Sveitarstjórnarmál - 22.03.2007, Page 32
Sveitarfélagið Álftanes
Álftanes einkennist enn af sérbýlum en fyrir nokkrum árum byggöi Búseti nokkuö af fjölbýlishúsum á nesinu. Nú er í ráöi aö fjölga búsetukostum.
Sigurður segir öflugt tónlistarlíf á Álfta-
nesi, öflugan tónslistarskóla starfandi og
mikið um tónlistarkennslu í grunnskólan-
um og nú hafi nýr meirihluti í sveitar-
stjórninni áform um að efla aðrar list-
Fjölmargt á
í þriggja ára fjárhagsáætlun Sveitarfé-
lagsins Álftaness er gert ráð fyrir að
grunnskóli sveitarfélagsins verði full-
byggður á árunum 2008 til 2020 og geti
þjónað allt að 600 skólabörnum. Á
sama tíma er áætlað að byggja upp
framtíðarhúsnæði fyrir tónlistarskólann,
sem tengt verði við húsnæði grunnskól-
ans. Þá eru uppi áform um að taka mið
af eflingu annars listnáms við hönnun
skólahúsnæðis. Kostnaður við grunn-
skólamannvirki á þessu tímabili er áætl-
aður um 600 milljónir króna.
í þriggja ára áætluninni er gert ráð
fyrir umtalsverðum framkvæmdum á
sviði íþróttamála auk eflingar unglinga-
starfs. Gerður hefur verið samningur við
Fasteign um byggingu sundlaugarmann-
virkja og stækkun íþróttamiðstöðvarinn-
ar. Þessar fjárfestingar eru áætlaðar um
700 milljónir króna og verða unnar í
einkaframkvæmd. Þá er gert ráð fyrir
byggingu gervigrasvallar á tímabilinu.
greinar. „Við erum með hugmynd um að
koma á fót fjöllistaskóla fyrir börn og
unglinga. Eftir að hafa lyft tónlistinni upp
langar okkur að taka sjónlistir, bókmennt-
ir og leiklist og efla starfsemi þeirra
í áætluninni er gert ráð fyrir byggingu
þjónustumiðstöðvar fyrir eldri borgara í
samstarfi við Búmenn. Áform eru um
eflingu heimaþjónustu og byggingu
íbúða þar sem miðaldra og eldra fólki
verða boðnir fjölbreyttari búsetumögu-
leikar en nú eru fyrir hendi á Álfta-
nesi.
Nýtt stjórnsýsluhús er eitt af því sem
áætlað er að ráðast í byggingu á fyrir lok
tímabilsins 2010. Enn er ekki ákveðið
með hvaða hætti það verður gert en það
mun fara að nokkru eftir því hverjar nið-
urstöður nýs deiliskipulags verða og
hvaða samninga sveitarfélagið kann að
gera við fjárfesta. Þá má geta átaks í um-
hverfismálum og framkvæmdum við úti-
vistarsvæði.
Loks er gert ráð fyrir kaupum á landi
til þess að fylgja eftir áherslum um frið-
un strandsvæða, votlendis og opinna
svæða á Álftanesi.
einnig, þannig að menningar- og listalíf á
eftir að blómstra hér."
Skatttekjur aukast samhliða
uppbyggingu á miðsvæðinu
Nýlega var gengið frá þriggja ára fjárhags-
áætlun sveitarfélagsins þar sem tekið er
tillit til þeirrar uppbyggingar sem ráðist
verður í á tímabilinu. „í áætluninni byggj-
um við á reynslu af rekstri fyrri ára og
einnig á íbúaspá fyrir tímabilið. Við þurf-
um að breikka skattstofninn og styrkja
með auknu atvinnulífi sem skilar ein-
hverjum tekjum til sveitarfélagsins. Við
gerum ráð fyrir að nokkur árangur náist í
bættum rekstri og einnig að skatttekjur
aukist nokkuð samhliða uppbyggingunni
á miðsvæðinu. Við gerum ennfremur ráð
fyrir að skatttekjur, tekjur frá Jöfnunarsjóði
sveitarfélaga og þjónustutekjur nái að
standa undir rekstri aðalsjóðs en óreglu-
legar tekjur, sem tengjast uppbyggingu
nýrra íbúða og þjónustusvæða, geti geng-
ið til skólabyggingar og annarra þjónustu-
bygginga auk annarra framkvæmda.
Ef þessi áætlun gengur eftir verða skóli
og íþrótta- og þjónustumannvirki byggð í
samræmi við íbúaþróun, hagræðingu
verður náð í rekstri og skuldir lækkaðar.
Með því viljum við leggja grunn að bættri
þjónustu til lengri tíma," segir Sigurður
Magnússon, bæjarstjóri á Álftanesi.
dagskrá
SFS
32
TÖLVUMIÐLUN
www.tm.is