Hús & Búnaður - 01.05.1968, Side 6
Hl — Fl — Stereo
Það er varla nokkurt radíó-tæki
á markaðnum í dag, án þess að á
því standi orðin Hi-Fi „Stereo". —
Hi-Fi stendur fyrir orðin high fidel-
ity, en þau mætti ef til vill þýða sem
„hágæða tónflutningur".
Með Stereo er átt við eiginleika
tækja til að flytja tvær óháðar tón-
rásir samtímis.
Á þann hátt er mögulegt að gera
hljómlist meira lifandi í endurflutn-
ingi en áður var; og ef tæki, sem
öll eru óvefengjanlega ,,Hi-Fi-ster-
eo" eru í notkun, er hægt að fram-
kalla áhrif sem líkjast því mjög að
setið sé í hljómleikasal og hlýtt
beint á tónverk flutt af hljómsveit.
Því miður misnota margir fram-
leiðendur orðin Hi-Fi (stereo).
Það er alls ekki nóg, að þau
standi á tækjunum. Tækin verða
einnig að svara ákveðnum minnstu
kröfum til að geta með sanni borið
þessi einkunnarorð.
Það er heldur ekki nóg, að hluti tækjanna sem notuð
eru svari kröfunum.
Árangurinn verður aldrei betri en lélegasti liðurtækj-
anna segirtil um.
Gæðakröfur fyrir Hi-Fi stereo tæki eru til, en það
yrði of tæknilegt að fara nákvæmlega út í að útskýra
þær allar.
Nokkrar grundvallarkröfur fyrir Hi-Fi-stereo tæki vil
ég þó nefna, og fara þær hér á eftir:
STEREOTÆKI
Tökum sem dæmi:
Höfum við til umráða fyrsta flokks tæki, þar á með-
al plötuspilara, magnara fyrir hann og nýjar hrein-
ar plötur, og tengjum síðan þessi tæki við meðalgóðan
hátalara, verða tóngæðin aldrei nema meðalgóð, og
þá hefðum við eins getað sparað okkur fína plötuspil-
arann og fína magnarann.
Aðeins tæki í sama gæðaflokki eiga saman, miðað
við að maður vilji fá sem mest fyrir peningana sem not-
aðir eru til tækjakaupanna. Sem sagt: veljið saman
tæki sem hæfa hvert öðru.
Það er sama hver liðanna er lélegri en hinir, hann
hefur sín neikvæðu áhrif á lokatóngæðin.
Magnari Plötuspilari Hátalari
Tónsvið 20 rið/sek — 20000 rið/sek 30Ao rið/sek — 18000 rið/sek
Bjögun minni en 1% ninni en 1% minni en 1%
Útgangs orka 10 Wött eða meira 10 Wött eða meira
Rumble frá mótor -r- 60 dB
Hraðabr. á diski 0,13%