Fréttatíminn - 31.01.2014, Blaðsíða 46
46 fjölskyldan Helgin 31. janúar–2. febrúar 2014
Fallegt Fyrir Fjölskylduna
Tveggja ára ósköpin
V ilji er allt, sem þarf,“ sagði þjóðskáldið Einar Ben og það er samfélaginu best að vilji allra þjóðfélagsþegna sé vel ræktaður og umhirtur en viljaþjálfunin er eitt stærsta verkefnið á yngstu árum barna. „The Terrible Twos“ eða tveggja ára
ósköpin, segja Ameríkanar um árin sem taka við þegar smábarnið með mjúka dúninn á
kollinum og dásamlega hjalið sitt öðlast sjálfstæðan vilja og hann ekki smáan. „Nei-nei-
nei“ verður algengasta orðaröðin og „ég vil“ eða „ég vil ekki“ er skyndilega orðið upphafið
á nánast öllum setningum. Fjölmargir foreldrar standa ráðþrota og varnarlausir gagnvart
þessu náttúruafli sem viljinn er í meðförum frumlegasta og úthaldsamasta fólks í heimi,
barnanna okkar.
Afkvæmi okkar er eitthvert varnarlausasta ungviði sem finnst meðal spendýra. Fyrstu
tvö árin hafa þau lífsviljann einan að vopni til að fá það sem þau þurfa til að lifa af;
næringu, hvíld, fjarvist frá sársauka – og ást, athygli og nánd. Gráturinn er fram-
lenging lífsviljans, þau beita honum svikalaust og allt almennilegt fólk hleypur til
þegar þörf krefur. Á næsta stigi koma orðin og allur sá galdur sem þeim fylgir og þá
fær viljinn nýja birtingarmynd. Litlu yndin geta þar með orðið harðstjórar heimilis-
ins eða þá uppspretta stöðugra átaka ef hinir fullorðnu í kring beita ekki skynsemi
og kærleika við mótun og þjálfun þessa ógnarafls, ótamda og nýuppgötvaða viljans.
Stöðug átök með boðum og bönnum eða pirringur og jafnvel reiði við barnið
gagnast ekkert. Slíkar móttökur geta hæglega brotið vilja barnsins sem verður þá
bælt og hrætt og fer að finna sér duldar leiðir til að ná sínu fram. Önnur afleiðing
af hörku hins fullorðna getur valdið því að annað náttúruafl vakni upp hjá barninu,
mótþróinn sjálfur og hamingjan hjálpi þeim foreldrum sem skapa slíkar hamfarir
í fjölskyldusamskiptunum. Hin leiðin er að foreldrar hlaupa til eftir vilja barnsins
og gera allt til að forðast óánægju litla harðstjórans. Verst af öllu er þó þegar byrjað
er á neita öllum kröfugerðum barnsins en láta svo undan, lúffa fyrir ógnaraflinu og
kenna afkvæmi sínu að með nægilegri pressu og yfirgangi muni það ná fram vilja
sínum að lokum. Ekki erum við í betri málum með hinn ótamda vilja og yfirgang
heldur en bælingu eða mótþróa sem farteski barna inn í framtíðina. Þriðja leiðin er
að beita skynsemi af kærleiksríkri festu og eiga svo nokkur tromp uppi í erminni
eins og reglufestu, valkosti og samninga.
