Morgunblaðið - 12.11.2011, Page 40

Morgunblaðið - 12.11.2011, Page 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2011 ✝ Steinunn ErlaMarinósdóttir fæddist í Vest- mannaeyjum 7. febrúar 1948. Hún lést á sjúkrahúsi Fjallabyggðar 31. október 2011. Steinunn Erla var dóttir hjónanna Einars Marinós Jó- hannessonar frá Viðvík við Bakka- fjörð, f. 16. ágúst 1901, d. 18. september 1955 og Guðrúnar Hákonardóttur frá Höfnum, f. 24. febrúar 1911, d. 27. júlí 1984. Steinunn Erla var yngst þriggja systra, hinar voru Hilma, f. 30. des. 1932 og Margrét Guðrún, f. 23. mars 1936, d. 7. jan. 2004. Steinunn Erla var gift Sveini Filippussyni frá Mjóafirði, f. 28. maí 1947, d. 2. apríl 2010. For- Stefán Dam, f. 7. jan. 2006. b) Sveinn Filippus, f. 2. jan. 1991, unnusta hans er Sandra Rós Bríem, f. 15. mars 1994. c) Arn- dís, f. 3. okt. 1993, unnusti henn- ar er Þórhallur Dúi Ingvarsson, f. 20. júlí 1989. d) Hildur, f. 11. nóv. 1994, unnusti hennar er Ingólfur Jón Lingberg Hall- dórsson, f. 17. feb. 1992. e) Arna, f. 18. maí 2003. 3) Kolbrún, f. 17. maí 1974, hún á eina dóttur Lilju Kristínu, f. 25. ágúst 1994. Steinunn Erla ólst upp í Vest- mannaeyjum til sjö ára aldurs, þá missti hún föður sinn og flutt- ist til Reykjavíkur með móður sinni. Steinunn Erla var 16 ára er hún fór á vertíð í Vest- mannaeyjum og þar kynntist hún eiginmanni sínum, þau byrj- uðu búskap sinn í Reykjavík, en árið 1976 fluttu þau með dætur sínar til Siglufjarðar. Steinunn Erla sinnti hinum ýmsum störf- um þar til veikindi hennar herj- uðu á. Útför Steinunnar Erlu fer fram frá Siglufjarðarkirkju í dag, 12. nóvember 2011, og hefst athöfnin kl. 14. eldrar hans voru Filippus Filipp- usson f. 22. des. 1897, d. 9. sept. 1966 og Jóhanna Margrét Björgólfs- dóttir, f. 8. júlí 1923, d. 4. feb. 2009. Steinunn Erla og Sveinn eign- uðust þrjár dætur; 1) Stúlka, f. 23. ágúst 1967, d. 23. ágúst 1967. 2) Sigurrós, f. 17. júlí 1968, hún er gift Sverri Gísla- syni, f. 8. feb. 1963, saman eiga þau fimm börn, þau eru a) Erla Heiða, f. 6. júlí 1988, sambýlis- maður hennar er Kristinn Ingi Sigurðsson, f. 11. jan. 1984, sam- an eiga þau tvö börn, þau eru Björn Sigurður, f. 6. júní 2008 og Jóhanna Margrét, f. 13. sept. 2009, fyrir á Erla Heiða soninn Elsku mamma. Þakka þér fyrir allar okkar samverustundir. Það eru nokkur atriði sem standa mér efst í huga. Það var mjög gaman að sjá hvað þú og pabbi nutuð ykkar við smíð- ar á skútunni, ég tala nú ekki um gleðina og stoltið þegar þið sigld- uð í kringum landið á meistara- verki ykkar og hvað þið nutuð þess að vera á siglingu í góðu veðri. En þá tóku við erfiðir tímar hjá þér þegar veikindin byrjuðu hjá þér og ekki tók betra við þegar þú lentir í þessu hroðalega slysi fyrir sex árum og þér var ekki hugað líf, en þrjóskan þín og lífs- löngun var svo mikil að þú sigraðir á því. Í kjölfarið sögðu læknar að þú myndir ekki ganga á ný en á þrjóskunni tókst þér að ganga með hjálpartæki og ég tala nú ekki um það þegar þú fékkst gull- vagninn, þá gastu farið ein á ferð- ina þegar þú áttir góðan dag og gott veður var. Þú sýndir svo mik- inn baráttuhug í öllum þínum veikindum. En eftir að pabbi lést fór baráttuhugur þinn hratt minnkandi. En við áttum margar góðar stundir þegar við fórum vestur í