Morgunblaðið - 12.11.2011, Qupperneq 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2011
Hefndarþorsti er önnurbók Michaels Ridpathsum Magnús Jonsson, að-stoðarvarðstjóra í lög-
reglunni í Boston, sem skolar upp á
Íslandi og gengur í lögreglustörf.
Foreldrar Magn-
úsar voru íslensk-
ir þannig að Ís-
lendingurinn á
stóran hlut í
hjarta hans, þótt
stundum líði hon-
um eins og hann
passi ekki inn í
samfélagið.
Sögusviðið í
Hefndarþorsta er annars vegar
bankahrunið og eftirmálar þess og
hins vegar atvik á fjórða áratug 20.
aldar sem tveir litlir drengir verða
vitni að. Ridpath gerir mótmælin í
byrjun árs 2009 að vettvangi glæps,
sem síðan vindur upp á sig. Margir
eru illa brenndir eftir hrunið og ör-
væntingin leiðir til örþrifaráða. Höf-
undur fer þá leið að halda sig við at-
burðarásina í stórum dráttum, en
skálda lykilpersónur á borð við auð-
menn og stjórnmálamenn og er það
vel til fundið í ljósi alls þess, sem á
dynur.
Það var ljóst strax í fyrstu bók
Ridpaths um Magnús, Hringnum
lokað, að hann þekkir vel til Íslands.
Í þeirri bók studdist hann við ís-
lenskan sagnaarf með vísunum í
ýmsar áttir, þar á meðal í Hringa-
dróttinssögu J.R.R. Tolkiens.
Þar leikur uppgjör Magnúsar við
fortíðina – faðir hans var myrtur í
Bandaríkjunum og morðið er enn
óleyst – stórt hlutverk. Ráðgátan
um morðið á föður hans leikur enn
stærra hlutverk í Hefndarþorsta og
er kafað ofan í fjölskyldusöguna
með köflum úr fortíðinni.
Íslendingasögurnar leika einnig
hlutverk í þessari bók. Þær eru
tenging Magnúsar við gamla landið
og hann er betur lesinn í þeim en
flestir Íslendingar.
Ljóst er að íslenskir lesendur
munu lesa Hefndarþorsta með mjög
gagnrýnum augum í þeirri von að
geta hankað höfundinn á vanþekk-
ingu á Íslandi og íslenskum að-
stæðum. Á frásögninni er hins vegar
hvergi að sjá að útlendingur skrifi
hér um land, sem hann hefur nýver-
ið kynnst. Lýsingar á hugarfari
landans fyrir og eftir hrun hitta
beint í mark.
Ridpath er einnig mjög vel heima
í staðháttum á Íslandi og stundum
fara fulllangir kaflar í að lýsa fjöll-
um og firnindum. Hann er líka
glöggur og tekur vel eftir. Á einum
stað sér söguhetjan kirkjuna í
Stykkishólmi: „Þetta var annars
konar geimflaug en Hallgrímskirkja
í Reykjavík en Magnús gat ekki
annað en velt vöngum yfir því hvort
á bak við hönnun íslenskra kirkna
lægi einhvers konar undarleg
geimguðfræði.“ Hann er ekki einn
um að hafa velt fyrir sér hönnun á
kirkjum á Íslandi.
Hefndarþorsti er spennandi og
skemmtileg aflestrar. Þarna ægir
saman íslenskum byltingarsinnum,
gjaldþrota bankamönnum, rótlaus-
um lögreglumönnum og glefsum úr
fortíðinni. Ridpath sýnir ekki leiftr-
andi stílbrögð, en hann er ágætur
penni, skrifar hnökralausan og læsi-
legan texta og sögunni vindur hratt
fram. Í lokin er ljóst að sögu Magn-
úsar er ekki lokið. Ein gáta er leyst,
önnur óleyst og uppgjörið við fortíð-
ina er eftir.
