Morgunblaðið - 12.11.2011, Síða 39

Morgunblaðið - 12.11.2011, Síða 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2011 óskaplega að geta ekki lengur komið í heimsókn til þín og fengið smá „lokk og bau“ og rætt málin við þig í eldhúsinu í Sæbergi. Ottó Freyr Jóhannsson. Ég var svo einstaklega heppin að fá að kynnast þér, þegar ég varð kærasta barnabarns þíns, hans Sigga. Ég varð þess fljótt áskynja að þú varst einstök manneskja. Þú sýndir öllum svo mikla alúð og umhyggju. Hjá þér voru ekki til nein vandamál, bara lausnir. Það var eitthvað við þig sem er svo erfitt að lýsa. Það var eins og þú sæir inn í sálina á manni og manni fannst að þú skildir allt og skynjaði að þér væri gott að treysta. Þó að leiðir okkar Sigga hafi skilið, tókstu mér og nýja manninum mínum opnum örmum þegar við ákváðum að banka uppá hjá þér í Sæbergi, á ferðalagi okkar um Austfirði. Það var eins og tíminn hefði staðið í stað þegar ég kom inn í eldhúsið þitt að fá sumar- köku og kaffi og mér fannst ég bara komin aftur til mennta- skólaáranna. Elsku Elsa mín, ég veit að þú ert komin á góðan stað hjá hon- um Arngrími þínum. Mér þótti vænt um þig frá okkar fyrstu kynnum og þér mun ég aldrei gleyma. Hvíl í friði. Guðbjörg Oddsdóttir (Gugga). Jæja, þá er Elsa búin að fá hvíldina og komin í hóp sinna gengnu ástvina. Það væri fróðlegt að taka fljót- lega upp við hana eitt hennar hugleiknasta umræðuefni, lífið eftir dauðann. Ekki þannig að Elsa hafi ekki haft áhuga á því sem við var að eiga hérna megin. Síður en svo. Ég hef oft hugsað um það hvað þessi föðursystir mín var ótrú- lega fjölhæf og snjöll. Allt lék í höndunum á henni: vörubíla- og rútuakstur, bílaviðgerðir, vinna við rafmagn, smíðar, fatasaum, list- og húsamálun, auk heimilis- verkanna og matseldarinnar. Þau voru ófáar flíkurnar sem hún saumaði á okkur bræðurna og oft var hún búin að klippa á okkur þverhausana. Hún var bjargið sem stóð upp úr þegar litli bróðir hennar, hann pabbi, fórst með bátnum sínum í byrjun desember 1973. Þá tóku þau hjónin, hún og Arngrímur, mömmu og okkur bræðurna fjóra inn á heimili sitt í Sæbergi og hjá þeim dvöldum við fram á nýárið á meðan við reyndum að horfast í augu við grimma staðreynd. Það var fastur liður hjá minni fjölskyldu hin seinni ár þegar við komum á Borgarfjörð að heilsa upp á Sæbergshjónin og nú hin síðustu ár Elsu. Enda var Sæ- berg alltaf eins og annað heimili okkar Svalbarðsbræðra. Aldrei bankað á útidyr, kannski eitt létt högg á eldhúsdyrnar um leið og við gengum inn. Elsa átti jafn auðvelt með að spjalla við alla og sýndi áhuga á viðfangsefnum ungra sem ald- inna. Þar sem gestrisnin er einlæg, þar er gestagangur. Og þannig var það í Sæbergi. Eitt verð ég ævinlega þakklát- ur Elsu fyrir. Sigrún amma dó veturinn 1985 og vildi þannig til að jarðarförin var ákveðin sömu helgi og ég átti að spila í fjögurra sveita úrslitum um íslandsmeist- aratitil yngri spilara í brids. Ég átti í talsverðu sálarstríði vegna þessa og tók ekki ákvörðun fyrr en Elsa stappaði í mig stálinu og sagði, að það væri á hreinu að hún amma mín hefði viljað að ég tæki spilin fram yfir, hún hefði verið það mikil spilamanneskja