afmæli hjá yngsta barna- barni þínu og þú varst svo ánægð að geta komist þangað . Ég tala nú ekki um ferðina sem við fórum til Hríseyjar nú í haust, þú, ég, Sverrir, Hildur, Arna, Ingólfur og Drabba, ég keyrði þig í hjólastóln- um um eyjuna og svo fundum við okkur góðan stað til að setjast nið- ur og borða nestið okkar. Þú varst svo glöð yfir að geta komist í eyj- una til að skoða þig um og varst mjög ánægð með þessa ferð. Síðan fór allt að halla undan fæti hjá þér, enn meiri veikindi og allur bar- áttu- og lífsvilji farinn, þú varst búin að fá nóg af þessum veikind- um og stanslausum verkjum. Þín heitasta ósk var að komast aftur til pabba. Nú líður þér mikið betur, elsku mamma mín, komin til pabba og verkjalaus. Takk fyrir allt, elsku mamma mín. Hvíld í friði, elsku mamma mín, ég sakna þín svo mikið. Ég sendi þér kæra kveðju, Nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, Ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta Þá laus ert úr veikinda viðjum Þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti Þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, Svo margt sem í huga minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi Ég hitti þig ekki um hríð, Þín minning er ljós sem lifir Og lýsi um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Guð geymi þig og varðveiti. Kveðja, þín dóttir, Sigurrós. Elsku mamma mín. Þvílíkur kraftur og styrkur sem í þér bjó, þú barðist ávallt áfram, sama hvað. Það er misjafnt hvað lagt er á hvern og einn í þessu jarðneska lífi, en oft spurði ég guð „er ekki komið nóg“. Þú varst bú- inn að vera svo veik svo lengi með miklum kvölum og mörgum sjúkrahúslegum. Oft hef ég heyrt þessi orð í gegn um árin: „Ekki gera þér vonir um að hún lifi“, en ávallt afsannaðir þú orð læknanna og komst aftur heim og hélst áfram að lifa. Þú sagðir ávallt að það væri pabbi sem héldi í þér líf- inu og ást ykkar hvors til annars, En eftir að pabbi dó apríl í fyrra fór stór hluti af þér með, og bar- áttan dofnaði. Nú ertu komin í faðm pabba og ég veit og trúi að nú séuð þið saman að gera skemmtilega hluti eins og hér áð- ur. Elska þig að eilífu. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur) Þín dóttir Kolbrún. Elsku tengdamamma. Þakka þér fyrir allar þær stundir sem við áttum saman, einnig þakka ég þér fyrir að hafa eignast svona góða dóttur sem síð- ar varð kona mín. Það eru svo margar minningar sem ég geymi í hjarta mér og gleymi aldrei. Þeg- ar þú sást einhvern sem var veik- ur þá heyrðist alltaf í þér aum- ingja konan eða maðurinn, hvað hún eða hann ætti bágt þegar ein- hver veikindi voru og sagðir alltaf að það væri ekkert að þér eins og þú varst mikið veik sjálf. Þú gerðir mikið meira en þú gast því þú ætl- aðir ekki að lúta í lægra haldi fyrir þessum veikindum. Það var aðdá- unarvert að sjá hvað þú varst dug- leg að standa við bakið á manni þínum þegar hann veiktist einnig. Þetta er búið að vera mikið bar- áttulíf hjá þér, en svo fór allt að halla undan fæti hjá þér þegar maðurinn þinn lést, ég veit að þér líður miklu betur núna, allir verkir farnir og þú komin aftur í faðminn hjá Sveini þínum. Hvíl í friði, elsku tengda- mamma mín. Það er sumt sem maður saknar vöku megin við. Leggst út af á mér slokknar, svíf um önnur