Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 22.03.2007, Qupperneq 34

Sveitarstjórnarmál - 22.03.2007, Qupperneq 34
Skólamál Heimildir: Anna Þóra Baldursdóttir. 2000. Hvernig líður kennurum? Könnun á kulnun í starfi grunnskólakennara og leiðbeinenda ígrunnskóium. Reykjavík, Kennara- háskóli íslands. lÓbirt M.Ed.-ritgerð.] Darling-Hammond, Linda. 2000. Teacher quality and student achievement: a review of state policy evidence. Educational Policy Analysis Archives 8,1. Vef- síða: http://epaa.asu.edu/epaa/v8n1. Sótt 14. febrúar 2004. Draper, Janet og Victor Forrester. 2004. Early Teacher Development in the 2ist Century: Contested and Contrasted. Erindi flutt á ráðstefnu Scottish Ed- ucational Research Association, Perth, Skotlandi 25.-27. nóvember 2004. [Fjölrit.J Feiman-Nemser, Sharon. 2003. What NewTeachers Need to Learn. Ed- ucational Leadership 60,8:25-29. Ingersoll, Richard M. ogThomas M. Smith. 2003. The Wrong Solution to the Teacher Shortage. Educational Leadership 60,8:32-33. María Steingrímsdóttir. 2005. Margt er að læra og mörgu að sinna. Nýbraut- skráðir grunnskóiakennarar á fyrsta starfsári; reynsia þeirra og líðan. Akureyri, Háskólinn á Akureyri, kennaradeild. [Óbirt M.Ed.-ritgerð.] markviss leiðsögn felur í sér, svo sem að fylgjast með nýliðanum í kennslustundum. Þannig getur leiðsagnarkennarinn veitt hon- um markvissa endurgjöf. Æskilegt er að minnka vinnuálag nýlið- ans og gefa honum þar með tíma og ráð- rúm til ígrundunar um eigið starf með að- stoð leiðsagnarkennara, stjórnenda og ann- arra samstarfsmanna (t.d. í Skotlandi er þeim ætlað að kenna 70% af kennsluskyldu en 30% eiga að fara í starfsþróun (Draper og Forrester 2004:10)). Þar með gæfist m.a. tækifæri fyrir nýliðann að sitja kennslu- stundir hjá samkennurum sem ná góðum árangri í starfi. Ábyrgð stjórnenda er mikil Ábyrgð stjórnenda er mikil gagnvart nýja starfsmanninum. Þeir eru ábyrgir gagnvart ráðningu hans og þurfa að gera sér grein fyrir hversu þýðingarmikil rétt innleiðing í starfið getur verið fyrir framtíð hans sem kennara. Þeir þurfa að skipuleggja leiðsögn- ina og skilgreina hlutverk leiðsagnarkenn- ara á þann hátt að leiðsögnin verði góður stuðningur við starfsþroska nýliðans. Það er enn fremur á þeirra valdi að tími og tæki- færi skapist fyrir samstarf leiðsagnarkennara og nýliða, t.d. með því að taka tillit til þess við gerð stundatöflu. Einnig ættu skóla- Grunnskóianemendur. stjórnendur að fylgjast vel með starfi nýlið- ans og láta hann vita að starf hans skiptir máli fyrir skólann. Þeir ættu að kalla nýliða til sín í eins konar starfsmannaviðtal eftir einn til tvo mánuði til að heyra hvernig málin standa og láta þá vita hvað þeim sjálfum finnst um störf þeirra. Skólastjórnendur þurfa að vinna að málum nýliða í sam- starfi við skólayfirvöld í hverju skólaumdæmi og ekki síður þarf fagfélag kennara að vera meðvitað um þarfir nýliða og setja fram skýra stefnu þar um. Erlendar rannsóknir hafa sýnt að fátt hefur meiri áhrif á náms- árangur nemenda en vel menntaðir og hæfir kennarar (Darling- Hammond 2000). Þá sýna nýlegar erlendar rannsóknir að þeir kennarar sem fá markvissa leiðsögn í upphafi ná betri árangri og verða skuldbundnari starfinu (Ingersoll og Smith 2003). Við höf- um þörf fyrir áhugasama og vel menntaða kennara sem eru skap- andi og frjóir og þar með í stakk búnir til að mæta þörfum allra nemenda í fjölbreytilegu þjóðfélagi. Með þetta í huga er nauð- synlegt að veita þeim markvissa leiðsögn í upphafi og stuðla þannig að framþróun í skólastarfi. TÓLVUMIÐLUN SFS 34 www.tm.is

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.