Fréttatíminn - 31.01.2014, Side 6
Smáíbúðir Lyfta utanhúSS í þriggja hæða húSum
Leiguverð háð
lóðarkostnaði
Bergur Þorri
Benjamínsson
hjá Sjálfs-
björg segir 100
þúsund króna
leigu fyrir
28 fermetra
smáíbúð of hátt
verð. Svanur
Guðmundsson
leigumiðlari
segir að verðið
sé háð mörgum
utanaðkomandi
þáttum sem
hafi ekki enn
komið í ljós
en hann er í
viðræðum við
sveitarfélög
um samþykki
á byggingu
smáíbúða sem
hægt er að fjar-
lægja eftir um-
saminn tíma.
a llt húsnæði sem telst vera úrræði í lengur en fjóra mánuði telst vera varanlegt og þegar talað er um að
hafa húsnæðið tímabundið í 10 ár þá passar
það ekki inn í neinar reglur um tímabundið
húsnæði,“ segir Bergur Þorri Benjamíns-
son, varamaður í stjórn Sjálfsbjargar, um
áætlanir um smíði smáíbúða fyrir leigu-
markaðinn sem Fréttatíminn fjallaði um
síðasta föstudag.
Svanur Guðmundsson leigumiðlari hefur
hug á því að koma upp byggingu með litlum
íbúðum, frá 28 fermetrum til 36 fermetra að
stærð, til þess að koma til móts við gríðar-
lega þörf fyrir húsnæði á leigumarkaðnum.
Hægt er að tala um úrræði að því marki
að hægt er að setja íbúðirnar saman með
skömmum fyrirvara eftir umsaminn tíma
og verður fyrsta íbúðin til sýningar fyrir
sveitarfélögin á næstu vikum.
„Ég sé ekki fram á það að hægt verði að
komast undan því að hafa lyftu, geymslur
og þvottahús en þar sem þessu verður
raðað upp eins og Lego verður væntanlega
ekki kjallari. En lyftan er algjört grund-
vallaratriði og það er ekki vilji fyrir því að
sveitarfélögin samþykki nema að þessir
hlutir séu í lagi,“ segir Bergur Þorri sem
situr í vinnuhópi fyrir hönd Sjálfsbjargar
ásamt fulltrúum Örykjabandalagsins,
Arkitektafélagsins, Samtökum iðnaðarins
og Mannvirkjastofnun í skoðun á nýrri
byggingarreglugerð. Bergur Þorri segir
þó að framtakið sé ágætt hjá umræddum
leigusala og að þetta sé einn af mörgum
gluggum sem menn hafa talið að væru
lokaðir, að bjóða upp á svona litlar íbúðir
og telur hann að í raun sé hægt að byggja
svona lítið. „Það er ansi mikið að borga 100
þúsund krónur á mánuði fyrir 28 til 36 fer-
metra íbúð,“ segir Bergur Þorri og hefur
hann áhyggjur af of háu lóðaverði á höfuð-
borgarsvæðinu en hann spáir því að hátt í
30% af íbúðarverði sé lóðarkostnaður.
Svanur Guðmundsson segir að ef þrjár
hæðir verði í umræddu íbúðarhúsi þá verði
lyfta utanhúss en áætlað sé að sérinngang-
ur verði inn í hverja íbúð og geymslupláss
verði í séreiningum. „Íbúðirnar eru hann-
aðar af verkfræðingum og munu uppfylla
nýjustu byggingarreglugerð að öllu leyti
nema að það er lítilsháttar bil, eða um 25
cm, sem okkur vantar fyrir framan salerni
til þess að uppfylla algilda hönnun. Ekki
verður hægt að breyta þessu nema með
ærnum tilkostnaði sem gerir heildarstöð-
una mun óhagkvæmari fyrir alla aðila,“
segir Svanur. Hann telur þó að margar
tegundir minni hjólastóla verði hægt að
nota inni á þessum salernum.
„Við erum að rétt að setja fyrstu íbúðina
saman og munum sýna hana um miðjan
næsta mánuð. Við erum að reyna að leysa
vanda fólks sem er næstum því á götunni
eða í iðnaðarhúsnæði. Við erum að reyna
að búa til eins ódýrar íbúðir og mögulegt
er fyrir þá sem minnst mega sín,“ segir
Svanur. Ekki er komið í ljós hver kostn-
aðurinn verður með tilliti til þess hversu
lengi þessar íbúðir fá að vera uppi enda sé
það háð samkomulagi um viðkomandi lóð,
enda hafi það ekki enn verið rætt við neitt
sveitarfélag enn sem komið er.
„Utanaðkomandi þættir eru svo stórir inni
í jöfnunni að það er ómögulegt að segja hvað
þetta kemur til með að kosta,“ segir Svanur.
María Elísabet Pallé
maria@frettatiminn.is
Bergur Þorri Benjamínsson.
Fyrirhugaðar
leiguíbúðir eru
litlar. Utanáliggj-
andi lyfta verður
ef húsið verður
þrjár hæðir.
Netnotkun Íslendinga jókst lítillega á milli ára,
líkt og fyrri ár, og teljast nú 95% íbúa landsins
til reglulegra netnotenda. Er það hæsta hlut-
fall sem mælist í Evrópu, en meðaltal reglulegra
netnotenda í löndum Evrópusambandsins er 72%,
að því er Hagstofa Íslands greinir frá. „Tæplega
helmingur netnotenda tengist netinu á farsímum
eða snjallsímum og þar af taka 72% myndir á síma
sína til að hlaða beint inn á netið. 59% netnotenda
taka öryggisafrit af gögnum sínum, en af þeim
sem það gera nota 55% til þess geymslurými á
netinu, eða tölvuský. 12% þeirra einstaklinga sem
nota tölvuský til að geyma öryggisafrit af gögnum
greiða fyrir það. 58% netnotenda höfðu verslað af
netinu ári fram að rannsókn. Aukning var mest á
milli ára í kaupum á hugbúnaði og tölvuleikjum,
en einnig kom fram aukning á kaupum á kvik-
myndum og tónlist.“
Af fyrirtækjum á Íslandi eru 85% með eigin vef-
síðu og þar af eru 35% með möguleika á að panta
vöru eða þjónustu af vefsíðunni. 20% fyrirtækja
telja kostnað við að hefja netsölu vera of háan til að
það borgi sig. Þá nota 19% fyrirtækja samfélags-
miðla til að ráða starfsfólk, segir Hagstofan enn
fremur.
Fyrirtækjarannsóknin nær yfir þau fyrirtæki
sem eru að lágmarki með 10 starfsmenn, en fjár-
málafyrirtæki eru undanskilin. - jh
netið nær heLmingur tengiSt í gegnum Síma
Netnotkun Íslendinga hin mesta í Evrópu
Tæplega
helmingur
netnot-
enda
tengist
netinu
með far-
eða snjall-
símum.
Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir
27. febrúar - 6. mars
Franska rivíeran
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Væri ekki gaman að fara í glæsilega ferð á frönsku
Rívíeruna eða Sítrónuhátíð við Côte d’Azur?
Upplifum glæsilega blómaskrúðgöngu í Nice.
Fetum í spor kvikmyndastjarna í Cannes.
Heimsækjum Furstadæmið Mónakó.
Verð: 179.200 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Sp
ör
e
hf
.
6 fréttir Helgin 31. janúar–2. febrúar 2014