Hús & Búnaður - 01.05.1968, Blaðsíða 21
Þræðið með mislitum tvinna
þráðrétt langs eftir miðju efnisins.
Mælið um 10 sm. frá efstu brún,
við miðju og byrjið að sauma þar
efsta hluta blómsins. Á fyrirmynd-
inni eru fuglarnir saumaðir í röð
í efrirfarandi litum.
Vinstri hlið munstursins að ofan.
1. fugl: Blár, ljósblár vængur.
2. fugl: Ljós lilla, dökk lilla væng.
3. fugl: Blár, dökk lilla vængur.
4. fugl: Dökk lilla, ljósblár væng.
Hægri hlið að ofan.
1. fugl: Dökk lilla, ljós lilla væng.
2. fugl: Ljós lilla, blár vængur.
3. fugl: Dökk lilla, blár vængur.
4. fugl: Blár, ljósblár vængur.
Saumið með aftursting eða
þræðispori fram með hliðum ljósari
lita. Notið dekkri lit í sömu setter-
ingu. Saumið á sama hátt í kring-
um blómið. Með þessu fáum við
munstrið skýrara.
Þegar tveir efstu fuglarnir hafa
verið saumaðir, eru allir hinir 6
saumaðir á sama hátt, en breytt um
liti eins og getið hefur verið um
að framan.
Ganga má frá hliðum vegg-
hengjunnar með gatafaldi allt í
kring.
Faldar á hliðum eru um 1 sm.
á breidd. Á endum um 3Vi—4 sm.
á breidd, svo hægt sé að þræða
bambusstengurnar í gegum fald-
ana.
Gatafaldur er saumaður frá
röngu yfir 2 þr. í efni. Saumið með
hörgarni í sama lit og efnið.
Pressið vel á röngu, gætið þess
að hafa vel mjúkt stykki undir svo
útsaumurinn verði ekki klesstur.
Ekki þarf að vera síðra að sauma
vegghengjuna í handofinn ullar-
jafa og þá með ullargarni. Vegg-
hengjan verður stærri þar sem efn-
ið er grófara.
Breyta má um saumagerð og
sauma með góbelínsaumi í stað
krosssaums.
Ullarjafi og garn í öllum litum
fæst hjá Karólínu Guðmundsdótt-
ur, vefnaðarstofu, Ásvallag. lOa.
Jurtalitað ullargarn fæst í verzl.
íslenzkur heimilisiðnaður að Lauf-
ásvegi 2.
HOLLRÁÐ
Hellur i gangstíginn þarf ekki að vera nauðsynlegt að
kaupa, ef þið viljið búa þœr til sjálf. Smíðið ferkantaðan
ramma t.d. 50 cm á hvern kant og leggið hann á slétt
gólf og leggið dagblað tmdir. Síðan blandið þið steypuna,
1 hluta af sementi á móti 3 hlutum af sandi, bleytið hana
hæfilega og hrcerið vel saman. Þá er hcegt að hella henni
í mótin.
Viljið þið halda gúmmístígvélunum fallegum skuluð
þið, eftir að hafa þvegið þau hrein, bera á þau venjulegt
gólfbón.
Komið getur fyrir, að óþcegileg lykt myndist í kceli-
skápum. Reynið að leggja Morgunblaðið og Þjóðviljann
inn í hann um tíma. Það hreinsar loftið.
Oreinar hendur cetti ekki að byrja að þvo úr heitu vatni,
því að þá berast óhreinindin víðar um og setjast föst í
húðina. Bleytið hendurnar fyrst í köldu vatni og notið
síðan heita vatnið á eftir.