Morgunblaðið - 18.11.2011, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.11.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2011 Opið virka daga frá 9.00-18.00 og lau. frá 10.00-16.00 Laugavegi 29 - Sími 552 4320 www.brynja.is - brynja@brynja.is Hefilbekkir Þrjár stærðir fyrirliggjandi hann það upp að tólf þúsund einstaklingar eru nú atvinnulausir. Helmingur þeirra hefði verið at- vinnulaus í að minnsta kosti hálft ár, þar af fjögur þúsund og fimm hundruð í heilt ár eða lengur. Ný- birt lífskjarakönnun Hagstofunnar sýndi að meira en helmingur heimila á erfitt með að ná endum saman og þeim hefði fjölgað umtalsvert frá því í fyrra. „Þetta er hinn svokallaði árangur vinstri rík- isstjórnarinnar. Þetta er hrikaleg uppskeran af ráðaleysi hennar og rangri stefnu. Þetta er skjald- borgin sem vinstristjórnin lofaði íslenskum heim- ilum. Hin svokallaða norræna velferð hefur falist í því að kalla fram hrun yfir heimilin á hverju ein- asta ári,“ sagði Bjarni og bætti því við að staðan í efnahagsmálum þjóðarinnar væri ekki glæsileg. Hagvöxtur væri alltof lítill og verðbólga vax- andi. Gjaldþrotum fjölgaði. Skattbyrði almenn- ings væri þyngri en í nokkru öðru OECD-ríki og nú ætlaði Steingrímur J. Sigfússon að láta kné fylgja kviði og hækka skattana enn meira. „Nýtum tækifærin“ eru kjörorð landsfundarins. Lagði Bjarni áherslu á að hefja yrði sköpun nýrra verðmæta. „Ef kraftar fólks og fyrirtækja á Ís- landi eiga að fá að njóta sín til að skapa verðmæti verður að leiða stefnu Sjálfstæðisflokksins til önd- vegis við stjórn landsins,“ sagði Bjarni og rifjaði upp tillögur flokksins í efnahagsmálum sem ný- lega voru kynntar. Sýndarviðræður við ESB Bjarni fór yfir afstöðu flokksins til umsóknar um aðildar að Evrópusambandinu. Draga bæri umsóknina til baka. Þá sagði hann að ríkisstjórnin væri ekki trúverðugur viðsemjandi og ESB-ríkin væru að átta sig á því að viðræðurnar væru miklu nær því að vera sýndarviðræður en aðildarviðræð- ur. „Það er sannfæring mín að hagsmunum Ís- lands sé best borgið utan ESB,“ sagði formað- urinn. Hann sagði að framundan væri mikil barátta fyrir því að koma núverandi vinstristjórn frá völd- um og stefnumálum sjálfstæðismanna til fram- kvæmda. „Þessa baráttu vil ég leiða sem formaður Sjálfstæðisflokksins og berjast við hlið ykkar fyrir hugsjónum okkar allra og fyrir því að leiða Sjálf- stæðisflokkinn inn í nýja tíma – til glæstra sigra. Ég mun hvergi draga af mér. Því heiti ég ykkur. Ég veit að barátta okkar mun leiða íslensku þjóð- ina út úr erfiðleikunum,“ sagði Bjarni undir lok ræðu sinnar. Upphaf baráttunnar  Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hafinn  Formaðurinn vill koma ríkisstjórn- inni frá og leiða stefnu Sjálfstæðisflokksins til öndvegis við stjórn landsins Morgunblaðið/Ómar Við setningu Það var tilfinningarík stund þegar Bjarni Benediktsson lýsti eindregnum stuðningi sjálfstæðismanna við Geir H. Haarde í landsdómsmálinu. BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Við skulum berjast sem einn maður gegn vinstri- öflunum sem nú eru við völd í þessu landi, því þeg- ar við sjálfstæðismenn stöndum saman stenst enginn stjórnmálaflokkur á Íslandi okkur snún- ing. Við skulum nýta þennan landsfund sem upp- haf þeirrar baráttu,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í setningarræðu við upphaf 40. landsfundar flokksins sem hófst í gær. Fundinum lýkur á sunnudag. Þá verður kos- in forysta. Bjarni og Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi borgarstjóri, gefa kost á sér í for- mannskjöri. Bjarni fór yfir þróunina frá því hann bauð sig fram til formennsku, vorið 2009. Þá hefði fylgi flokksins verið í frjálsu falli. Í þingkosningunum mánuði seinna hefði flokkurinn fengið tæp 24% at- kvæða, minnsta fylgi í sögu sinni. Nú mælist fylgið hins vegar 36%. „Við höfum endurheimt fylgið sem tapaðist í síðustu kosningum,“ sagði Bjarni og bætti við: „Þetta er sannarlega mikill árangur. Af honum er ég stoltur – og það eigum við öll að vera, því þetta er okkar sameiginlegi árangur.