Sveitarstjórnarmál - 01.10.1959, Blaðsíða 65
SVEITARST J ÓRN ARMÁL
63
Bœtur lífeyristryéáiíiáa 1958.
Ársskýrsla lífeyrisdeildar Tryggingastofn-
unar ríkisins fyrir árið 1958 hefur nú verið
tekin saman. Hér verður samkvæmt venju
birt yfirlitsskýrslan, þar sem bótum og
bótaþegum er skipt eftir bótategundum og
tryggingaumdæmum. í skýrslunni er auk
þess sundurliðun bótagreiðslna eftir hrepp-
um, upplýsingar um lífeyrishækkanir, skerð-
ingu lífeyris vegna tekna o. m. fl., sem ekki
verður rakið hér.
Rætur ársins 1958 nema samkvæmt bóta-
skýrslunni 151 millj. kr., en samkvæmt
reikningum, sem útdráttur er birtur úr á
öðrum stað í þessu hefti, námu eiginlegar
bætur lífeyristrygginga 136,6 millj. króna.
Mismunurinn kemur fram á eftirfarandi
hátt:
Þús. kr.
liætur samkvæmt bótaskýrslu .... 151.041
Til öryrkja á Reykjalundi........ 60
Sjúkrasamlagsiðgjöld lífeyrisþega 4.557
Bótagreiðslur samtals 155.658
Frá dregst endurkræfur barnalíf-
eyrir ............................... 14.956
Frá dregst lífeyrir slysatrygginga 1.531
Frá dregst hluti sveitarfél. af líf-
eyrishækk............................. 2.584
Eiginlegar bætur lífeyristrygginga 136.587
Færslur milli ára................... 13
Bætur lífeyristrygginga samkvæmt
reikningum ....................... 136.600
Eins og áður eru við talningu bótaþega
taldir allir þeir, sem einhverra bóta hafa
notið á árinu, og er því fjöldi meiri en
vera mundi, ef talning færi fram á ákveðn-
um degi ársins. Til samanburðar þeim töl-
um, sem í skýrslunni standa, má geta þess,
að sérstök talning fjölskyldubótaþega fór
fram í desember 1958, og reyndust þá 8650
fjölskyldur með 33232 börn á framfæri
njóta fjölskyldubóta, en í skýrslunni er til-
svarandi tala fjölskyldna 9056, og þar eru
börn talin 17411, er svara til 35523 barna
á framfæri, þar eð tvö fyrstu börnin í hverri
fjölskvldu eru ekki talin með.
Börnum, sem barnalíféyrir (óendurkræf-
ur) er greiddur með, fer nú fækkandi. Hef-
ur þeim þannig fækkað um 100 á árunum
1954—1958. Allt öðru máli gegnir um með-
lagsgreiðslur (endurkræfan barnalífeyrir),
og fjölgar þeim börnum ár frá ári, sem
meðlög eru sótt fyrir til Tryggingastofnun-
arinnar. Er talið, að stofnunin hafi annazt
greiðslu með 2648 börnum árið 1954, en
3671 barni árið 1958.
Það er athyglisvert, að enn á engin fjölg-
un ellilífeyrisþega sér stað þrátt fyrir veru-
lega fjölgun aldraðs fólks. Hins vegar fjölg-
ar örorkulífeyrisþegum allmikið, og hið
sama er að segja um fjölskyldubótaþega,
enda fjölgar börnum innan 16 ára aldurs
enn ört. Greiddir fæðingarstyrkir hafa orð-
ið lítið eitt færri 1958 en 1957.
í grein um reikninga Tryggingastofunar-
innar fyrir árið 1958, sem birtist á öðrum
stað í þessu hefti, er greint frá hækkunum
þeim, er urðu á bótafjárhæðum á því ári.
Yfirlitstafla lífeyrisdeildar er á næstu
fjórum síðum.