svið. Í svefnrofunum finn ég sofa lengur vil. Því ég veit að ef ég vakna upp finn ég aftur til. Kær kveðja Sverrir. Elsku amma. Það hefur verið mikill heiður að hafa þig í lífi okkar. Mínar fyrstu minningar um þig eru frá því við eldhúsborðið heima hjá þér þar sem ég sit með litabók og vaxliti og lita fallegar myndir með gyllt- um lit, þú segir mér alltaf hvað þér finnst þær flottar hjá mér, alveg sama hversu mikið ég krota, en hvetur mig samt til þess að halda mig innan línanna. Ég man líka eftir því þegar við sátum inni í svefnherberginu þínu og þú last fyrir mig úr stóru rauðu sögubók- inni sem ég man því miður ekki hvað heitir, þú last líka fyrir mig Doddabækurnar sem mér fannst alveg æðislegar. Alltaf þegar ég fór með þér í búðina þurfti ég að sýna þér eitthvað: „Amma sjáðu hvað þetta er flott… amma sjáðu mig langar rosa mikið í svona…“ Þetta var nú bara fín aðferð fyrir mig til að betla það sem mig lang- aði í. Það mun einnig alltaf verða sterkt í minningunni þegar ég var að reyna að kenna þér að hlaupa. „Sjáðu amma… þú gerir bara svona, þetta er ekkert mál, þú get- ur þetta alveg.“ Svo sýndi ég þér hreyfingarnar mjög hægt svo þú myndir læra það. Ég man líka mjög vel þegar þið afi komuð í heimsókn til okkar á Túngötuna með Skugga. Ég vildi endilega fá að fara með hann út að labba, og það var ekkert mál, ég mátti bara ekki sleppa honum og átti að passa hann rosalega vel. Þegar ég var búin að vera með hann úti í smástund sá hann kött, og auðvit- að hljóp hann á eftir kettinum, en ég sleppti ekki, hann dró mig í smátíma eftir mölinni en ég sleppti samt ekki, ég var að passa hann… Það hefur verið mikið hlegið að þessu atviki svona á seinni árum. Það sem mér þykir þó allra vænst um er þegar þú komst með mömmu alla leið á Hólmavík til að koma í eins árs af- mælið hennar Jóhönnu okkar. Það var mjög gaman að fá þig í heim- sókn til okkar, elsku amma mín. En núna er komið að kveðju- stund, ég er ekki aðeins að kveðja ömmu mína, heldur er ég einnig að kveðja mína bestu vinkonu og trúnaðarvin. Þín verður sárt sakn- að og ávallt minnst með bros á vör, ég mun alltaf muna eftir öllum góðu stundunum sem við áttum saman. Þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig í gegnum lífið. Ég mun alltaf elska þig. Með kærri kveðju. Erla Heiða. Elsku amma. Það er ótrúlega sárt að þú sért ekki lengur hjá okkur, en tilhugs- unin um að þú sért ekki lengur að stríða við erfið veikindi, og að þér líði miklu betur núna þegar þú ert komin til afa er samt góð. Við áttum margar góðar minn- ingar saman. Ég mun aldrei gleyma hvað það var alltaf ótrú- lega gaman að koma í heimsókn til þín þegar ég var lítil. Það voru alltaf til litabækur hjá þér og við áttum sér litabók sem var okkar en var bara geymd hjá þér. Bestu minningarnar mínar eru samt síðan á síðustu árum þegar ég kom í heimsókn til þín og við vorum bara tvær og gátum talað saman um allt milli himins og jarð- ar. Mér leið alltaf svo vel eftir að við töluðum saman, það var ótrú- lega skemmtilegt. Ég er þakklát fyrir allan þann tíma sem við höfðum saman. Ég vil bara segja þér að ég elska þig ótrúlega mikið og mun aldrei gleyma þér. Hvíldu í friði, elsku amma. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. Höndin þín, Drottinn, hlífi mér, þá heims ég aðstoð missi, en nær sem þú mig hirtir hér, hönd þína eg glaður kyssi. Dauðans stríð af þín heilög hönd hjálpi mér vel að þreyja, meðtak þá, faðir, mína önd, mun ég svo glaður deyja. Minn Jesús, andlátsorðið þitt í mínu hjarta eg geymi, sé það og líka síðast mitt, þá sofna eg burt úr heimi. (Hallgrímur Pétursson) Kveðja, Arndís. Elsku amma. Ég er mjög þakklát fyrir þær stundir sem við áttum saman, það eru nokkur atriði sem eru mér minnisstæð. Það var svo gaman þegar þú varst á gullvagninum þínum á ferðinni um allan bæinn og ef ég hitti þig í bænum þá bauðstu mér með þér á ferðina. Þetta var voðalegt sport að keyra um með þér á honum. Þegar ég kom í heimsókn til þín þá sá ég oft- ast ópal-pakka á borðinu og ég varð alltaf svo svöng og þá vissir þú alltaf að mig langaði í ópal. Við sátum oft við saman við eldhús- borðið og lituðum og púsluðum. Við áttum mjög góðar stundir saman. Það eru enn fleiri minn- ingar sem ég ætla að geyma í hjarta mínu. Takk fyrir mig, elsku amma mín. Guð geymi þig. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Þín Arna. Elsku amma. Ég veit að ég mun ekki sjá þig aftur og það er sárt að hugsa um það. Ég mun alltaf sakna þín og stundanna sem við áttum saman. Við áttum margar góðar stundir saman, eins og til dæmis þegar ég var yngri og þú varst oft að mála mig og gera mig sæta. Ég man líka eftir því hvað ég var ótrúlega hrædd við töngina þína, þú þurftir bara að segja töngin og þá varð ég hrædd. Við vorum alltaf svo góðar vinkonur, ég mun aldrei gleyma því, þú munt alltaf eiga stóran part af hjarta mínu. Ég man þegar ég var að kveðja þig í hinsta sinn, það var mjög erfitt, en ég veit að þér líður betur núna, núna ertu hjá afa, sem þú vildir alltaf, þar sem þér líður best. Ég mun alltaf muna síðustu orðin sem ég sagði við þig, þau voru: Ég elska þig, amma. Ég mun alltaf elska þig. Í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð leiddu mig og lýstu mér um ævistig. Ég reika oft á rangri leið, sú rétta virðist aldrei greið. Ég geri margt, sem miður fer, og man svo sjaldan eftir þér. Sú ein er bæn í brjósti mér, ég betur kunni þjóna þér, því veit mér feta veginn þinn, að verðir þú æ Drottinn minn. (Pétur Þórarinsson) Þín, Hildur. Elsku besta amma mín. Þú varst svo ótrúlega sterk og góð kona. Þú settir alltaf aðra á undan þér og það var næstum alveg sama hver það var. Þú varst húm- oristi og gast látið mann hlæja úr sér allan mátt. Ég á svo margar góðar minningar um þig sem ég mun varðveita mjög vel. Þú áttir samt þínar stundir, eins og þegar þú vildir tala við mann, þá gastu hringt alveg mjög oft ef maður svaraði ekki, en það var samt alltaf svo gaman að tala við þig. Ég á eft- ir að sakna þess mjög að fá ekki símtöl frá þér og geta ekki talað við þig né hitt þig svona almennt. Það var alltaf svo auðvelt að tala við þig, alveg sama hvað það var. Þú varst lengi búin að berjast við mjög erfið veikindi og hefur þurft að upplifa margt erfitt í lífinu sem gerði þig líka að þeirri sterku manneskju sem þú varst. Ég veit að þú varst tilbúin til að fara eftir alla þessa sterku baráttu við veik- indi þín. Núna líka ertu komin til þinnar heitt elskuðu ástar, hans afa. Ég bið kærlega vel að heilsa afa og ég elska ykkur rosalega