Einhverjir eiga ef til vill eftir að
eiga erfitt með að trúa því upp á Ís-
lendinga að þeir grípi til þeirra ráða,
sem lýst er í bókinni, en reynslan
sýnir þó að þegar kemur að hinu
ótrúlega er skáldskapurinn yfirleitt
langt að baki raunveruleikanum.
Hefndarþorsti bbbnn
Eftir Michael Ridpath. Þórdís Gísladótt-
ir þýddi. Veröld gefur út, 389 bls.
KARL
BLÖNDAL
BÆKUR
Morgunblaðið/Kristinn
Michael Ridpath „Þarna ægir saman íslenskum byltingarsinnum, gjaldþrota bankamönnum, rótlausum lögreglumönnum og glefsum úr fortíðinni“.
Örþrifaráð hinna örvæntingarfullu
Ínýjustu skáldsögu sinnistefnir Steinar Bragi tveim-ur pörum, nútímavæddumborgarbörnum fram í fing-
urgóma og firrtum eftir því, inn á
hálendi Íslands
þar sem þau
mæta … tja …
örlögum sínum
mætti segja. Að
vanda er ekki
allt sem sýnist
hjá Steinari
Braga, undirtexti
fylgir meginsög-
unni, nokkrir
meira að segja og hann vinnur á
nokkrum sviðum í einu; hér er í
aðra röndina magnaður hroll-
vekjutryllir á ferð en í hina sál-
greining á nútímamanninum og
þjóðfélaginu sem getur hann af sér.
Næmar lýsingar á sálarlífi brot-
hættra einstaklinga, saman með
minnum úr íslenskum þjóðsögum
og atburðarás sem kallar fram has-
armyndir frá Hollywood – Steinar
er með marga og sumpart ólíka
bolta á lofti. Pörin tvö lenda í því
að keyra jeppa sínum á hús í sand-
auðninni fyrir ofan Vatnajökul og á
því augnabliki hrekkur sagan í
gang. Hið nýja (og sjúka) klessu-
keyrir í bókstaflegri merkingu á
hið gamla og forna (sem reynist á
sinn hátt, jafn sjúkt og hið nýja). Í
gegnum söguhetjurnar fjórar vinn-
ur Steinar svo markmiðsbundið
með gagnrýni á nútímasamfélagið,
hrunið og þá siðferðislegu hnignun
sem þar varð. Hér tekst honum
hvað best upp. Eftir því sem sög-
unni vindur fram magnast svo upp
torkennilegur óhugnaður sem ligg-
ur undir öllu, einhver ógn sem ýjað
er að af meiri ágengni eftir því sem
síðunum fjölgar. Kvikmyndir eins
og The Human Centipede, þar sem
gengið er markvisst fram af fólki
með viðbjóði, koma óneitanlega upp
í hugann. Lokaspretturinn minnir
þá helst á James Bond þó að í blá-
endann spretti fram torræðni og
súrrealismi sem fer höfundi til
muna betur en kvikmyndalega
nálgunin. Stíll Steinars er kald-
hamraður nokk og myrkur og hann
hefur það á valdi sínu að draga
mann óskiptan inn í textann. Hér
fara því oft og tíðum fram mögnuð
stíl-áhlaup og Steinar kann vel að
skrifa, það er ekki vandamálið. Nei,
vandi þessarar bókar liggur fyrst
og síðast í erfiðleikum með að
binda saman þessa ólíku frásagn-
arhætti sem nefndir hafa verið,
bókin er hreinlega of mikið í lausu
lofti þegar lestri er lokið þrátt fyrir
glæsitilþrif hér og hvar.
Innstu myrkur
Hálendið
bbbnn
Eftir Steinar Braga.
Mál og menning gefur út. 253 bls.
ARNAR EGGERT
THORODDSEN
BÆKUR
Steinar Bragi Nýtir hálendi Íslands
undir glúrna samfélagsrýni