Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 22.03.2007, Blaðsíða 20

Sveitarstjórnarmál - 22.03.2007, Blaðsíða 20
Viðtal mánaðarins Frístundakortin eru bylting Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi og formaður borgarráðs, segir að frístundakortin, sem Reykjavík- urborg er að taka í notkun, verði bylting sem skipa muni Reykjavíkurborg í röð allra fremstu sveitarfé- laga í landinu. Með kortunum sé verið að gera börnum í borginni kleift að taka þátt í tómstundum, íþróttum og listnámi, algerlega óháð efnahag og aðstæðum foreldra og forráðamanna. Björn Ingi er í viðtali mánaðarins að þessu sinni. Björn Ingi Hrafnsson, formaður borgarráðs, með son sinn í fanginu. Myndin er tekin á 100 ára afmæli ÍR fyrir skömmu. Þegar Björn Ingi gaf kost á sér til setu í borgarstjórn fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar hafði hann komið að stjórnmálum með ýms- um hætti. Hann hefur verið vara- þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður undanfarið kjörtímabil og einnig starfað sem framkvæmda- stjóri þingflokks framsóknarmanna og aðstoðarmaður utanríkisráð- herra og forsætisráðherra. „Ég byrjaði í þjóðmálunum, bæði sem varaþingmaður og einnig með því að sinna störfum fyrir þingflokk og síðar ráðherra, en breytti svo um. Ég veit ekki hversu lengi ég kem til með að starfa í pólitík en ég hef gaman af þessu eins og er. Ég lít ekki á pólitík sem ævistarf. Ég vann við fjölmiðla og nokkuð við skriftir áður en ég fór að fást við þjóðmálin og borgar- málin sem bera hæst ber hjá mér núna í augnablikinu. Ég starfaði reyndar í skipulags- og byggingar- nefnd Reykjavíkur áður en að ég ákvað að gefa kost á mér til setu í borgarastjórn fyrir síðustu kosning- ar. Ég hætti störfum þar þegar nefndin var lögð niður og nýtt skipulags- ráð tók við hlutverki hennar. Mér fannst það skemmtileg reynsla að taka þátt í að skipuleggja ný svæði og hverfi. Nándin í sveitarstjórnarmál- unum er áhugaverð og oft er auðveld- ara að láta verkin tala á sveitarstjórn- arstiginu en með setu á Alþingi. Árangur vinnunnar kemur fljótar fram því allt er þyngra í vöfum sem fer í gegnum Alþingi og tekur lengri tíma að skila sér á hið verklega stig. í borgarstjórn gefst manni Iíka kostur á að ræða við borgar- búa augliti til auglitis því margir koma til borgarfulltrúanna með fjölbreytt erindi." Styrkja þarf miðborgina Auk formennsku í borgarráði gegnir Björn Ingi formennsku í Hafnarstjórn Reykjavík- urborgar og í ÍTR. Mörg mál tengjast því setu hans í borgarstjórn og nefndum borgarinnar. „Sem formaður hafnarstjórn- ar finnst mér verkefnin á Mýrargötusvæð- inu mjög áhugaverð og einnig þær hug- myndir sem við erum að vinna að um uppbyggingu í Örfirisey þar sem miklar framkvæmdir eru fyrirhugaðar. í málefna- skrá okkar í borgarstjórnarmeiri- hlutanum gerum við ráð fyrir fjór- um svæðum til íbúðabygginga í borginni. Þau eru í Úlfarsárdaln- um, Vatnsmýrinni, á Geldingar- nesi og í Örfirisey þar sem við ætlum að skipuleggja íbúðabyggð nú á kjörtímabilinu. Hvert kjör- tímabil er fljótt að líða og ef menn vilja koma einhverju í framkvæmd verður að hafa snör handtök. Við erum á fullri ferð í þessu starfi og nú stendur yfir alþjóðleg sam- keppni um skipulag Vatnsmýrar- innar og einnig er unnið á fullu við skipulag í Örfirisey. Stór fyrir- tæki á borð við Þyrpingu og Björgun hafa kynnt hugmyndir um landfyllingar og nú er verið er að skoða þær. Á bak við uppbyggingu í Örfis- ey og íVatnsmýrinni eru hug- myndir um hvernig hægt er að styrkja miðborgina og treysta bak- stoðir hennar beggja vegna. Á sama tíma erum við að þróa nýtt úthverfi í Úlfarsárdal, sem líkjast mun Fossvoginum að því leyti að hverfið er byggt í suðurhlíðum. Með því viljum við gefa venjulegu fólki kost á að eignast lóðir í afmörkuðu út- hverfi vegna þess að staðreyndin er sú að þau lóðauppboð, sem þróast höfðu hjá Reykjavíkurborg, voru farin að fæla margt fólk frá því að sækja um lóðir. Ég tel mið- ur að svo hafi farið vegna þess að í mín- um huga eru það grundvallarréttindi að fólk geti byggt þar sem það vill og sveitar- félögin eiga að stuðla að því án þess að vera að maka krókinn á lóðaúthlutunum með þeim hætti sem gert var." Atvinnufyrirtæki meðfram Reykjanesbrautinni Eitt þeirra borgarhverfa, sem mörgum íbú- um hefur fundist að hafi staðið í stað að undanförnu, er Breiðholtið. Björn Ingi „í borgarstjórn gefst manni líka kostur á að ræða við borgarbúa augliti til auglitis því margir koma til borgarfulltrúanna með fjölbreytt erindi." SFS 20 TÖLVUMIÐLUN www.tm.is

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.