mikið. Þú varst besta amma sem ég hefði getað fengið. Mér þykir alveg óskaplega vænt um þin, elsku amma mín. Ég mun aldrei gleyma öllum þeim æðislegu stundum sem við áttum saman. Hvíldu í friði amma mín. Drottinn vakir, Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. Blíðlynd eins og besta móðir ber hann þig í faðmi sér. Allir þótt þér aðrir bregðist, aldrei hann á burtu fer. Drottinn elskar, – Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. Löng þá sjúkdómsleiðin verður, lífið hvergi vægir þér, þrautir magnast, þrjóta kraftar, þungt og sárt hvert sporið er, honum treystu, hjálpin kemur, hann af raunum sigur ber. Drottinn elskar, – Drottinn vakir daga’ og nætur yfir þér. Drottinn vakir daga’ og nætur yfir þér. (Sigurður Kristófer Pétursson) Þín ömmustelpa, Lilja Kristín. Elsku amma mín. Það er mjög sárt að þú sért búin að kveðja þennan heim en það eru margar stórar og góðar minningar sem þú skilur eftir þig í huga mér. Til dæmis hvað það var æðislegt að fara í heimsókn til ykkar afa þegar þú varst að baka svona brúna köku með hvítu kremi á milli, sem mér fannst svo rosalega góð, aðallega þegar þú skarst end- ann af kökunni og sendir mig með heim í poka svo ég ætti einhvað til að narta í heima. Síðan voru mínar bestu minningar þegar ég fór með ykkur afa að sigla á skútunni og skoða höfrunga. En nú styttist óðum í jólin og þá fljúga upp minningar um það hvað það var gaman að fara í heimsókn til þín á aðfangadagskvöld þegar ég bjó ennþá á Siglufirði í svona smájólakaffi. Þá varstu búin að standa á haus heilan dag að smyrja brauð og baka kökur og gera kakó handa okkur öllum. En síðustu dagarnir sem ég sá þig voru mér rosalega erfiðir því ég vissi að þú myndir yfirgefa heim- inn fljótlega. En ég vissi að þú værir tilbúin að fara og það hjálp- aði mér svolítið að líða betur. Þú verður alltaf í minningu minni og ég mun alltaf sakna þín, elsku amma. Ég heyrði Jesú himneskt orð: Kom, hvíld ég veiti þér. Þitt hjarta’ er mætt og höfuð þreytt, því halla’ að brjósti mér. Ég kom til Jesú sár af synd, og sorg, af þreytu’ og kvöl, og nú er þreytta hjartað hvílt og horfið allt mitt böl. Ég heyrði Jesú ástarorð: Kom ég mun gefa þér að drekka þyrstum lífs af lind, þitt líf í veði er. Ég kom til Jesú. Örþyrst önd þar alla svölun fann, hjá honum drakk ég lífs af lind. Mitt líf er sjálfur hann. Ég heyrði Jesú himneskt orð: Sjá, heims- ins ljós ég er. Lít þú til mín, og dimman dvín og dagur ljómar þér. Ég leit til Jesú, ljós mér skein, það ljós er nú mín sól, er lýsir mér um dauðans dal að Drottins náðarstól. Hvíldu í friði, elsku amma. Sveinn Filippus. Steinunn Erla Marinósdóttir ✝ Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, ÁRNI A. EIRÍKSSON, Hrafnistu, Hafnarfirði, andaðist laugardaginn 5. nóvember. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 16. nóvember kl. 13.00. Guðbjörg Árnadóttir, Sigfús Jóhannesson, Árni Þ. Sigfússon, Sonja D. Sigfúsdóttir, Elvar H. Aðalgeirsson, Sigfús Kári og Dagný Lilja. ✝ Okkar ástkæri RAGNAR RAGNARSSON, Goðatúni 12, Garðabæ, lést miðvikudaginn 9. nóvember. Júlíana, Jóhanna, Sveinn, Kristján og Ingibjörg Magnúsarbörn, Sigurjón, Arnleif Margrét, Hrefna og Bjarni Kristinsbörn og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.