Fréttatíminn - 31.01.2014, Page 14
Fáðu þetta heyrnartæki
lánað í 7 daga
- án skuldbindinga
Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu
og fáðu Alta til prufu í vikutíma
Sími 568 6880
Prófaðu ALTA frá Oticon
Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Þjónusta á landsbyggðinni | Sími 568 6880
| www.heyrnartækni.is |
Góð heyrn er okkur öllum mikilvæg. ALTA eru ný
hágæða heyrnartæki frá Oticon sem gera þér kleift
að heyra skýrt og áreynslulaust í öllum aðstæðum.
ALTA heyrnartækin eru alveg sjálfvirk og hægt er
að fá þau í mörgum útfærslum.
ÞETTA ER MÁLIÐ 2014
Kaffimál
og áfylling allt árið
aðeins 2.490 kr.
Vinur við veginn
É g er ein af þeim sem er alltaf að reyna. Mig langar svo að vera í góðu formi. Ég veit að mér líður
betur, er ánægðari með sjálfa mig, hef
meira úthald, er minna þreytt og
verð glaðari ef ég er dugleg að
hreyfa mig. Samt geri ég það ekki.
Ég ætla alltaf að fara að gera það
og er alltaf að reyna. Hef ósjaldan
keypt mér kort í ræktinni (yfirleitt
árskort því það er „hagstæðast“), fer
nokkrum sinnum og er svo alltaf „á
leiðinni að fara“.
Ég hef reynt ýmislegt því ég er
alltaf að reyna að finna tíma sem
hentar mér (og fjölskyldunni). Ég
hef gert átak í að fara á morgnana,
áður en allir vakna, það myndi henta
öðrum en mér best því ég væri ekkert að
ganga á tíma barnanna með mér. Slíkt átak
gengur yfirleitt fljótt yfir því ég er ekki
hin hefðbundna A-manneskja (því síður
hin hefðbundna B-manneskja, ef því er
að skipta), ég vil fara snemma að sofa og
helst að sofa sem lengst á morgnana. Ég
er að minnsta kosti ekki manneskjan sem
rífur sig upp fyrir allar aldir og er mætt í
ræktina klukkan 6. Það veit ég og er hætt
að reyna það.
Ég er heldur ekki manneskjan sem fer í
ræktina eftir að börnin eru sofnuð. Yfirleitt
sofna ég með þeim – eða stuttu síðar.
Ég er heldur ekki mamman sem fer í
ræktina eftir vinnu, sú sem sækir börnin
eftir heilan dag í skóla eða leikskóla og fer
með þau beint í næstu pössun, í ræktinni.
Mér finnst ég bara ekki geta gert þeim
það. Þau eru jafnþreytt og ég eftir daginn
og þurfa að komast heim í kósíheit – fyrir
utan það að ég þarf að sinna heimilisstörf-
unum sem ekki sinna sér sjálf, versla, elda
kvöldmat, henda í vél og allt það. Svo þurfa
Fer í ræktina þegar ég verð miðaldra
Ég er alltaf að reyna að finna góðan tíma til að komast í ræktina
Sigríður
Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
sjónarhóll
skólabörnin að læra heima –
svöng og þreytt börn eiga ekki
auðvelt með heimalærdóm, svo
mikið hef ég lært. Þau þurfa að
komast heim beint eftir leik-
skóla, fá gott búst sem millimál,
fá að slaka smá á og þá er fyrst
hægt að tala þau inn á að æfa
sig á píanóið eða í heimalestr-
inum. Fyrir utan það hvað ég
er sjálf uppgefin eftir langan og
krefjandi vinnudag. Mig bara
langar heim til mín, alls ekki í
ræktina, vitandi að þau verkefni
heimilisins sem eru á minni
könnu (auðvitað sér maðurinn
minn um álíka mikið og ég)
frestast einfaldlega um tvo tíma
við það. Ég er því hætt að reyna
að fara í ræktina eftir vinnu.
En hádegið? Gæti ég ekki
fengið að taka langan hádegis-
mat tvo daga vikunnar og farið
svo í ræktina um helgar til þess
að ná þeim fjórum skiptum í
viku sem maður þarf að hreyfa
sig til þess að vera í góðu
formi? Jú, ef til vill. Ég gæti vel
fært rök fyrir því að hæfileg
hreyfing í hádeginu skilaði
einfaldlega betri afköstum í
vinnu. Og það myndi svo sem
ekki bitna mikið á börnunum
ef ég fengi að skreppa í ræktina
klukkutíma hvorn daginn um
helgar. Það er ekki eins og það
séu ekki einhverjir til að passa
þau á meðan (pabbi, systkini,
ömmur og afar, frænkur og
frændur...).
En þá þyrfti ég að fara að
byrja að borða morgunmat
(sem ég hef aldrei getað gert)
því ég er alltaf svo rosalega
svöng í hádeginu – eða vera svo
skipulögð að ég myndi eftir því
að taka með mér nesti í vinnuna
til að borða um tíuleytið þegar
matarlystin er loksins komin.
Þekkjandi sjálfa mig er líklegt
að ég myndi muna eftir því í
fyrstu þrjú skiptin – og eftir
það kæmist ég sennilega ekki
í ræktina vegna svengdar og
myndi ákveða að „fara bara á
morgun í staðinn“. Sem nátt-
úrulega myndi ekki gerast því
ég gleymdi aftur nestinu. Og þá
myndi ég áreiðanlega fresta því
að fara um helgina því ég væri
hvort eð er ekkert búin að fara
þessa vikuna og mig langaði
svo í sund með börnunum akk-
úrat á sama tíma og ég hafði
ákveðið að fara í ræktina... eða
þannig.
Ég er eiginlega að spá í að
hætta að reyna. Ég er búin
að sjá það að eftir tíu ár (eða
kannski átta) verða börnin
orðin svo stór að þau eru sjálf
svo upptekin eftir skóla að þau
þurfa ekkert á mér að halda
þá. Og þá get ég farið í ræktina
eftir vinnu. Já, ég ætla að reyna
það eftir tíu ár.
14 viðhorf Helgin 31. janúar–2. febrúar 2014