Sveitarstjórnarmál - 01.10.1959, Blaðsíða 43
SVEITARSTJÓRNARMÁL
41
gerð um Samband íslenzkra sveitarfélaga,
tekin saman af formanni sambandsins.
Öðrum tilmælum, sem borizt hafa um
þessi efni hefur sambandið lítið eða ekkert
getað sinnt, aðallega vegna fjárskorts, þar
sem ekki er unnt að inna slíka þjónustu af
hendi nema fyrir hana sé greitt.
★
Hér hefur þá verið getið helztu mála,
sem stjórn sambandsins og fulltrúaráð hafa
haft afskipti af síðan 1955. Nokkrum mál-
um hefur hins vegar lítið eða ekkert verið
hægt að sinna af ýmsum ástæðum, sem ekki
verða raktar liér.
Með hverju árinu sem líður kemst fast-
ara og betra form á starfsemi sambands-
ins, og það lætur til sín taka fleiri og fleiri
mál, sem mikið beint gagn má að verða
fyrir sveitarfélögin öll eða ákveðna hópa
þeirra. Þar til má nefna mál eins og launa-
reglugerðina og stofnun félags til varan-
legrar gatnagerðar, sem bæði eru að kom-
ast í framkvæmd. Og nú liggja fyrir þessu
þingi mál, sem mikla þýðingu geta haft
fyrir sveitarfélög landsins, ef lausn þeirra
tekst vel.
Sambandið hefur nú, hvað húsnæði snert-
ir og starfskrafta miklu betri aðstöðu til
að veita fullkomnari þjónustu en áður hef-
ur verið, og verði fjárhagsgrundvöllur þess
styrktur svo sem gert er ráð fyrir í þeim
tillögum, sem lagðar eru fyrir þetta þing,
getur sambandið enn betur en hingað til
rækt hlutverk sitt fyrir sveitarfélög lands-
ins.
Að fjármálum sambandsins er ekki vikið
sérstaklega í þessari skýrslu, því grein verð-
ur fyrir þeim gerð í sambandi við reikn-
inga sambandsins.