Morgunblaðið - 12.11.2011, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2011
Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um einhverja þeirra
viðburða sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið. Sendið tilkynn-
ingar um viðburði á netfangið ritstjorn@mbl.is.
41 dagur til jóla
Árlegt jólakaffi Hringsins verður
haldið á Broadway sunnudaginn 4.
desember næstkomandi, kl. 13:30.
Miðasala hefst kl. 13. Boðið er upp
á girnilegt kaffihlaðborð að hætti
Hringskvenna og dagskráin glæsi-
leg að vanda. Margir listamenn
koma fram með hljóðfæraleik,
söng, dansi og glensi fyrir unga
sem aldna. Allir gefa þeir vinnu
sína.
Þá verður happdrætti með góð-
um vinningum sem ýmis fyrirtæki
hafa gefið. Allur ágóði rennur til
veikra barna á Íslandi.
Kvenfélagið Hringurinn hefur
um árabil verið helsti bakhjarl
barnaspítalans. Á hverju ári styrkir
Hringurinn m.a. nauðsynleg tækja-
kaup fyrir minnstu sjúklinga lands-
ins. Á niðurskurðartímum verður
spítalinn að stóla á slíkar gjafir.
Góðir gestir á jólakaffi Hringsins
Jólakökur Hið vinsæla jólakaffi Hrings-
kvenna verður 4. desember nk.
Waldorf-leikskólinn Ylur og Waldorf-
skólinn í Lækjarbotnum halda sinn
árlega jólabasar í dag, laugardaginn
12. nóvember, frá kl. 12-17.
Margskonar handverk verður í
boði sem börn og foreldrar allra
bekkja hafa unnið. Einnig verður
boðið upp á brúðuleikhús, barna-
kaffihús, veiðitjörn, eldbakaðar pits-
ur, jurtaapótek, tónlist og töfrar.
Waldorf-uppeldisfræðin byggist á
heildarsýn á hinni vaxandi manneskju þar sem leitast er við að örva og
þroska öll svið mannsins til jafns: félags- og tilfinningalega,vitsmunalega,
siðferðislega og ekki síst viljalífið.
Til að komast í Lækjarbotna er beygt til hægri inn afleggjara fyrir ofan
Lögbergsbrekku sem er fyrsta brekkan þegar ekið er frá Reykjavík austur
þjóðveg 1. Allir hjartanlega velkomnir
Jólabasar í Lækjarbotnum
Jólakortasalan er hafin hjá
Hjartaheillum, landssamtökum
hjartasjúklinga. Félagsmenn og
aðrir velunnar samtakanna eru
beðnir um að taka vel á móti sölu-
fólkinu okkar.
Jólakortin eru með ólíkum
myndum frá ári til árs og eru tíu
kort í pakka og kosta 1.200 kr.
Jólakortið í ár hannaði 18 ára
gömul hjartveik stúlka sem heitir
Hafdís Erla.
Jólakortin fást á skrifstofu
Hjartaheilla og einnig er hægt að
panta kort á netfanginu
hjartaheill@hjartaheill.is
Kortið hannað af
hjartveikri stúlku
Basar og nytjamarkaður verður
haldinn í safnaðarheimili Áskirkju
á morgun, sunnudaginn 13. nóv-
ember, klukkan 12:00.
Á boðstólum verða kökur og
ýmsir eigulegir hlutir bæði nýir og
notaðir, segir í tilkynningu.
Velunnarar Áskirkju eru hvattir
til að mæta og leggja þannig kirkju-
starfinu lið.
Basar og nytja-
markaður í Áskirkju
Barnaheill fengu Eggert
Pétursson listmálara og
Þórarin Eldjárn ljóðskáld
og rithöfund til liðs við sig
við gerð jólakorts í ár. Með
því að kaupa kortið er stutt
við bakið á starfi samtak-
anna í þágu barna hér á
landi og erlendis.
Eggert Pétursson málaði
sérstaklega málverkið, Án
titils, fyrir kortið. Inn í
kortið er prentað ljóð Þórarins Eldjárns, Skamm skamm skammdegi sem
hann samdi sérstaklega við málverk Eggerts. Báðir listamennirnir gefa
vinnu sína. Jólakortin fást á skrifstofu Barnaheilla og á netinu, barna-
heill.is
Eggert og Þórarinn til liðs við Barnaheill
Jólakort Eggert Pétursson og Þórarinn Eldjárn gera
jólakort Barnaheilla í ár.
Styrktarfélag krabbameinssjúkra
barna býður í ár upp á tvær gerðir
af jólakortum. Bragi Einarsson hef-
ur búið til jólakortamyndir fyrir fé-
lagið í mörg ár og er nú komið að
jólasveininum Hurðarskelli. Á hinu
kortinu er fallegt íslenskt grenitré í
jólabúningi. Einnig geta fyrirtæki
keypt rafræn jólakort þar sem
vörumerki fyrirtækisins og kveðja
er sett í kortið. Hægt er að panta
jólakortin á www.skb.is.
