Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 22.03.2007, Qupperneq 24

Sveitarstjórnarmál - 22.03.2007, Qupperneq 24
Fjármál sveitarfélaga Ríki og sveitarfélög Gunnlaugur Júlíusson, sviðsstjóri Hag- og upplýsingasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga, heldur hér áfram að fjalla um fjármál sveiíarfélaga og fer í þessari grein yfir mismunandi aðstöðu ríkis og sveitarfélaga. Ríkissjóður hefur á ýmsan hátt notið góð- ærisins betur en sveitarfélögin. Fyrir utan auknar tekjur af tekjuskatti vegna minna atvinnuleysis og aukins kaupmáttar þá hafa tekjur ríkisins, til dæmis af fjár- magnstekjuskatti, vaxið verulega. Tekjur þess af veltusköttum hafa einnig vaxið verulega. Sveitarfélögin hafa fengið aukn- ar tekjur gegnum tekjuskattinn og einnig hafa þau fengið auknar tekjur af fast- eignaskatti vegna hækkandi fasteigna- verðs í þeim sveitarfélögum þar sem íbú- um hefur fjölgað. Á hinn bóginn er eini snertiflötur þeirra við aukningu á veltu- sköttum og fjármagnstekjuskattinn í gegn- um jöfnunarsjóðinn. Með hliðsjón af þessu er fróðlegt að bera saman þróun tekna og gjalda hjá ríki og sveitarfélögum á árunum 2002-2005. Það kemur fram í mynd 5. Á mynd 5 kemur fram að tekjur ríkis- ins hafa vaxið hlutfallslega mun meira en tekjur sveitarfélaganna á tímabilinu. Sömuleiðis höfðu útgjöld ríkisins vaxið hlutfallslega meira en útgjöld sveitarfélag- anna fram á árið 2004 en árið 2005 juk- ust útgjöld sveitarfélaganna hlutfallslega meira en útgjöld ríkisins. Neikvæður tekjujöfnuður utan höfuðborgarsvæðisins í framhaldi af þessu er rétt að skoða tekjujöfnuð sveitarfélaganna. Þá er fundin út fjárþörf sveitarfélaganna þegar tekið hefur verið tillit til fjárfestinga eftir að rekstrarniðurstaða liggur fyrir. Eftekjujöfn- uður er neikvæður eftir að tekið hefur verið tillit til fjárfestinga þarf að taka lán eða selja eignir til að uppfylla heildar- fjárþörfina. Niðurstaðan kemur fram í mynd 7. Tekjujöfnuður er neikvæður í öllum til- vikum hjá sveitarfélögunum nema hjá höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur á árinu 2005. Tekjujöfnuður er minnst nei- kvæður hjá „öðrum sveitarfélögum" en hann er mest neikvæður hjá Reykjavíkur- borg og á „vaxtarsvæðum". Þar eiga sveit- arfélögin því minnst handbært fé sem skal ganga til fjárfestinga og afborgana lána. Gunnlaugur lúlíusson. Fjármálaleg þróun í þessari samantekt kemur fram greining á fjármálalegri þróun sveitarfélaganna á ár- unum 2002-2005. Hún er gerð bæði á fjárhag sveitarfélaganna í heild sinni og einnig er þeim skipt niður í fjóra flokka og einn undirflokk til að fá gleggri yfirsýn um stöðu þeirra. Til samanburðar er greind tekju- og gjaldaþróun hjá ríkinu á sama tímabili. í Ijós kemur að þróunin á þessum árum er mjög mismunandi innan sveitar- félagageirans. Afkoma þeirra sveitarfélaga sem liggja á þenslusvæðum hefur batnað verulega og íbúafjöldi þeirra aukist á sama tíma og afkoma og fjárhagsleg staða þeirra sveitarfélaga sem liggja utan Mynd 5. Hlutfalsleg þróun tekna og útgjalda hjá ríki og sveitarfélögum. Heimild: Ársreikningar sveitarfélaga og Haustskýrsla fjármálaráðuneytisins Mynd 7. Tekjujöfnuður sveitarfélaga. SFS 24 TÖLVUMIÐLUN www.tm.is

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.