Hús & Búnaður - 01.05.1968, Blaðsíða 20

Hús & Búnaður - 01.05.1968, Blaðsíða 20
% ^ Stlvhkvrihn. Ritstjóri: KRISTÍN JÓNSDÓTTIR, handavinnukennari Vegghengja saumuð í hörefni með bómullar- eða áróragarni. Munstrið er saumað með krosssaum yfir 2 þræði í efni. Velja má grunnlit efnisins eftir vild. Hér er miðað við óbleikt hör- efni. Ef valinn er annar grunnlitur, verður einnig að velja liti garnsins (svo þeir fari vel) við þann grunn- lit. Hæfilegur grófleiki efnisins er 10 þræðir á hvern sm. Kaupið 35x 70 sm. af hörefni í þessum gróf- leika. Ath.: ef efnið er grófara verð- ur að kaupa meira af því, svo munstrið komist fyrir. Frágengin verður vegghengjan um 31x60 sm. Saumað er með 3 þráðum af áróra- garni, en 2 þráðum af fínu bómull- argarni, sé það notað. Til að hengja teppið upp þarf 2 bambusstengur og snúru um 65 sm. langa. Einnig má hengja bað upp á bambusnum sjálfum, þá með tveim nöglum við sinn hvorn enda sem bambusinn hvílir á. Snúrunni er sleppt.

x

Hús & Búnaður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hús & Búnaður
https://timarit.is/publication/1071

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.