Sveitarstjórnarmál - 01.08.2004, Blaðsíða 6
Fréttir
Bæjarhlið
að Seltjarnarnesi
Seltirningar hafa unnið að því að fegra að-
komuleiðir að sveitarfélaginu með því að
setja upp svokölluð bæjarhlið. Nú eru
langt komnar framkvæmdir við nýtt bæjar-
hlið við Nesveg en í fyrrasumar var reist
hlið við Eiðsgranda, sem ku hafa vakið at-
hygli og ánægju íbúa Seltjarnarness. Að-
koman að Seltjarnarnesi er mun fallegri
og snyrtilegri með nýju hliðunum auk
þess sem bæjarmörk verða skarpari.
Bæjarhliðið við Nesveg verður mun
minna um sig en Eiðsgrandahliðið enda
var við hönnun þess tekið mið af um-
hverfinu við Nesveg sem ekki býður upp á
stórt mannvirki. Stefnt er að því að Ijúka
framkvæmdum við hliðið fyrri hluta
sumars.
1| 'iM 11 il
s i 1
Gjaldtökuheimildir rýmkaðar
og sveigjanleiki aukinn
Gjaldtökuheimildir vatnsveitna eru
rýmkaðar og sveigjanleiki í stjórnun þeirra
aukinn samkvæmt lögunum um vatnsveit-
ur sveitarfélaga, sem samþykkt voru á
lokadögum Alþingis nú í vor.
Helstu breytingar með nýjum lögum
eru annars vegar að í 7. grein laganna er
mælt fyrir um að notkunargjald, áður
aukavatnsgjald, skuli greiða af allri at-
vinnustarfsemi og allri vatnsnotkun, sem
ekki flokkast undir venjulega heimilisnotk-
un óháð umfangi notkunarinnar. Einnig er
tekið fram að heimilt sé að taka tillit til
fjármagnskostnaðar og fyrirhugaðs stofn-
kostnaðar í gjaldskrá vatnsveitu og jafn-
framt að skipta starfssvæði vatnsveitu í
veitusvæði með sérstaka gjaldskrá fyrir
hvert svæði. Þá er þessum lagabreytingum
einnig ætlað að auka sveigjanleika í stjórn
og rekstri vatnsveitnanna, meðal annars
með heimildum til þess að ráðstafa einka-
rétti sveitarfélaga til reksturs veitna. Kveð-
ið er á um að sveitarstjórn geti falið stofn-
un eða fyrirtæki, sem að meirihluta er í
eigu rfkis eða sveitarfélaga einkarétt sinn á
rekstri vatnsveitu og sölu vatns. Virkjunar-
leyfi til raforkuframleiðslu verða aðeins
veitt sjálfstæðum lög- og skattaðila og er
sveitarfélögum unnt eftir lagabreytinguna,
ef svo ber undir, að reka í einu félagi
vatnsveitu, hitaveitu og rafveitu. Skyldur
vatnsveitna eru samkvæmt lögunum ein-
ungis auknar á einu sviði er varðar eignar-
hald og viðhaldsskyldur á heimæðum þar
sem lagt er til að sveitarfélagi sé skylt að
yfirtaka heimæð komi fram skrifleg beiðni
þess efnis frá eiganda hennar.
200 milljónir til
ar grunnskóla á
Með breytingu á tekjustofnalögum sveit-
arfélaga á lokadögum Alþingis var
ákveðið að veita 200 milljónir króna úr
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á þessu ári til
að Ijúka framkvæmdum við einsetningu
grunnskólans og 135 milljónir kr'óna á
árinu 2006.
Með lögum nr. 60/2002, um breyt-
ingu á lögum um tekjustofna sveitarfé-
laga, var ákveðið að veita samtals 735
millj. kr. á árunum 2002-2005 úr Jöfnun-
arsjóði sveitarfélaga til að Ijúka átaki til
einsetningar grunnskólans í sveitarfélög-
einsetning-
þessu ári
um með fleiri en 2.000 ibúa. Síðan kom
í Ijós að enn vantaði tæpar 200 milljónir
króna upp á að sveitarfélög gætu lokið
framkvæmdum sem þau eiga rétt á að fá
styrktar samkvæmt reglum sjóðsins. Með
því að gildistími bráðabirgðaákvæðis IV
er framlengdur um eitt ár mun lögbund-
ið framlag til Lánasjóðs sveitarfélaga
renna til verkefnisins líkt og undanfarin
ár. Koma 200 milljónir til greiðslu á ár-
inu 2005, í stað 135 milljóna samkvæmt
gildandi lögum, og 135 milljónir á árinu
2006.
6