Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 22.03.2007, Page 25

Sveitarstjórnarmál - 22.03.2007, Page 25
þenslusvæða hefur versnað samtímis sem íbúum hefurfækkað þar. Tekjur ríkisins hafa aukist hiutfallslega mun meira á tímabilinu en hjá sveitarfélögunum en gjöld sveitarfélaganna höfðu vaxið meira í lok tímabilsins. Vandi þorpanna Þorpin eru dregin sérstaklega út úr flokknum „önnur sveitarfélög". Þar eru tekin sérstaklega þau sveitarfélög sem hafa byggt upp ákveðna samfélagsgerð með fjölþættu framboði á þjónustu. Þessi sveitarfélög freista þess að reyna að halda í við hin sterkari og fjölmennari varðandi uppbyggingu á margháttaðri þjónustu enda þótt fjárhagslegur styrkleiki sé tæp- lega fyrir hendi í mörgum tilvikum. Erfið staða þeirra kemur glöggt í Ijós í þessari samantekt. Stærðar-, legu- og aðstöðu- munur sveitarfélaga í samantekt hér að framan er sveitarfélög- unum skipt í fjóra yfirflokka og síðan er þeim síðasta skipt upp enn frekar. Mark- mið þessarar skiptingar er að fá gleggra yfirlit um afkomu sveitarfélaganna þar sem tillit er tekið til þess mikla munar sem er á milli stærðar, legu og aðstöðu einstakra sveitarfélaga. Á þennan hátt á að fást betra yfirlit um stöðu sveitarfélaga- geirans og hvar skórinn kreppir fyrst og fremst að í efnahagslegu og samfélagslegu tilliti. Reykjavík er tekin sérstaklega út vegna stærðar sveitarfélagsins og sérstöðu. Höf- uðborgarsvæðið er síðan skilgreint sér- staklega vegna nálægðar sinnar við Reykjavík. Vaxtarsvæðið nær yfir þau sveitarfélög utan höfuðborgarinnar þar sem íbúum hefur fjölgað mest og umsvif eru mikil. Síðasti flokkurinn, „Önnur sveitarfé- lög" er krufinn enn dýpra og þorp og þéttbýliskjarnar í þeim flokki skoðaðir sérstaklega. Ástæða þess er að þéttbýlis- staðirnir víða um land gegna veigamiklu hlutverki um að veita íbúum sveitarfélags- ins og nærsveita þá þjónustu sem nauð- synleg er talin í dag. Gerðar eru kröfur til þeirra um að þau standi stærri sveitarfé- lögum snúning er varðar þjónustufram- boð til að íbúarnir leiti ekki brott vegna lakari þjónustu. Þessi samfélög hafa á liðnum árum víða orðið fyrir verulegum áföllum vegna mikilla breytinga í atvinnu- lífi þjóðarinnar. Það hefur leitt til þess að tekjugrunnur þeirra hefur veikst og íbúum fækkað. Því eru þær miklu kröfur, sem gerðar eru til þeirra, mörgum þeirra erfið- ar fjárhagslega. Greining mismunar Það er Ijóst að fyrrgreind skipting er að hluta til gerð eftir tilfinningu og huglægu mati en í öllum aðalatriðum nær hún að leiða í Ijós þann mun sem er á milli einstakra hópa íslenskra sveitarfélaga og hvaða þróun hefur orðið innan þeirra á síðustu fjórum árum. Þannig er hægt að átta sig á þeim höfuðlínum sem eru fyrir hendi innan íslenskra sveitar- félaga. rafhlöðum Fréttir Átak í söfnun á Samkvæmt könnun sem Capacent hefur gert fyrir Úrvinnslusjóð safna um 22% landsmanna notuðum rafhlöðum til úrvinnslu. Innan tíðar mun tilskipun Evrópusambandsins um skil á rafhlöð- um verða innleidd hér á landi en hún kveður á um að skilahlut- fall þeirra verði komið í 25% á árinu 2012 og í 45% á árinu 2016. Þetta kom fram á fundi þar sem Úrvinnslusjóður hleypti af stað kynningarátaki vegna söfnunar á ónýtum rafhlöðum. Söfnunarátakinu er ætlað að auka vitund almennings um mik- ilvægi þess að rafhlöðum sé skilað og kynna fólki auðveldar leið- ir til þess að losa sig við þær. Auk Úrvinnslusjóðs standa Olís, Efnamóttakan, Gámaþjónustan og Hringrás að kynningarátakinu. Einungis 21 % skilað! Talið er að einungis 37 tonnum af 151,5 tonnum af rafhlöðum sem fluttar voru til landsins á árinu 2005 hafi verið skilað. Er það um 21% af allri rafhlöðunotkun landsmanna. Um 124 tonn af notuðum rafhlöðum hafa því að öllum líkindum farið beint f sorpílát og verið urðuð með öðru sorpi. Þær leiðir sem boðið er upp á til þess að losa sig við rafhlöður, með umhverfisvænni hætti en að henda þeim í ruslatunnur, er að skila þeim til söfn- unarstöðva sveitarfélaga um allt land. Einnig er hægt að setja þær í endurvinnslutunnur fyrir flokkað heimilissorp. Þá er einnig hægt að skila notuðum rafhlöðum til bensínstöðva. Unnt er að finna upplýsingar um hvernig losna má við notað- ar rafhlöður og staðsetningar úrvinnslustöðva á vef Úrvinnslu- sjóðs, www.urvinnslusjodur.is og einnig má þar finna ýmis svör við spurningum um innihald rafhlaða og áhrif spilliefna á um- hverfið. Rafhlöður eru fluttar frá söfnunarstöðvum til Efnamóttök- unnar eða Hringrásar þar sem þær eru flokkaðar. Sá hluti þeirra sem ekki inniheldur spilliefni er síðan urðaður en rafhlöður sem innihalda skaðleg spilliefni eru sendar til Danmerkur þar sem þeim er eytt með háhitabrennslu hjá viðurkenndum eyðingar- aðila. Til gamans má geta þess að sá hiti sem myndast við brennslu hjá þeim aðila er nýttur til framleiðslu rafmagns og hitunar vatns sem síðan er notað til húsahitunar hjá sveitarfélaginu Nýborg. Ólafur Kjartansson, framkvæmdastjóri Úrvinnslusjóðs, kynnir söfnunarverkefn- ið. Kynningin fór fram ! Kaffi Flóru í Laugardal fyrir nokkru. tölvumiðlun H-Laun www.tm.is 25

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.