Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 22.03.2007, Side 22

Sveitarstjórnarmál - 22.03.2007, Side 22
Viðtal mánaðarins að Reykjavíkurborgar vegna þessa. í stað þess að vísa fólki úr borginni með þess- um hætti á Reykjavíkurborg að leggja áherslu á að vera góður búsetukostur fyrir alla." Frístundakortin eru bylting Björn Ingi segir ánægjulegt sjá hversu mikill hraði sé á þeirri uppbyggingu sem meirihlutaflokkarnir í borgarstjórn eru að beita sér fyrir. „í kosningabaráttunni kynntum við hugtakið athafnastjórnmál, sem má útleggja að láta verkin tala. Flokkarnir náðu síðan góðri samstöðu um það og sem dæmi um að þessu hefur ver- ið veitt eftirtekt get ég nefnt að við Vil- hjálmur fengum ábendingu frá sveitar- stjórnarmanni utan af landi á dögunum þess efnis að við færum nú heldur hratt yfir. Við værum annað hvort búnir að efna allt sem stæði í málefnaáherslunum eða setja það í farveg. Hann taldi að við ætt- um að dreifa þessu meira á kjörtímabilið til þess að við hefðum eitthvað að gera á síðari hluta þess!" Björn Ingi nefndi nokkur dæmi um verkefni sem hafin eru, þar á meðal í málum eldri borgara og síðan frístunda- kortin, sem verða í boði fyrir öll börn og ungmenni í borginni á aldrinum sex til 1 8 ára á komandi sumri. „Frístundakortin eru risastórt mál sem skipa mun Reykjavíkur- borg í röð allra fremstu sveitarfélaga í landinu. Með kortunum erum við að gera börnum í borginni kleift að taka þátt í tómstundum, íþróttum, listnámi og öðru slíku, algerlega óháð efnahag og aðstæð- um foreldra og forráðamanna. Eg tel að í þessu felist hrein þjóðfélagsbyIting enda töldu margir að með þessu væri verið að leggja nokkuð mikið í hlutina. En ég er ákaflega stoltur af að standa að þessu verki og að meirihluta sem er umhugað um verklegar framkvæmdir eins og skipu- lagningu íbúðahverfa og atvinnusvæða en hugsar á sama tíma um velferð fólksins með aðgerðum á borð við frístundakortin. Þverpólitísk samstaða myndaðist einnig í borgarstjórn um málið sem ekki er al- gengt að gerist í borgarstjórn Reykjavík- ur." Þurfum að laða fleira fólk að sundstöðum Nú er afstaðin mikil IR-hátíð í tilefni af 100 ára afmæli félagsins. Á árdögum Breiðholtsins var sú ákvörðun tekin að flytja meginstarfsemi þess þangað þar sem hún hefur dafnað síðan. „Ég tel tví- mælalaust hagstætt að tengja íþróttafélög- in í borginni við sérstök hverfi með þess- um hætti. íþróttafélögin hafa mikið upp- eldislegt gildi og starf þeirra verður öfl- ugra og nær að mínu viti til mun fleiri með þessum hætti. Reykjavíkurborg var að afhenda ÍR nýjan gervigrasvöll f tilefni af 100 ára afmælinu og sú uppbygging, sem borgin er að hefja á ÍR svæðinu í Suður-Mjódd, er liður í að efla þetta fé- lags-, heilsu- og uppeldisstarf." Björn Ingi segir fyrirhugað að flytja at- hafnasvæði íþróttafélagsins Fram í Úlf- arsárdalinn þegar byggðin þar fer að rísa. Þar eigi auk þess að byggja fullkomna sundaðstöðu með vatnsrennibrautum. „Við höfum verið að íhuga hvernig hægt sé að laða fleira fólk að sundstöðum," segir hann og bendir á að Árbæjarlaugin hafi lengi verið ein vinsælasta sundlaugin í Reykjavík. „Hins vegar er það svo að nýjar sundlaugar draga gjarnan til sín fólk og þá ekki síst fjölskyldu- og barnafólk og við viljum reyna að koma til móts við þann áhuga og þarfir. Við eigum gnægð af heitu vatni hér á landi og spyrja má hvers vegna við höfum ekki notað það meira. íslendingar sækja til dæmis mikið þessa stóru sundgarða á ferðum erlendis og busla þar í hálfköldu vatni. Maður hlýtur að spyrja sig af hverju við getum ekki byggt svona aðstöðu hér heima, með allt okkar heita vatn frá náttúrunnar hendi. Ég er viss um að sundsetrið í Úlfarsárdalnum á eftir að slá í gegn." Fólkið er víðar en í 101-um Björn Ingi flutti tillögu í borgarráði um að selja húseign borgarinnar við Fríkirkjuveg 11 á síðasta ári. Hann segir að tillagan hafi ekki verið óumdeild en fleiri hafi þó talið hana skynsamlega. „Þetta húsnæði hentaði ekki nægilega vel því nútímalega starfi ÍTR sem þar er til húsa. Fríkirkjuveg- ur 11 er hins vegar virðulegt hús og er nú komið í hendur afkomenda Thors Jensens, sem byggði það á sínum tíma. Þeir ætla nú að viðhalda húsinu af miklum metn- aði og koma þar á fót safni þannig að fólk mun fá mun meira aðgengi að því en nú er. Við erum búin að velja ITR framtíðar- húsnæði í húsi Orkuveitu Reykjavíkur við Bæjarháls, sem mér finnst tímanna tákn. Nú kynnu einhverjir að halda því fram að stjórnsýsla borgarinnar ætti öll að vera á einum stað í miðborginni. Á móti því vil ég benda á að fólkið er víðar en við Tjörnina og í 101-um. Reykvíkingar búa á stóru svæði og með þessu erum við að reyna að nálgast þá fjölbreytni sem er í byggð borgarinnar. Þetta svæði gegnt Ár- bænum var eitt sinn útnári en er löngu orðið miðsvæðis í borgarbyggðinni þegar við lítum yfir hana sem eina heild. Þetta er skýrt dæmi um breytingar þar sem byggð er að vaxa og sveitarstjórnir verða að taka mið af þeim í störfum sínum á hverjum tíma," segir Björn Ingi Hrafnsson að lokum. Nýtt sjónarhom á Reykjavík. Myndin er tekin á Geldingarnesi þar sem áformað er að rísi íbúðabyggð. SFS 22 Ö TÖLVUMIÐLUN www.tm.is

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.