Sveitarstjórnarmál - 01.03.2004, Síða 16
Borgarfjörður
Úr landbúnaðar- í háskólasamfélag
Ýmsar breytingar hafa orðið á atvinnuháttum og mannlífi í
Borgarfirði á umliðnum árum. Mikil uppbygging á háskólastarf-
semi einkennir þessa þróun þar sem tvö háskólasetur hafa
byggst upp með undraverðum hraða. í tengslum við Viðskipta-
háskólann á Bifröst í Norðurárdal hefur vaxið byggð sem telur
yfir 200 manns með fasta búsetu en allt að 550 manns munu
dvelja að jafnaði við nám og störf lungann
úr árinu og hátt í 300 manna byggð teng-
ist skóla- og vísindasamfélaginu á Hvann-
eyri. Á sama tíma og þessi uppbygging
háskólasamfélags hefur átt sér stað hefur
hinn hefðbundni atvinnuvegur Borgfirð-
inga, landbúnaðurinn, verið að dragast
saman. Mjólkurvinnslu var hætt í Borgar-
Byggö á Bifröst í Noröurárdal hefur vaxiö mjög í
tengslum viö uppbyggingu Viðskiptaháskólans.
einingu sveitarfélaganna vestan Hvítár að Hvítársíðuhreppi und-
anskildum á árunum 1994 og 1998, og Borgarfjarðarsveit, sem
varð til með sameiningu sveitarfélaga austan árinnar, annarra en
Skorradalshrepps. Hin sveitarfélögin tvö eru eldri og minni;
Hvítársíðuhreppur og Skorradalshreppur, sem eru með innan
við 100 íbúa hvort um sig. Samtals töldu þessi fjögur sveitarfé-
lög 3.425 íbúa um síðastliðin áramót en
Borgarbyggð er langfjölmennast þeirra
með 2.589 íbúa. Innan þess sveitarfélags
eru þéttbýlin í Borgarnesi með um 1.800
íbúa og á Bifröst þar sem yfir 200 manns
hafa fasta búsetu en allt að 500 manns
dvelja að staðaldri um skólatímann. Þétt-
býlin á Hvanneyri og á Kleppjárnsreykjum
nesi á árinu 1995 og sauðfjárslátrun á síðasta ári með tilsvar-
andi fækkun starfa sem tengjast vinnslu landbúnaðarafurða.
Þessar breytingar hafa kallað á nýjar þarfir og ný viðhorf sem
snerta sveitarfélögin ekkert síður en aðrar stofnanir og aðila
samfélagsins.
Nú eru að hefjast viðræður fjögurra sveitarfélaga um samein-
ingu í byggðum Borgarfjarðar norðan Skarðsheiðar. Tvö þessara
sveitarfélaga eru ung; Borgarbyggð, sem mynduð var með sam-
og vísir að þéttbýli í Reykholti eru aftur á móti í Borgarfjarðar-
sveit. Þótt skammt sé liðið frá umfangsmikilli sameiningu sveit-
arfélaga í Borgarfjarðarhéraði telja sveitarstjórnarmenn fulla
ástæðu til þess að halda aftur af stað og nú eru hafnar formlegar
viðræður um sameiningu sveitarfélaganna norðan Skarðsheiðar.
Sveitarstjórnarmál áttu leið um Borgarfjörðinn á dögunum.
Stjórnsýslueining af þessari stærð
er ekki mjög sterk
Um 700 manns eru búsettir í Borgarfjarðarsveit þar sem skólasetrið á Hvanneyri og menningarsetur í
Reykholti setja svip á byggðina. Sveinbjörn Eyjólfsson oddviti segir sveitarstjórn þó finna fyrir smæð
sveitarfélagsins þegar kemur
Borgarfjarðarsveit varð til sem sjálfstætt
sveitarfélag og sveitarstjórn var kosin í
fyrsta skipti 1998. Sveitarfélagið var stofn-
að eftir sameiningu Andakílshrepps, Lund-
arreykjadalshrepps, Reykholtsdalshrepps
og Hálsahrepps. Sveinbjörn Eyjólfsson
oddviti segir að þótt gengið hafi verið til
sameiningar á þessum tímapunkti hafi
þessi sveitarfélög og raunar öll sveitarfé-
lögin í ofanverðum Borgarfirði starfað tals-
vert saman innan byggðasamlagsins SSNS
eða Sambands sveitarfélaga norðan
Skarðsheiðar. Byggðasamlagið hefur starf-
að áfram eftir sameininguna 1998 og er
meðal annars samstarfsvettvangur sveitar-
félaganna vegna reksturs grunnskóla á
svæðinu.
út fyrir hin hefðbundnu verkefni.
Finnum fyrir smæð
Sveinbjörn segir að fyrir sveitarstjórnar-
kosningarnar 2002 hafi allir þáverandi
sveitarstjórnarmenn í Borgarfjarðarsveit
ákveðið að hætta störfum. í kjölfarið hafi
aðeins einn framboðslisti verið borinn
fram og því orðið sjálfkjörinn. Hann segir
að ef til vill beri þetta vott um ákveðna
deyfð í sveitarstjórnarmálunum. Nálægðin
sé oft mikil í litlum sveitarfélögum og
kunni það að fæla fólk frá því að gefa sig
að þessum málum. Hann segir einnig að
þrátt fyrir að nýtt fólk með takmarkaða
reynslu hafi komið að málum þá spjari
sveitarfélagið sig allvel. Um 700 manns
eru búsettir í Borgarfjarðarsveit og hefur
íbúafjöldinn staðið nokkuð í stað að und-
anförnu. „Þrátt fyrir stöðugleika í rekstri er
engu að síður Ijóst að stjórnsýslueining af
þessari stærð er ekki mjög sterk. Við get-
um haldið utan um þá starfsemi sem okk-
ur er lögboðin eins og rekstur leik- og
grunnskóla og umsjón félagslegra skyldna.
Þegar kemur hins vegar að stærri verkefn-
um eða auknu hlutverki sveitarfélaganna
þá finnum við fyrir smæðinni og að geta
sveitarfélagsins er takmörkuð. Við höfum
verið að velta um 300 milljónum króna á
ársgrundvelli og af þeim taka skóla- og
leikskólamálin hátt í 170 milljónir. Þá eru
önnur verkefni eftir, verkefni á borð við
félagsþjónustuna og rekstur skrifstofu
sveitarfélagsins. Þegar kostnaður vegna
þeirra hefur verið greiddur er ekki mikið