrirtækja í desember 2012 voru 135, að því er fram kemur hjá Hagstofu Íslands. á árinu 2013 var fjöldi gjaldþrota 918, en það er 17,4% fækkun frá árinu 2012 þegar 1.112 fyrir- tæki voru tekin til gjaldþrota- skipta. flest gjaldþrot á árinu voru í flokknum byggingar- starfsemi og mannvirkjagerð, samtals 179. Þá voru nýskráð 172 einka- hlutafélög í desember 2013 en nýskráningar þeirra voru 147 í desember 2012. Nýskráningar voru flestar í fjármála- og vátryggingastarfsemi. á árinu 2013 var fjöldi nýskráninga 1.938. Það er 10,6% aukning frá árinu 2012 þegar 1.752 fyrirtæki voru skráð. -jh  atkvæðagreiðsla könnun sem maskína gerði Fyrir Já ísland Tveir þriðju vilja fá að kjósa um aðildarviðræður Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og Štefan Füle, stækkunarstjóri ESB, á fundi þeirra í Brussel í júní síðastliðnum þegar Íslendingar tilkynntu um hlé á viðræðum við Evrópusambandið. tveir af hverjum þremur Ís- lendingum vilja þjóðaratkvæða- greiðslu um framhald aðildar- viðræðna við Evrópusambandið en þriðjungur þjóðarinnar vill það ekki, sam- kvæmt nýrri könnun. meirihluti aðspurðra er hins- vegar andvígur því að ganga í sambandið. í slendingar eru andsnúnir því að ganga í Evrópusambandið en vilja samt sem áður að viðræðum verði haldið áfram og fá að kjósa um það hvort það verði gert. Þetta eru helstu niðurstöður nýrrar skoð- anakönnunar sem Maskína gerði fyrir Já Ísland. Ríflega tveir af hverjum þremur Íslend- ingum vilja að haldin verði þjóðaratkvæða- greiðsla um framhald á aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Alls sögðust 67,5 prósent vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um framhaldið en 32,5 prósent vildu það ekki. Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Mask- ínu á netinu dagana 10. - 20. janúar. Svar- endur voru 1078. Meirihluti aðspurðra, 56 prósent, vill jafnframt að Íslendingar haldi áfram að- ildarviðræðum. Tæplega 15 prósent vilja að hlé verði gert á viðræðunum og um 30 prósent vilja slíta þeim. Meirihluti allra stjórnmálaflokka, nema ríkisstjórnarflokkanna, vill halda áfram viðræðum en þó er ekki meirihluti fyrir því meðal stuðningsmanna ríkisstjórnarflokk- anna að slíta viðræðunum, samkvæmt könnuninni. Þó svo að mikill meirihluti vilji fá að kjósa um framhald viðræðna segjast fleiri andvígir því að Íslendingar gangi í Evrópu- sambandið en þeir sem segjast hlynntir því. Alls eru tæplega 46 prósent aðspurðra fremur eða mjög andvíg því að ganga í ESB en 31 prósent er hlynnt því að ganga í sam- bandið. 23 prósent voru hvorki hlynnt né andvíg því. Karlar eru almennt hlynntari því en konur að ganga í Evrópusambandið og íbúar höfuðborgarsvæðisins jafnframt hlynntari en fólk á landsbyggðinni. Þá eykst stuðningur við inngöngu eftir því sem tekjur hækka og menntun eykst. Meirihluti kjósenda stjórnarflokkanna er andvígur aðild. sigríður dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is ut messan í Hörpu UT Messan verður haldin í Hörpu helgina 7. til 8. febrú- ar. Hún er stærsti viðburður ársins í tölvugeiranum og er nú haldin í fjórða sinn. ráðstefnan er ætluð fagfólki í upplýsingatækni og hverjum þeim sem hefur brennandi áhuga á tölvumálum. Báðir dagarnir eru þéttskipaðir af áhugaverðum fyrirlestrum en sýningarsvæðið opið gestum og gangandi og þar munu 50 fyrirtæki tengd tölvugeiranum kynna starfsemi sína. á staðnum verða meðal annars Lego þrautir, tölvuleikir og SKEMA mun kynna börnum forritun, auk þess sem hönnunarkeppni véla- og iðnverkfræðinema mun standa yfir frá 12-16. Aðstandendur hvetja fólk til að mæta með alla fjöl- skylduna, eiga fróðlega stund með tölvufólki landsins og sjá framtíðina með berum augum. 4 fréttir Helgin 31. janúar–2. febrúar 2014

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.