Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 22.03.2007, Síða 21

Sveitarstjórnarmál - 22.03.2007, Síða 21
Hér sér til suðurs frá Seljakirkju í Breiðhohi yfir ÍR-svæðið en þar eru miklar framkvæmdir fyrirhugaðar á næstunni. flutti þangað úr Vesturbænum fyrir um tveimur árum og því liggur beint vib að spyrja hann hvort fyrirhugaðar fram- kvæmdir og uppbygging í Breiðholtinu eigi rætur að rekja til þess að þetta sé orðið hverfið hans. „Breiðholtið á ekki að líða fyrir það að við Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson borgarstjóri búum þar ogVil- hjálmur sé raunar frumbýlingur f hverf- inu. Ýmsum hefur fundist að nokkur stöðnun hafi orðið í Breiðholtinu eftir að hverfið byggðist. Þróun Breiðholtsins er þó á engan hátt lokið og margt er að ger- ast sem ánægjulegt er að verða vitni að. Við höfum lagt mikla áherslu á að hreinsa til í hverfinu og gera ákveðna bragarbót á frágangi opinna svæða. Ennfremur er mikil uppbygging að hefjast í Suður- Mjóddinni þar sem stórt íþróttahús mun rísa. Ég held að það geti orðið góð mið- stöð fyrir allt Breiðholtið því með þessu húsi gefst tækifæri til þess að tengja sam- an hefðbundið íþróttastarf og ýmiss konar félagsstarf í öllu hverfinu. Við erum einnig að þróa hugmyndir um breytingu á skipulagi í Suður-Mjódd- inni með aukna uppbyggingu öldrunar- þjónustunnar fyrir augum. Að mínu viti er þar um stórt og brýnt mál að ræða eins og staða öldrunarmála er nú og flestir þekkja af umræðum undanfarinna mán- aða. í þessu sambandi erum við einnig að kanna möguleika á því að byggja yfir at- vinnufyrirtæki meðfram Reykjanesbraut- inni og auka þannig atvinnulíf í hverfinu." Borgarhverfin eru í sífelldri endurskoðun Björn Ingi segir að fara verði með gát hvað það varðar að flytja atvinnulíf inn í hverfi sem er búið að vinna sér hefð sem íbúðabyggð. Hins vegar megi aldrei líta svo á að þróun einhvers borgarhluta eða hverfis sé lokið þótt byggingarlandið sé vel nýtt. „Borgarhverfin eru í sífelldri end- urskoðun og þróun og þótt við séum að kanna þetta með aukið atvinnulíf fyrir augum þá stendur engin sú uppbygging fyrir dyrum í Breiðholtinu sem rýrir lífs- gæði fólksins sem býr þar. Ég sé enga ástæðu til þess vegna þess að ég held að í grunninn sé fólk almenn ánægt með Breiðholtið sem hverfi og heimkynni þótt alltaf megi finna einhverjar undantekning- ar. Ég tel að byggja megi upp meiri at- vinnustarfsemi í Breiðholtinu án þess að raska því jafnvægi sem hverfið byggir á. En við erum opin fyrir öllum möguleikum til þess að styrkja Breiðholtið, hvort sem er með nýrri atvinnustarfsemi eða mögu- leikum til íþrótta- og félagslífs eins og raunar önnur hverfi í borginni." Eftirsóttustu útsvars- greiðendurnir fóru Reykjavfkurborg hefur þanist nokkuð mik- ið út með nýjum og nýjum úthverfum. Af því vaknar spurning um hvort borgarbúar og jafnvel íslendingar almennt séu út- hverfasæknir. „Að nokkru leyti eru þeir það og ég held að það eigi einkum við fólk á vissu aldursbili. Ég sóttist sjálfur eft- ir því að búa í miðborginni og nágrenni hennar fyrir nokkrum árum. Ég kunni því vel að geta labbað um bæinn og jafnvel í vinnuna. En nú þegar ég er kominn með börn sem þurfa að leika sér úti þá koma aðrar þarfir og aðrir möguleikar. Þá skiptir gott leiksvæði og rými fyrir börnin miklu máli og mun meira er um slík rými í út- hverfum en á miðborgarsvæðinu. Þegar börnin eru uppkomin þá hallar fólk sér stundum að miðbæjarbúsetu að nýju til þess að nýta sér nálægðina við þjónustu og margs kyns mannlíf sem þar er að finna." Björn Ingi segir að tryggja verði fólki val. „Að und- anförnu hefur skort lóðir fyrir sérbýli í Reykjavík og við verð- um að gera bragarbót á því og auka fram- boðið. Staðreyndin er sú, hverju sem það er um að kenna, að barnafólki hefur fækkað í Reykjavík því fólk á þeim aldri hefur verið að flytja í nágrannasveitarfé- lögin. Oft er það svo að þessi hópur fólks er sá tekjuhæsti og hefur stundum verið kallaður eftirsóttustu útsvarsgreiðendurnir. Því er alveg Ijóst að tekjur nágrannasveit- arfélaganna hafa verið að aukast á kostn- „Við eigum gnægð af heitu vatni hér á landi og spyrja má hvers vegna við höfum ekki notað það meira." Frá Mýrargötu. Þar sem áður var gert við skip verður ráðist í íbúðabyggð á næstunni. tölvumiðlun H-Laun www.tm.is 21

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.