Fáar en skýrar reglur sem ávallt er fylgt og mótaðar eru jafnharðan á ævi barnsins kalla
sjaldnast á átök. Ef háttatími og kvöldverðarumhverfi hefur verið í röð og reglu á ung-
barnatímanum, er líklegt að þar vakni engin átök. En síðan verður af nógu að taka í vilja-
æfingum ungviðsins og algengast er að börnin stefni foreldrum í stríð um matarmál og
fatnað, hvoru tveggja metnaðarmál foreldra að sýna að sé í fullkomnu standi á heimilinu. Í
stað þess að þiggja hólmgönguáskorun frá tveggja ára ósköpunum er langbest að hagnýta
galdratækið val milli kosta. Þannig má bjóða barni sem ætlar að hlaupa frá matardisk-
inum að velja glaðlega milli þess að borða tvo eða tíu bita. Vitaskuld verður kostaboðið
tveir fyrir valinu og barnið telur sig hafa landað frábærum samningi. Hið sama gildir í
morgunsárið þegar blessað unglambið neitar að klæða sig. Haldið lítinn valfund og bjóðið
upp á val milli skynsamlegra kosta eins og tveggja buxna og þriggja eintaka af heppileg-
um peysum. Viðkomandi mun njóta þess að sýna vilja sinn á þennan jákvæða hátt og æfir
um leið einfaldan grunn að lýðræðisviðhorfi til framtíðar.
Svo má einfaldlega segja já í stað þess þess að neita ef okkur sýnist tilgangslítið að neita
og ef við ætlum að beita nei-inu á viljasterka afkvæmið okkar, er best að velja þá baráttu af
kostgæfni því að við verðum að standa við neiið – nema það reynist okkur um megn. Þá er
mögulega betra að bakka og ná skynsamlegum samningum um málið með smávægilegu
tilboði um umbun. Loks er líka farsælt að forða bæði okkur og börnum frá aðstæðum sem
virðast ávallt enda í átökum eins og nammibeiðnir í búðinni. Hvernig væri að foreldrar
versli bara barnlausir?
Vilji er sem sagt ekki það eina sem þarf, heldur góður skammtur af skynsemi og fyrir-
hyggju til að hjálpa tveggja ára ósköpunum gegnum nokkur ár af góðum viljaæfingum.
Stöðug átök með boðum og bönnum eða pirringur og
jafnvel reiði við barnið gagnast ekkert.
Er vilji allt sem þarf?
Margrét
Pála
Ólafsdóttir
ritstjórn@
frettatiminn.is
heimur barna
Fáar en skýrar
reglur sem
ávallt er fylgt
og mótaðar eru
jafnharðan á
ævi barnsins
kalla sjaldnast
á átök.
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
VIKAN 23.01.14 - 29.01.14
1 25:2 Mataræðið Unnur Guðrún Pálsdóttir
5 6
7 Vísindabók Villa Vilhelm Anton Jónsson 8
10 Hvar er Valli ? Hollywood Martin Handford9 Fiskarnir hafa enga fætur Jón Kalman Stefánsson
43 Árleysi alda Bjarki Karlsson
Rangstæður í Reykjavík
Gunnar Helgason
Megas textar 1966-2011
Magnús Þór Jónsson
Mótorhjól í máli og myndum
Örn Sigurðsson
HHhH
Laurent Binet
Sandmaðurinn
Lars Kepler
Vinkonurnar Heiður Reynis-
dóttir og Ragnhildur Anna
Jónsdóttir, sem reka netversl-
anirnar pappirsfelagid.is og
jonsdottir.is, munu sameina
krafta sína og hafa opnað versl-
un sem þær hafa kallað Ljúf-
lingsverslun í Álfheimum núna
um helgina þar sem undurfal-
legar vörur fyrir fjölskylduna
verða til sölu. Reyndar hafa vin-
konurnar haft þann háttinn á
að hafa opna verslun eina helgi
í mánuði og er þetta 20. skiptið.
Pappírsfélagið býður fjölbreytt
úrval vandaðra og umhverfis-
vænna pappírsvara og Jónsdótt-
ir & co. býður upp á ungbarna-
línu úr lífrænni bómull þar
sem prentun á samfellurnar er
unnin með vatnsleysanlegum
umhverfisvænum litum. Dæmi
um þær undurfögru vörur
sem verða í boði eru ilmandi
sápur, satínborðar, ungbarna-
samfellur, matreiðslubækur,
dagatöl og pappír. Það verða
gómsætar veitingar í boði. Þeir
sem versla fá kaupauka í tilefni
tímamótanna.
Undurljúf verslun í Álfheimum