Hús & Búnaður - 01.05.1968, Blaðsíða 22
Veljið hátölurunum rétta
stöðu í íbúðinni
Eftir lestur greinarinnar um Hi-Fi-stereo hér í blaðinu
gerum við okkur grein fyrir, að við verðum að hafa fyr-
ir hendi plötuspilara eða segulband, magnara og há-
talara, allt valið af mikilli kostgæfni; en þá er eitt vanda-
mál óleyst. Hver á staða hátalaranna að vera til að falla
bæði inn í heimilisheildina og hafa beztu mögulega
hljómburðar-stöðu fyrir þann sem hlustar?
Grunnregla er, að jafn langt verður að vera milli
hátalaranna og frá veggnum sem hátalararnir eru við
til þess, sem hlustar. Sjá mynd 3 og 4.
Mynd 4 sýnir þó sparnaðarlausn, þar sem sjónvarps-
tækið er látið vera fyrir annan hátalarann.
Myndir 1 og 2 sýna hve mjög nothæft stereosvæði
minnkar við að hafa of stutt á milli hátalara. Vegalengd-
in milli hátalara ætti aldrei að vera minni en 2 metrar
og ekki meiri en 4 metrar, án sérráðstafana.
Mynd 5 sýnir möguleika á lausn í mjög stórri stofu.
Hafið alltaf í huga, að stereoáhrifanna gætir mest
þegar hornið á milli hátalaranna séð frá hlustandanum
er 40—60°.
Mikilvægt atriði er einnig, að keilur allra hátalaranna
hreyfist í sömu átt, miðað við samskonar inngangs-
merki. Þetta er auðvelt að prófa með litlu vasaljósa-
batteríi. Tengið batteríið við hátalaraleiðslurnar, og
þreifið með hendinni til að finna hreyfingarátt keilunnar.
Greinilega finnst hvort keilan færist út eða inn. (Ef
önnur keilan færist út og hin inn, víxlast bara leiðslan
fyrir annan hátalarann o. s. frv.). Á þennan hátt er hægt
að samfasa alla hátalarana. Að lokum: Um hæð hátal-
aranna frá gólfi er það að segja, að sé hátalarinn á
gólfinu, er það heldur lágt; en ekki er þó betra að hann
sé of hátt uppi. Það er hér eins og víða annarsstaðar,
að meðalvegurinn er beztur.
Heimilisráð
Ef konan hefur bílpróf skalt þú setja
svona hjólbarða á vegginn í bíl-
skúrnum svo hún geti ekið að þeim.
Einnig er gott að hengja merki niður
úr loftinu til að stöðva bílinn vi5.
Láttu hana ekki vita að þú notir
þetta líka sjálfur.
Snyrtiborð. sem gott
er að búa til, en
getur þó verið til
mikilla þæginda við
að leggja frá sér og
gcyma það sem tíð-
ast er notað.
HEMLUNAR VEGALENGDIR
vid MI5JÖFN SKILYRD!
úr 32 km hratfa .