sjálf. Hún Elsa sló ekki mikið af þó aldurinn færðist yfir og heilsan færi að bila. Hún var komin upp á þak að mála áður en nokkur vissi af og var ekki að bíða eftir hjálp við að hengja upp jóla- skrautið. Fyrir hönd Svalbarðsfjöl- skyldunnar þakka ég samfylgd- ina, jafnt í gleði og sorg. Sæbergssystkinunum og fjöl- skyldum þeirra sendi ég innileg- ar samúðarkveðjur. Magnús Björn Ásgrímsson. Það er með miklum söknuði sem ég kveð kæra vinkonu mína, hana Elsu Jónsdóttur. Ég var svo lánsamur að hún var gift móðurbróður mínum, honum Arngrími Magnússyni kaup- félagsstjóra. Þau hjónin bjuggu að mér fannst í paradís á jörðu, á Borgarfirði eystra. Alveg frá því ég var lítill hef ég þekkt hana að góðu einu og reyndist hún mér alltaf einstaklega vel. Ungur var ég sendur til þeirra hjóna á Borgarfjörð að sumarlagi, sjálf- sagt til að manna mig enda ör- verpi að sunnan sem eitthvað var látið eftir. Sambúð okkar Elsu var með miklum ágætum og ræddi hún ætíð við mig sem jafn- ingja, það var helst að kaup- félagsstjórinn væri að leggja mér lífsreglurnar. Að lokinni dvöl hjá þeim kvaddi hún mig alltaf með hlýjum orðum og þeim orðum að það væri reiknað með mér í sauð- burðinn næsta vor. Elsa var með hláturmildari konum sem ég þekki og það var alveg sama hvað á dundi, alltaf var stutt í glettnina. Ég á góðar æskuminningar af skemmtileg- um samtölum móður minnar og Elsu er þær töluðu í síma milli landshluta. Símtölin voru yfir- veguð og róleg í byrjun en end- uðu ætíð í hlátrasköllum og mikl- um hlátursköstum á báðum endum línunnar. Oft var erfitt að gera sér grein fyrir hvort um var að ræða hlátur eða grát, enda streymdu tárin á meðan á þessu stóð. Meðan ósköpin dundu yfir var erfitt fyrir heimilisfólkið að heyra í ljósvakamiðlum, hvað þá að einbeita sér að einhverju öðru. Elsa var mjög ræðin við stóra sem smáa og óþreytandi að segja sögur frá fyrri tíð, jafnt af ætt- ingjum sem atburðum sem þeim tengdust. Ég er henni óendan- lega þakklátur fyrir allar þær sögur sem hún hefur sagt sonum mínum, sögur af forfeðrum þeirra sem þeir kynntust aldrei. Þegar mest gekk á í frásögninni af skemmtilegum atburðum lék hún atburðina og hló eins og forðum. Gestrisni hennar var með eindæmum og var eldhús- borðið ávallt hlaðið kræsingum frá morgni til kvölds. Einhverju sinni spurði ég son minn hvað hann vildi í morgunmat? „Köku“ sagði hann. Ég sagði: „Maður borðar ekki köku í morgunmat“. Hann var þá fljótur að svara: „Jú, hjá Elsu á Borgarfirði“. Elsa er einhver albesta mann- eskja sem ég hef kynnst, hennar verður sárt saknað. Við fjölskyldan vottum að- standendum og öðrum sem sjá eftir henni innilega samúð. Megi minningin um einstaka konu ylja okkur öllum um hjartarætur. Björgvin Örn Eggertsson. ✝ Stefán IngiVagnsson fæddist á Þverá í Blönduhlíð, Skaga- firði, 7. október 1937. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks 27. október 2011. Foreldrar Stef- áns voru Vagn Gíslason, f. 6. nóv- ember 1901, d. 4. október 1986, og Fjóla Stef- ánsdóttir, f. 9. október 1914, d. 14. maí 2004. Systkini Stefáns eru Guðrún Þrúður, f. 16. janúar 1939, d. 23. maí 2007, gift Hreini Þorvaldssyni, f. 5. júní 1937, d. 17. febrúar 2006. Hjörtína Dóra, f. 11. apríl 1943, gift Ólafi S. Pálssyni, f. 25. maí 1938 og Aðal- björg, f. 21. nóvember 1951, sam- býlismaður Kristján Alexand- ersson, f. 23. maí 1956. Stefán giftist þann 26. desem- ber 1962 Sigurlaugu Jónsdóttur, f. 20. júlí 1941. Foreldrar Sig- urlaugar voru Sigurbjörg Theo- dóra Guttormsdóttir, f. 4. októ- ber 1904, d. 19. febrúar 1952 og Jón Sigtryggur Sigfússon, f. 1. september 1903, d. 17. nóvember 1987. Börn Stefáns og Sig- urlaugar eru: 1) Sigurbjörg Th., f. 20. febrúar 1964, gift Magnúsi Hlíðdal Guðjónssyni, börn þeirra eru: a) Droplaug Ýr, f. 10. febr- úar 1990, b) Magnús Hlíðdal, f. 8. febrúar 1996, c) Ingi Már, f. 20. júlí 1999. 2) Vagn Þormar, f. 31. júlí 1965, sambýliskona Guðrún Elva Ármannsdóttir, börn þeirra eru: a) Jóna Kristín, f. 21. sept- ember 1995, b) Anna Baldvina, f. 27. janúar 1998, c) Stefán Ármann, f. 11. mars 2000, d) Helgi, f. 4. apríl 2002. 3) Jón Hjört- ur, f. 12. apríl 1968, giftur Þorbjörgu Harðardóttur, börn þeirra eru: a) Inga Margrét, f. 21. jan- úar 1996, b) Ólafur Þórarinn, f. 21. október 1999. 4) Guttormur Hrafn, f. 25. maí 1979, giftur Kristínu Höllu Bergsdóttur, börn þeirra eru: a) Ragnhildur Sigurlaug, f. 8. febr- úar 2007, b) Sigurbjörg Svandís, f. 28. janúar 2010. Stefán fluttist með foreldrum sínum að Minni-Ökrum vorið 1938 og bjó þar alla sína ævi. Þar ólst hann upp við hefðbundin sveitastörf. Á sínum yngri árum fór hann á vertíðir til Vest- mannaeyja en einnig vann hann ýmis önnur störf á lífsleiðinni svo sem við vegagerð og þjón- ustu. Stefán tók við búi foreldra sinna á Minni-Ökrum ásamt Sig- urlaugu konu sinni og var þar oft margt um manninn. Á Minni- Ökrum var og er stundaður blandaður búskapur og var ís- lenska sauðkindin í miklu uppá- haldi hjá Stefáni. Eftir að hann hætti búrekstri fór hann þó dag- lega í fjárhúsin og hafði mikla ánægju af. Jarðaför Stefáns fer fram frá Miklabæjarkirkju í dag, 12. nóv- ember 2011, og hefst athöfnin kl. 14. Minning um afa. Ungar systur eru þögular og hugsandi þegar þeim er sagt frá andláti afa síns. Margt flýgur um hugann hjá þeirri eldri sem er fjögurra ára. Báðar hafa þær notið hlýju og nærveru afa síns. Eftir langa þögn læðast þó tár niður vangann um leið og sagt er: „Er afi þá hjá Guði? Guð er uppi á himn- inum, hann kemur aldrei niður. Hann er fyrir ofan fuglana og ský- in og himininn. Þar er afi líka.“ Já, margt er það sem börnin skilja en samt læddist ein spurn- ing með eftir langa íhugun: „Fer afi ekki örugglega upp á himininn? Skýst hann afi þá upp úr kassan- um og til Guðs?“ Þetta voru fallegar hugsanir hjá ungri afastelpu og að lokum sagði hún um leið og sú yngri kinkaði kolli til sannfæringar: „Afastjarna er stærsta stjarnan í loftinu.“ Takk fyrir okkur, afi minn, og takk fyrir að vera svona góður við okkur. Þínar afastelpur, Ragnhildur Sigurlaug og Sigurbjörg Svandís. Mig langar að minnast elsku- legs bróður míns og kveðja hann með fátæklegum orðum. Hann var mér ætíð ljúfur, góður og tryggur bróðir. Ég man er þú vannst á vellinum og gafst mér fallegustu skó sem ég hafði á ævi minni séð, þetta voru rauðar bomsur sem kallaðar voru bullubomsur. Ég var svo glöð yfir því að bróðir minn væri að hugsa til mín. Mig langar að þakka þér hvað þú varst góður við börnin mín. Oft þurfti ég að vinna yfir sum- artímann og alltaf voru þau þá vel- komin á Minni-Akra til ykkar Sillu. Ég kveð þig með þessu ljóði sem ég held mikið upp á. