Fréttatíminn - 31.01.2014, Síða 50
50 langur laugardagur Helgin 31. janúar–2. febrúar 2014
Miðborgin gróska í veitingahúsageiranuM
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
mánudaginn 3. febrúar, kl. 18
í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg
Jón Engilberts
Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og
fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna.
Verkin verða sýnd í dag föstudag kl. 10–18, laugardag kl. 11–17,
sunnudag kl. 12–17, mánudag kl. 10–17
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Listmunauppboð
í Gallerí Fold
tekk company og habitat
kauptún 3
sími 564 4400
vefverslun á www.tekk.is
opið mánudaga til laugardaga kl. 11-18 og sunnudaga kl. 13-18
bayam sófi
frá habitat
verð157.500 kr.
áður 225.000 kr.
Aðalstræti 10 • sími: 517 7797 • www.kraum.is
i c e l a n d i c d e s i g n
Kol opnar á Skólavörðustíg
Það er Langur laugardagur í miðborginni á morgun og mikið líf. Útsölur eru enn í fjölmörgum
verslunum og opið verður frameftir. Tilvalið er að nota bæjarferðina til að kíkja á spennandi
veitingahús eða kaffihús en nóg er af þeim í bænum. Mikil gróska er í veitingageiranum.
Veitingastaðurinn Kol verður opnaður á Skólavörðustíg í næstu viku. Ljósmynd/Hari
s kólavörðustígurinn er mjög falleg gata, ég er hrifinn af þessum stað,“ segir Óli Már
Ólason veitingamaður. Hann og fé-
lagar hans, Stefán Magnússon og
Andri Björn Björnsson, opna í næstu
viku veitingastaðinn Kol að Skóla-
vörðustíg 40.
Óli Már og Andri reka Vegamót
við Vegamótastíg og eru því engir
nýgræðingar í faginu. Hann kveðst
síður en svo hafa áhyggjur af stað-
setningunni, mikið líf sé í bænum
og Skólavörðustígurinn á mikilli
uppleið. „Hallgrímskirkja er rétt hjá
okkur og það er mikil traffík vegna
hennar. Skólavörðustígurinn er að-
eins öðruvísi en Laugavegurinn, hér
er mikið af listagalleríum og falleg-
um búðum,“ segir Óli.
Leifur Welding og Brynhildur
Gunnarsdóttir hönnuðu Kol. Stað-
urinn er á tveimur hæðum og tekur
um hundrað manns í sæti. Um mat-
reiðslu á staðnum sjá Einar Hjaltason
og Kári Þorsteinsson sem hafa báðir
starfað víða um Evrópu. Miðpunktur
eldhússins er stærðarinnar kolaofn,
og úr honum munu þeir galdra fjöl-
breyttan mat; smárétti, steikur, heil-
grillaðan kjúkling með fyllingu og
sérhannaðan hamborgara svo eitt-
hvað sé nefnt.
Í salnum munu Gunnar Rafn Heið-
arsson og Friðrik Atli Sigfússon
stjórna en þeir hafa meðal annars
verið veitingastjórar á Silfur, Sjávar-
kjallaranum, Turninum, Borg Res-
taurant, Grillinu og Slippbarnum.
Fleiri tíðindi eru af veitingastöð-
um í miðborginni. Jón Örn Angan-
týsson bakarameistari hefur opnað
Kaffi lyst á 2. hæð í Hafnarhúsinu
og er þar opið alla daga frá 10-17.
Þar er boðið upp á ljúffengar súp-
ur, girnilegar bökur, samlokur og
fleira.
Veitingahúsið Við Tjörnina hefur
flutt sig um set, úr Templarasundi
og yfir í Ráðhús Reykjavíkur. Nýja
veitingahúsið opnar á næstu dög-
um. Að sögn Laufars Sigurðar Óm-
arssonar verður hægt að fá létta
rétti yfir daginn en á kvöldin verður
fullbúinn matseðill. Í sal veitinga-
hússins verður einstakt útsýni yfir
Tjörnina.
Þá flytur veitingastaðurinn Dill
sig um set á næstunni. Dill hefur
verið rekinn í Norræna húsinu und-
anfarin fimm ár og notið mikilla vin-
sælda. Nýr Dill-staður verður opn-
aður á Hverfisgötu.