Hús & Búnaður - 01.05.1968, Blaðsíða 2
Ætlunin er, a5 þetta leiksvæði verði betur úr garði
gert en hér hefur áður þekkzt. Gert er ráð fyrir að koma
fyrir:
1. Leikborg, svæði byggt litlum húsum, götum, gang-
stéttum, görðum. Leiktæki verði bílar, hjól, vagnar,
innileiktæki. E.t.v. verði sum húsin byggð með laus-
um kubbum, þannig að börnin geti unnið að bygg-
ingunni.
2. Opið leiksvæði — með öllum tiltækum leiktækjum.
3. Lokað leiksvæði — gæzlusvæði, þar sem foreldrar
geta skilið börn sín eftir meðan farið er í stutta ferð
úr bænum.
4. Opið ræktað svæði — grasbalar með grunnum
tjörnum, knattleikjasvæðum. Svæðið ætlað fullorðnu
fólki með börnum sínum á góðviðrisdögum.
5. Veitingahús.
Leikborgin verði öllum opin 3 daga vikunnar yfir
sumartímann, en líklega fá börn á heimilum Sumargjaf-
ar forgang að leiksvæðinu vissa daga í viku.
Ekki hefur enn unnizt tími til að gera byggingarupp-
drætti að leikborginni, en sú vinna mun hefjast von
bráðar. Hafin er almenn fjársöfnun til þessara fram-
kvæmda, en að sjálfsögðu er ekki hægt nú að segja til
um hvenær framkvæmdir hefjist. Það fer eftir því hverj-
ar undirtektir almennings verða og hvaða fyrirgreiðslu
hægt er að vænta frá því opinþera. Hér verða margir
að vinna að sameiginlegu málefni. En það væri einnig
athugandi fyrir önnur byggðalög úti á landi, hvort ekki
væru möguleikar að hefja undirbúning svipaðrar starf-
semi þar. Þótt starfsemin yrði smærri í sniðum þar og
Efst:
Barnaheimilið Steinahlíð við Suðurlandsbraut og hluti af umhverfi þess
þar sem hið fyrirhugaða leiksvæði á að verða. Börnin eru þesrar farin að
helga sér þennan reit.
Til vinstri:
Tvær myndir frá sænskum lciksvæðum. Þið sjáið, hvernip svæðinu er
skipt í rciti til margvíslepra afnota.
Að ncðan:
Samsctnincrarleikfön?, sem börnin srcta bygrgt úr oe rcist sér hús og hallir
eftir þörfum leiksins. Starfrænt og þroskandi viðfangsefni.