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Minning þín mun lifa áfram í hjarta mínu. Þín systir, Aðalbjörg Vagnsdóttir (Abba). Stefán Ingi Vagnsson • Hlýlegt og gott viðmót á Grand hótel. • Fjölbreyttar veitingar lagaðar á staðnum. • Næg bílastæði og gott aðgengi. Grand erfidrykkjur Grand hótel Reykjavík, Sigtúni 38, sími 514 8000. erfidrykkjur@grand.is grand.is MOSAIK Hamarshöfða 4 110 Rvk sími 587 1960 www.mosaik.is TILBOÐSDAGAR Frí uppsetning á höfuðborgarsvæðinu og frí sending út á land á legsteinum sem pantaðir eru í nóvember ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, MATTHÍAS Á. MATHIESEN, lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, miðvikudaginn 9. nóvember. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 17. nóvember kl. 13.00. Sigrún Þ. Mathiesen, Árni M. Mathiesen, Steinunn K. Friðjónsdóttir, Halldóra M. Mathiesen, Frosti Bergsson, Þorgils Óttar Mathiesen, Matthías Árni, Bergur, Sigrún, Kristín Unnur, Halla Sigrún, Einar Páll og Arna Steinunn. ✝ Elskuleg systir okkar, ÞÓRHILDUR HREFNA JÓHANNESDÓTTIR frá Garði á Skagaströnd, dvalarheimilinu Sæborg, Skagaströnd, lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi miðvikudaginn 9. nóvember. Guðmundur Jóhannesson, Guðrún Jóhannesdóttir og aðrir aðstandendur. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR S. JÓNSSONAR ÆRLÆK. Guðný Tryggvadóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Gísli Halldórsson, Jón Halldór Guðmundsson, Guðný María Sigurðardóttir, Kristján Þráinsson, Tryggvi Arnsteinn Guðmundsson, Guðrún Torfadóttir, afabörn og langafabörn. ✝ Ástkær sonur minn, bróðir okkar og mágur, KRISTJÁN ERNST KRISTJÁNSSON frá Eftri-Dálksstöðum, Svalbarðsströnd, sem lést á Landspítalanum að morgni föstu- dagsins 11. nóvember, verður jarðsunginn frá Svalbarðskirkju laugardaginn 19. nóvember kl. 13.30. Elíta Benediktsson, Friðrika Stendevad Larsen, Poul Stendevad Larsen, Benedikt Kristjánsson, Álfheiður Björk Karlsdóttir, Jóhannes Kristjánsson. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR JÓNSSON, lést á sjúkrahúsi í Northampton, Massa- chusetts, sunnudaginn 6. nóvember. Sigmundur Magnús Jónsson, Ingveldur Sigmundsdóttir Potter, Clifford Mark Potter, Arndís Edda Jónsson, Bergþór N. Bergþórsson, Gunnar B. Jónsson, Ásthildur H. Jónsson, Bjarni Jónsson, Ómar G. Jónsson, Rannveig H. Hermannsdóttir, Tryggvi S. Jónsson, Jennifer H. Jónsson og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ODDNÝ PÉTURSDÓTTIR, andaðist á hjúkrunardeild Hrafnistu í Hafnar- firði fimmtudaginn 10. nóvember. Útför hennar fer fram frá Víðistaðakirkju Hafnarfirði fimmtudaginn 17. nóvember kl. 15.00. Sigurður Ólafsson, Ásdís Hildur Finnbogadóttir, Örn Ólafsson, Margrét Gledhill, Ólafur Þröstur Ólafsson, Agnes Anna Sigurðardóttir, Valur Ólafsson, Auður Arna Guðfinnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.