Jólakort til styrktar
krabbameinssjúkum
ið er að leita að fyrstu skyttunum
svo allt er samkvæmt venju. Þó ekki
alveg allt. Lítið eða ekkert hefur
sést af rjúpu. Sumum finnst það
með ólíkindum í ljósi friðunar-
aðgerða. Heimamenn hafa þó aðra
skoðun og eru ekki undrandi. Eitt-
hvað verður rebbi að éta. Þar er
rjúpan auðveld bráð. Ef ekki verður
stemmt stigu við gífurlegri fjölgun
refsins verður engin rjúpa innan
skamms tíma.
Íbúar í dreifbýlishluta Borg-
arbyggðar héldu fund með forsvars-
mönnum sveitarfélagsins fyrir
skömmu. Umræðuefnið var að
reyna að skera upp herör gegn
refnum. Fram kom að ríkið greiðir
ekki lögbundið mótframlag vegna
refaveiða svo sveitarfélögin sitja
uppi með krógann. Mörg dreif-
býlissveitarfélög eru illa fjáð og
hafa ekki getu til meiri fjárútláta.
Eftir því sem best er vitað hefur
lögum ekki verið breytt, ríkisvald-
inu ber enn að greiða fyrir eyðingu
refs, að hluta. Ráðherra umhverf-
ismála hefur sem sé ákveðið að
brjóta lög. Merkilegt þykir að slíkt
sé hægt og varð mönnum á fund-
inum tíðrætt um hina frægu nafna,
Jón og séra Jón í því samhengi.
Maðurinn veiðir sér til matar
og ánægju. Ákveðið jafnvægi er yf-
irleitt á þeim veiðum, ef skynsemin
er við stjórnvölinn. Hins vegar, ef
einni tegund er hlíft, sem ekki er í
útrýmingarhættu, raskast öll fánan.
Slíkt er staðreynd í dag. Refurinn
hefur fjölgað sér gífurlega. Hann
þarf æti og ræðst á það sem hentar
helst. Innan skamms tíma gætu
landsmenn þurft að velja, hvort þeir
vildu rebba eða rjúpu.
Rebbi eða rjúpa
Morgunblaðið/Ómar
Fáar rjúpur Rjúpnaskyttur í Borgarbyggð sjá fáa fugla á fjalli og telja bændur skýringuna m.a. vera fjölgun refs.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÚR BÆJARLÍFNU
Birna G. Konráðsdóttir
Borgarfjörður
Flestir bændur eru búnir að
heimta fé sitt af fjalli. Ein og ein
eftirlegu kind er þó að líkindum ein-
hvers staðar ráfandi. Hitt er verra
að sumt fé kemur aldrei fram og
hefur þá kannski lent í öðrum kjafti
en ætlað var. Mikil aukning hefur
orðið á ref í sveitarfélaginu Borg-
arbyggð, svo mjög að bændur eru
uggandi og finnst dapurlegt að ala
lambfé í refinn. Mörg dæmi eru um
að lágfóta hafi sótt sér æti heim
undir bæjarhús. Er þá ekki kyn að
bændur kvarti. Er svo komið að í
sumar heyrðist nær ekkert í mó-
fugli á sumum svæðum.
Nú er rjúpnaveiðin hafin. Bú-
• Arðsemi Landsvirkjunar: Óraunhæfar
eða nauðsynlegar kröfur?
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar
• Samkeppnishæfni í grænu hagkerfi
Magnús Bjarnason, framkvæmdastjóri
markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs
• Vindorka – raunhæfur kostur á Íslandi?
Óli Grétar Blöndal Sveinsson,
framkvæmdastjóri þróunarsviðs
• Ný stefna Landsvirkjunar um
samfélagsábyrgð
Ragna Sara Jónsdóttir,
yfirmaður samskiptasviðs
• Spurningar og umræður
Árið 2010 markaði Landsvirkjun nýja stefnu sem leggur áherslu á að hámarka arðsemi
fyrirtækisins. Á fundinum verða dregin fram áhrif nýrrar stefnu á rekstur fyrirtækisins.
HAUSTFUNDUR LANDSVIRKJUNAR 2011
www.landsvirkjun.is Finndu okkur á Facebook
Fundarstjóri er Ragna Árnadóttir,
skrifstofustjóri Landsvirkjunar
Allir velkomnir
Skráning á: www.landsvirkjun.is/skraning
Fundurinn fer fram í Silfurbergi í Hörpu,
þriðjudaginn 15. nóvember, kl. 14-16.
Markmið opinna funda Landsvirkjunar er að stuðla
að gagnsærri og faglegri umræðu um málefni tengd
starfsemi fyrirtækisins.
Að klífa fjallið
Hvernig getur Landsvirkjun orðið leiðandi
fyrirtæki á sviði endurnýjanlegra orkugjafa?