Morgunblaðið - 18.11.2011, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2011
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
S
látursaumaskapurinn
reddaði mér fyrir horn.
Ég var bara í meðallagi í
hinum keppnisgrein-
unum,“ segir Hermann
Ingi Gunnarsson sem landaði titl-
inum „Ungi bóndi ársins 2011“ í
keppni um þann titil sem haldin var í
Borgarnesi samhliða Sauðamessu í
október. „Ég hef enga reynslu í því að
sauma slátur, þetta var mitt fyrsta
skipti í þessari grein, en af ein-
hverjum ástæðum gekk mér svona
vel í því. Mér gekk ekki eins vel í
sviðaátinu sem var ein af keppnis-
greinunum, en þar fannst mér vera
brotið á rétti mínum, því ég fékk hel-
víti feitan sviðakjamma, sem sjálfsagt
hefur verið af sjálfdauðum vetur-
gömlum hrút, slíkt óæti sem þetta
var. Kjamminn gekk allavega ekki vel
ofan í mig,“ segir Hermann og hlær.
„Í sviðaátinu voru stúlkur af
Vestfjörðum sem gerðu lítið úr mér
og voru ekki lengi að gleypa í sig
kjammana sína. Þær eru grjótharðar
þarna fyrir vestan,“ segir Hermann,
sem er norðanmaður, búsettur í
Eyjafjarðarsveit.
Jafn margar konur og karlar
Honum gekk alveg ágætlega í
liðléttingafimi, eða leikni á fjósvélum.
Slátursaumaskapur
skilaði honum sigri
Hann hafði ekkert í stelpurnar að vestan í sviðaátinu en stóð sig þeim mun betur
í því að sauma slátur. Hann landaði nýlega titlinum Ungi bóndi ársins 2011.
Ungi kraftmikli bóndinn horfir björtum augum til framtíðar.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ungi bóndi ársins 2011 Hermann Ingi Gunnarsson heima á Klauf í Eyjafjarðarsveit ásamt hundinum Rambó.
Vefsíðan fazeteen.ca er vefræn út-
gáfa kanadíska tímaritsins Faze sem
er sérstaklega ætlað unga fólkinu.
Ferðahluti síðunnar er sérstaklega
skemmtilegur en þar er hægt að fá
hugmyndir um spennandi áfanga-
staði, en einnig má þar lesa ferðasög-
ur og fylgjast með ferðabloggum
fólks sem er á flakki um fjarlæga
staði. Í þessum hluta er hægt að lesa
sér til um sögu Kínamúrsins, skoða
myndir úr brjáluðum skemmtigarði í
Kanada og vita allt um köfunarferðir í
Tabago. Svo aðeins fátt eitt sé nefnt.
Góðar ferðaleiðbeiningar eru líka á
síðunni og hugmyndir að stöðum fyr-
ir þá sem vilja vinna og læra tíma-
bundið í öðru landi. Þarna gætu
leynst nokkrar góðar hugmyndir fyrir
hina ferðaglöðu.
Á fazeteen.ca er líka að finna heil-
an helling af viðtölum við rithöfunda,
söngvara og leikara. Svo og hefð-
bundið afþreyingarefni, slúður og
greinar um allt það nýjasta í græju-
heiminum. Dorm Room Divas eiga
líka sinn stað á fazeteen.ca en þær
eru ósköp venjulegar stelpur sem
gefa góð og einföld ráð varðandi hár
og förðun. Fazeteen.ca er fjölbreytt
og skemmtileg síða og ættu þar
flestir að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi.
Vefsíðan www.fazeteen.com
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Fjölfarinn Margir leggja leið sína til að skoða hinn mikla Kínamúr.
Ferðasögur og ferðablogg
Á morgun, laugardag, verður haldin
ráðstefna um íslenskar æskulýðs-
rannsóknir 2011 í húsakynnum
menntavísindasviðs Háskóla Íslands
við Stakkahlíð. Margs konar erindi
verða á ráðstefnunni sem hefst
klukkan 10. Meðal annars verður
kynnt skýrsla ráðgjafanefndar um
æskulýðsrannsóknir, en meðal þeirra
viðfangsefna sem erindi verða flutt
um má nefna forvarnir gegn átrösk-
unum meðal unglingsstúlkna, um-
fang og áhrif reykinga í kvikmyndum,
sýn unglinga á félagsmiðstöðvar og
eigin þátttöku í starfi þeirra og börn
og sjónvarp á Íslandi. Auk þessa eru
ótal fleiri erindi á dagskrá en nánari
upplýsingar má nálgast á Facebook
undir Ráðstefnan Íslenskar æsku-
lýðsrannsóknir 2011.
Áhugasamir eru vinsamlegast
beðnir að skrá sig í póstfangið ar-
ni@hi.is, aðgangseyrir er 500 krónur
en ókeypis fyrir nema.
Endilega …
… sækið æskulýðsráðstefnu
Morgunblaðið/Ernir
Unga fólkið Æskulýðsrannsóknir verða í brennidepli á ráðstefnunni.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Fáðu þér áskrift á
mbl.is/askrift
Í jólablaðinu í ár komum við
víða við, heimsækjum fjölda
fólks og verðum með fullt
af spennandi efni fyrir alla
aldurshópa.
JÓLABLAÐIÐ
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 21. nóvember
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is
Sími: 569-1105
–– Meira fyrir lesendur
Morgunblaðið
gefur út stórglæsi-
legt jólablað
laugardaginn
26. nóv. 2011
SÉRBLAÐ