Morgunblaðið - 12.11.2011, Side 56
LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 316. DAGUR ÁRSINS 2011
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 649 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Þetta eru matvælin sem bæta …
2. Dönsk söngkona flytur til Íslands
3. Vörslusvipt fyrir mistök
4. Fundu spor við jökulinn
Fjallabræður halda tvenna tónleika
í Fríkirkjunni í Reykjavík hinn 19. nóv-
ember. Þeim til halds og trausts
verða vitfirringarnir þrír, Jónas Sig.,
Magnús Þ. Sigmundsson og Mugison.
Fjallabræður syngja
í Fríkirkjunni
Gallerí Fold og
Bókin Klapparstíg
efna til bóka-
uppboðs á vefn-
um uppboð.is í
dag. Á uppboðinu
verða sjaldgæfar
og sögulega
merkilegar bækur
og má þar nefna
frumútgáfu af God rest you merry
Gentlemen eftir Hemingway sem gef-
in var út í New York 1933. Upplagið
var aðeins 300 eintök og er þetta
eintak tölusett nr. 175.
Bókauppboð á
vefnum uppboð.is
Disney mun frumsýna The Secret
World of Arrietty, japanska teikni-
mynd á vegum Ghibli-versins á næsta
ári með ensku tali. Stikla er
nú komin inn á verald-
arvefinn og styðst hún
að megninu til við tón-
list frá Jónsa okkar. Um
er að ræða lagið
„Around Us“ sem
heyra má á sóló-
plötu Jónsa,
Go. Jónsi og
Disney – er það
eitthvað?
Jónsi í stiklu fyrir
Disney-mynd
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Minnkandi austanátt og væta með köflum, en úrkomulítið á N- og
V-landi síðdegis. Hiti 3 til 10 stig.
Á sunnudag Norðaustan 8-13 m/s norðvestantil fram eftir degi, annars fremur hæg
austlæg átt. Skýjað og víða dálítil væta í fyrstu. Hiti 4 til 10 stig.
Á mánudag
Suðaustan 8-15 m/s og rigning, en hægari og yfirleitt þurrt á norðaustanverðu landinu.
Golfsamband Íslands sótti um að fá
að halda eitt stærsta áhuga-
mannamót í heimi, Evrópumót ein-
staklinga, en fékk ekki náð fyrir aug-
um Evrópska golfsambandsins.
Framkvæmdastjóri þess kom hingað
til lands og gerði úttekt á íslenskum
aðstæðum. Innan golfhreyfing-
arinnar eru menn ekki alls kostar
sáttir við niðurstöður hans. »1
Ísland sótti um að
halda EM einstaklinga
Stjarnan komst upp í annað
sæti úrvalsdeildar karla í
körfuknattleik í gærkvöldi
þegar liðið vann Snæfell,
90:89, í háspennuleik í Ás-
garði í Garðabæ.
Sigurganga Grindavíkur
heldur áfram í deildinni en
liðið lagði Hauka. Þá lagði
ungt lið Njarðvíkur liðs-
menn ÍR á útivelli og held-
ur áfram að kroppa
saman stig. »4
Stjarnan vann í
háspennuleik
Stjarnan heldur sínu
striki á gervigrasinu
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Þeir sem vilja vita hvort stór-
hneykslum hafi í tímans rás verið
sópað undir teppið hjá Eimskip og
SÍS gætu nú komist í feitt. Nor-
ræni skjaladagurinn er í dag og
settur þjóðskjalavörður, Eiríkur G.
Guðmundsson og Pétur Sigurðs-
son, forstjóri Straums, munu und-
irrita í hádeginu samkomulag um
að Þjóðskjalasafnið fái á næstunni
alls um 120 hillumetra af skjölum
Eimskipafélagsins og Burðaráss.