“ Hann sagði mikilvægt að halda kosningar sem fyrst. Hrikaleg uppskera af ráðaleysi Bjarni sagði ekki síður mikilvægt að ræða stað- reyndir um stöðu heimilanna í landinu. Rifjaði Formaður Bjarni Benediktsson er ánægður með stöðu flokksins eftir tvö ár í embætti. „Hann er dæmi um almennan flokksmann sem hefur staðið með okkur í gegnum þykkt og þunnt,“ sagði Bjarni Benediktsson í setningarræðu sinni og lands- fundarfulltrúar þökkuðu Friðriki Jónssyni fyrir ötult starf í þágu hugsjóna sjálfstæðisfólks í áratugi. Friðrik er níræður og hefur starfað í Sjálfstæðis- flokknum frá því hann gekk í Félag sjálfstæðra drengja árið 1935, þegar flokkurinn var sex ára. Hann er elsti landsfundarfulltrúinn. „Hann vill taka þátt í að móta framtíð Íslands,“ sagði Bjarni. Félagar Bjarni Benediktsson formaður, Friðrik Jónsson og Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður. Tekur þátt í að móta framtíð Íslands Landsfundarfulltrúar stóðu upp og klöppuðu lengi þegar Bjarni Bene- diktsson lýsti yfir stuðningi við Geir H. Haarde, fyrrverandi formann flokksins, í landsdómsmálinu: „Við styðjum þig öll.“ Bjarni sagði að það hefði verið sérstakt áhugamál núverandi stjórnvalda að ná sér niðri á fyrr- verandi forystumönnum Sjálfstæð- isflokksins. Nefndi að ítrekað hefði verið vegið að Davíð Oddssyni og hann hrakinn úr stóli seðlabanka- stjóra „undir þeim ótrúlegu for- merkjum að ráðast þyrfti í hreins- anir í þjóðfélaginu“. „Íslensk stjórnmál náðu síðan nýjum lægðum, og íslenskir stjórn- málamenn sýndu á sér sínar verstu hliðar, þegar meirihluti þingmanna ákvað að efna til pólitískra réttar- halda yfir Geir H. Haarde, fyrrver- andi formanni okkar. Með því freistuðu andstæðingar flokksins þess að gera Geir ábyrgan fyrir hruninu, einan stjórnmálamanna,“ sagði Bjarni. Hann beindi orðum sínum að Geir og sagðist standa heilshugar að baki honum í þessu máli, það gerði einnig hver einasti þingmaður og sveitarstjórnarmaður flokksins. „Og ég veit að ég tala fyrir hönd allra sem hér eru inni, fyrir hönd hvers einasta sjálfstæðismanns á landinu, og þúsunda Íslendinga, þegar ég segi: Við styðjum þig öll.“ Við styðjum þig öll Tillögur siða- og fjármálanefndar verða kynntar á landsfundi kl. 9 í dag og kl. 10 verður skýrsla framtíð- arnefndar kynnt. Fyrirspurnatími forystu flokksins hefst klukkan 11. Dagurinn fer annars í störf nefnda. Á morgun, laugardag, verða kynnt drög að stjórn- málaályktun kl. 11 og umræður hefjast. Eftir hádegið hefst afgreiðsla ályktana frá starfshópum. Frambjóð- endur til formanns og varaformanns halda ræður kl. 16. Á sunnudag verður kosið til þessara embætta og miðstjórnar og haldið áfram afgreiðslu ályktana. Kosningar Bjarni Benediktsson og Hanna Birna Krist- jánsdóttir gefa kost á sér í formannskjöri. Kosið til embætta og í miðstjórn á sunnudag Bjarni Benediktsson sagði frá baráttu sinni og þingmanna flokks- ins gegn fyrri samn- ingum um Icesave og færði rök fyrir þeirri afstöðu sinni og meiri- hluta þingmanna flokksins að styðja síðustu samningana. Bjarni sagði að fyrstu tveir Ice- save-samningarnir sem ríkisstjórnin bar á borð hefðu falið í sér stórhættu á þjóðargjaldþroti. Þeir yrðu lengi í minnum hafðir sem einhver mestu afglöp íslenskrar stjórnmálasögu. Málið hefði tekið á sig allt aðra mynd í samningalotunni sem lauk seint á síðasta ári. Áhættan hefði minnkað um fjögur hundruð millj- arða, hið minnsta. „Niðurstaða mín í Icesave-málinu var byggð á því sem ég taldi best og skynsamlegast fyrir íslenska þjóð, fyrir íslenska hagsmuni,“ sagði Bjarni. Hann sagðist aldrei hafa litið svo á að landsfundarfulltúar hefðu hafnað því á síðasta landsfundi að samið yrði í deilumálinu, ef hags- munir Íslands væru tryggðir. Ekki brot á samþykkt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.