Hús & Búnaður - 01.05.1968, Side 10
í HÍ IM\ OKKAR
Við getum komið inn í giæsilegar stofur, við getum
skoðað blöð og tímarit, við getum séð fallegar myndir,
en í reynd segir það okkur ekkert til um, hvernig við
eigum sjálf að haga innbúi okkar. Það kennir okkur
harla lítið. Að vísu geta slíkar athuganir gefið okkur
ákveðnar hugmyndir, en þegar við komum heim og
ætlum að fara að setja upp öll fínheitin verður oft minna
úr verki. Hvað veldur? Segja má, að undirstöðuna vanti.
Við kunnum ekki að vinna úr hinum ákveðnu efnum og
fella þau saman. Þetta sem við sáum gat farið vel á
þeim ákveðna stað, sem það var á, en til þess að geta
komið því eins fyrir hjá okkur yrðum við að hafa sams
konar íbúð, sams konar húsgögn, sams konar myndir
og teppi, sams konar liti og lýsingu o. s. frv. Við þyrft-
um helzt að vera sams konar fólk og það sem við sáum!
Slík sýnishorn geta gefið okkur gagnlegar hugmyndir
og frætt okkur um efni, sem hægt er að vinna úr, en
til þess að geta unnið úr því verðum við fyrst og fremst
að vita hvernig það skal gert, og í öðru lagi að nýta það
efni sem fyrir er og við eigum sjálf heima.
Lífið er sífelldum breytingum háð. Störf okkar, á-
hugamál, aldur og fjölskyldustærð, allt breytist þetta og
hefur í för með sér breyttar þarfir á heimilinu. Við-
fangsefni okkar er að móta íbúðina eftir þeim þörf-
um. En jafnvel hinn eftirlátasti eiginmaður yrði löngu
farinn að sjá rautt, áður en allar óskir þar um yrðu
uppfylltar, ef í hvert sinn sem breytinga væri óskað
þyrfti að endurnýja allt sem I innbúinu væri. Það sem
mestu máli skiptir er að gera sér glögga grein fyrir því
hvaða þarfir þarf að uppfylla og hvernig hægt er að
fara að þvi á sem auðveldastan hátt. En við skulum
einnig gera okkur Ijóst, að samræmi og fegurð eru
þættir þess takmarks að aðlaga okkur því umhverfi,
sem við eigum að búa í.
Margir, kannski flestir, eru að velta því fyrir sér hvort
þeir eigi að hafa vegginn gulan eða grænan, hvort
Til vinstri og að neðan: Ilúspöpnin og innréttingu ber fyrst
og fremst að velja eftir áhugamálum fólksins, sem þar býr.
Sóldýrkandi vill ekki þurfa að hnipra sig saman í dimmu
skoti eða þröngum stól jafnskjótt og hann kemur inn í
íbúðina, svo dæmi sé nefnt.
Til hægri: Samræmi milli hússins og íbúa þess. Kannski
ckki fyrst og fremst í ytri búnaði eins og myndin sýnir,
hcldur eftir viðfangsefnum og áhugamálum heimilisfólksins.