Einnig er verið að semja við
ráðamenn núverandi Eimskipa-
félags um álíka magn skjala. Sam-
band íslenskra samvinnufélaga,
SÍS, er enn formlega til og hefur
ákveðið að afhenda safninu öll sín
gögn, um 600 hillumetra en félagið
var stofnað 1902, Eimskip hins
vegar 1914. Verður nóg pláss fyrir
þessi gögn?
Þarf aukið hillupláss
„Ekki eins og er en við erum
núna að láta endurbæta húsakynn-
in hér við Laugaveg 162, setja upp
nýjar hillur og rúlluskápa þannig
að hámarksnýting verði á gólf-
plássinu,“ segir Eiríkur. „Við feng-
um fé frá ríkinu til að lagfæra
þann hluta hússins sem ekki var
tilbúinn og erum að taka í notkun
eina hæð.“
Hann segir aðspurður að hver
sem er geti fengið að rannsaka
skjölin sem nú bætast við og þau
séu ágætlega skráð og aðgengi-
leg. „Almennt er þetta opið og
menn panta það sem þeir vilja
sjá. En það gilda auðvitað um
þetta landslög um upplýsingar
og persónuvernd. Ef
þarna eru viðkvæmar
upplýsingar sem varða t.d.
einkafjárhag manna mega bara
þeir fá þær.“
– En ef ég rekst á eitthvað
æsilegt sem mér var ekki ætl-
að að sjá? „Þá ber þér skylda til
að láta okkur vita af því, þú ert
settur undir landslög eins og aðr-
ir!“
Margir hafa áhyggjur af því að í
rafrænum heimi fari sum mikilvæg
skjöl beint í netgrafreitinn og
hverfi þar, ekkert afrit verði til á
safni handa afkomendunum. En
Eiríkur segir að ný gögn séu í vax-
andi mæli varðveitt með rafrænum
hætti til frambúðar. Hann nefnir
sem dæmi hrunskýrslu Alþingis og
öll gögn sem henni fylgdu, stór
hluti þeirra verði geymdur líka
rafrænt. Og allt er þetta kerfis-
óháð, notaðir opnir staðlar og
myndabankar. Eftir 100 ár þarf
því ekki löngu gleymd forrit frá
Microsoft til að nálgast gögnin.
Leyndarmál undan teppinu?
Þjóðskjalasafn-
ið fær skjalasöfn
Eimskips og SÍS
Morgunblaðið/Kristinn
Þjóðskjalasafnið Eiríkur G. Guðmundsson, settur þjóðskjalavörður, segir að hver sem er geti rannsakað skjölin.
Þema norræna skjaladagsins er að
þessu sinni Verslun og viðskipti,
dagskráin hefst í Þjóðskjalasafn-
inu kl. 12. Eftir hádegið flytja sagn-
fræðingar erindi, m.a. um brenni-
stein og byssupúður og framlag
Íslendinga til hergagnafram-
leiðslu Dana. Héraðsskjalasöfn-
in á Akranesi og í
Dalasýslu verða
með opið hús og
safnið á Akureyri
með sýningu sem stendur til 25.11.
Þar verða tíndar til allar verslanir
sem vitað er um í bænum frá lok-
um einokunartímans.
Til eru bækur fjölmargra versl-
ana frá 19. og 20. öld, úttektir ein-
stakra viðskiptavina sýna vel
neyslumynstrið, segir á síðunni
skjaladagur.is. Og fólk keypti lítið í
búðunum á 19. öld, mest timbur,
járn, korn og smávegis af mun-
aðarvöru, þ.e. tóbaki og brennivíni.
Munaðarvaran var fábrotin
ÞEMA SKJALADAGSINS ER VERSLUN OG VIÐSKIPTI
Stjörnumenn ætla halda sínu striki
og spila á gervigrasi næstu árin. Nýtt
knattspyrnugras verður lagt á
Stjörnuvöllinn í vetur og formaður
knattspyrnudeildar Stjörnunnar seg-
ir að það hafa geysilega mikið hag-
ræði og sparnað í för með sér. »2