Hús & Búnaður - 01.05.1968, Blaðsíða 7
1) Með tónsviði er átt við hæstu og lægstu tóntíðni
og allar tóntíðnir þar á milli, sem tækin geta skilað með
jöfnum styrk.
2) með bjögun er átt við það magn óæskilegra hljóða,
sem bætist við hljóminn á leið hans gegnum tækin.
Uppgefna gildið í töflunni finnst við að mæla óæski-
legu hljóðin í hlutfalli við hinn hreina hljómburð. (Til
þess þarf sérstök tæki).
Bjögunin eykst, þegar magnari nálgast að gefa út
mestu orku, sem hann er gefinn upp fyrir.
Leyfileg bjögun í venjulegum útvarpstækjum er 10%
meðan bjögun í Hi-fi-tækjum má ekki fara yfir 1%.
3) Útgangs-orka úr magnara mælist í Watt, en hátal-
ari sem fær inn á sig ákveðna orku gefur síðan út á-
kveðinn hljómstyrk miðað við nýtni hátalarans.
4) Rumble frá mótor gefur upp hve mikið af titringi
frá mótor plötuspilarans kemst inn á tónhausinn og
veldur truflunum í hljómburði. Þarna er bezt að hafa
sem flest -r desibel.
LÍTIÐ ORÐASAFN
Electronocs: rafagnatœkni Magnetism: segulmagn Unidirectional current: einstefnu-
Molecule: sameind Anode: forskaut straumur
Electron: rafögn Cathode: bakskaut Electric current: rafstraumur
Frequency: tíðni Electrode: rafskaut Dynamo: rakstraumsrafall
Amper: straumur Conductor: leiðir Magnet: segull.
Ohm: viðnám Insulator: einangrari Output power: útafl
Siemens: leiðni Amplifier: magnari Transistor. kristal þrískauti, transist-
Watt: afl Microphon: hljóðnemi or, notaður m.a. til þess að magna
Volt: spenna Alternating currcent: riðstraumur hljóð, þarf ekki glóðarspennu eins
Hertz: rið á sek. Continous current: rakstraumur og lampi.