Morgunblaðið - 18.11.2011, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 18.11.2011, Qupperneq 27
DAGBÓK 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2011 Sudoku Frumstig 3 2 6 1 4 9 6 7 5 9 5 1 4 9 7 5 2 6 2 4 2 6 7 1 9 1 3 6 1 8 2 3 1 8 7 3 1 4 3 5 2 5 8 9 9 7 1 3 2 9 4 7 5 9 3 6 7 2 9 6 4 6 3 3 8 2 1 7 3 9 5 8 8 1 4 2 7 5 9 1 7 6 2 4 8 3 2 7 8 1 3 4 6 9 5 6 4 3 8 9 5 7 1 2 4 2 5 3 7 8 9 6 1 8 3 6 9 5 1 2 7 4 7 1 9 2 4 6 3 5 8 1 6 7 4 8 3 5 2 9 3 5 2 6 1 9 8 4 7 9 8 4 5 2 7 1 3 6 1 9 5 6 7 8 2 4 3 8 2 7 5 4 3 9 1 6 4 3 6 2 1 9 8 5 7 5 1 2 4 8 6 3 7 9 3 4 9 7 5 2 1 6 8 7 6 8 9 3 1 5 2 4 9 7 4 3 2 5 6 8 1 6 5 1 8 9 4 7 3 2 2 8 3 1 6 7 4 9 5 6 5 1 8 2 3 4 7 9 9 4 3 7 1 5 6 2 8 2 8 7 4 9 6 3 5 1 7 2 9 6 5 8 1 3 4 8 1 5 2 3 4 7 9 6 4 3 6 9 7 1 5 8 2 1 9 4 3 8 7 2 6 5 3 6 2 5 4 9 8 1 7 5 7 8 1 6 2 9 4 3 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er föstudagur 18. nóvember, 322. dagur ársins 2011 Orð dagsins: Hann stendur mér við hlið til þess að veita mér lið og vernd. (Daníel 11, 1.) Stykkið Alvöru menn er í Austur-bæ – hörpu alþýðunnar. Víkverji slóst í hópinn um liðna helgi og líður mun betur en áður og var þó ekki yfir neinu að kvarta. x x x Austurbæjarbíó var meira en kvik-myndahús á árum áður. Þar komu fram stjörnur. Heimsfrægar hljómsveitir eins og The Swinging Blue Jeans, The Kinks og Herman’s Hermits. Tempó hitaði upp og þá var ekki ónýtt að þekkja strákana, geta veifað og fengið vink á móti. Það skoraði drjúgt í næstu sætum. x x x Síðan seig á ógæfuhliðina og átímabili stóð til að rífa Austur- bæjarbíó. Þá fór um margan alvöru manninn, sem átti ekkert nema góðar minningar um staðinn, þar sem margir tóku fyrstu skrefin í við- skiptum með skiptum á hasarblöðum. Þar sem menn komust að því að það kostaði að minnsta kosti fjögur dönsk Andrés Andar-blöð að fá eitt amer- ískt. x x x Húsið stóð af sér pólitískar of-sóknir en þegar Víkverji mætti á Alvöru menn voru engir blaðasölu- strákar fyrir framan Austurbæ – hörpu alþýðunnar, sem áður hét Austurbæjarbíó. Miðasalan var líka á öðrum stað en hann átti að venjast og ekki hægt að fá popp í sælgætissöl- unni enda varla boðlegt alvöru mönn- um. x x x Karlmennskan er ekkert grín ogþað þarf alvöru menn til þess að koma því á framfæri. Glynn Nicholas, annar höfunda verksins, segir í leik- skrá að þar sem leikararnir séu í bölvuðu basli í lífi sínu séu þeir kjörn- ir í hlutverkin. Það eru orð að sönnu. Víkverja er til efs að eins mikið hafi verið hlegið í byggingunni og á Al- vöru mönnum. Jafnvel myndin Lyk- illinn undir mottunni framkallaði ekki önnur eins kátínuviðbrögð. Alvöru menn er frábært stykki fyrir alvöru menn – og konur. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 aðstoð, 8 stelur, 9 fiskar, 10 ambátt, 11 hellir, 13 mannsnafn, 15 lögunar, 18 syrgja, 21 guð, 22 þátt, 23 eyddur, 24 griðungur. Lóðrétt | 2 húsgögn, 3 hiti, 4 svelginn, 5 veik, 6 lof, 7 þrjóskur, 12 frístund,14 mergð, 15 áfergja, 16 ganga á eiða, 17 vinna, 18 ekki djúp, 19 veislunni, 20 hafa undan. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 sakir, 4 flaka, 7 lipur, 8 ástúð, 9 Týr, 11 aurs, 13 hríð, 14 paufa, 15 strá, 17 köld, 20 fag, 22 auðna, 23 óbeit, 24 apann, 25 Andri. Lóðrétt: 1 sálga, 2 kæpir, 3 rýrt, 4 flár, 5 aftur, 6 auðið, 10 ýs- una, 12 spá, 13 hak, 15 spana, 16 riðla, 18 örend, 19 dotti, 20 fann, 21 góna. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Ugla sat á kvisti. Norður ♠D82 ♥K73 ♦4 ♣ÁKDG103 Vestur Austur ♠K10543 ♠ÁG76 ♥109654 ♥DG82 ♦G9 ♦32 ♣2 ♣854 Suður ♠9 ♥Á ♦ÁKD108765 ♣976 Suður spilar 7♦. Hann er Pólverji og heitir Rússi – reyndar Jerzy Russyan, svo engu sé logið. Makker hans er Krzysztof La- socki, sá sami og mætti Íslandi í úr- slitaleik HM í Yokohama fyrir 20 ár- um. Þá þegar hafði Lasocki hið notalega yfirbragð jólasveinsins og svo er enn: hárið úfið, vömbin þétt, skeggið hvítt og mikið. Þeir félagar kepptu með öldungaliði Pólverja í Hollandi og unnu til bronsverðlauna. Heppnin var með þeim í spilinu að ofan. Russyan var í suður og stökk miðjum sagnklíðum í 4G, sem hann meinti sem gamaldags Blackwood, en Lasocki tók sem spurningu um lyk- ilspil með lauf sem tromp. Lasocki lof- aði því fleiri ásum en hann átti og Rus- syan reyndi sjö. Aumingja vestur. Eftir „ugla sat á kvisti“ kom hann út með hjarta og Russyan lagði upp. 18. nóvember 1709 Biskupsstofan á Hólum í Hjaltadal brann til kaldra kola. Tapaðist þar mikið af dýrgripum. 18. nóvember 1897 Blaðamannafélag Íslands var stofnað. „Félagar geta orðið allir þeir, sem hafa fjölmiðlun að aðalstarfi,“ segir í núgild- andi lögum félagsins. 18. nóvember 1920 Matthías Jochumsson skáld og prestur lést. Viku áður, á 85 ára afmælinu, var hann gerð- ur að heiðursborgara Akur- eyrar og heiðursdoktor í guð- fræði við Háskóla Íslands. Matthías orti m.a. þjóðsönginn Ó, Guð vors lands! og samdi leikrit, t.d. Útilegumennina, en það var síðar nefnt Skugga- Sveinn. 18. nóvember 1944 Íslenskir bananar voru seldir í fyrsta sinn, í verslun Slátur- félagsins í Hafnarstræti. Þeir voru ræktaðir á Kleppjárns- reykjum í Borgarfirði. Búist var við að uppskeran það árið yrði 2600 stykki. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist… „Ég ætla nú aðallega að láta rýja en annars eru engin stórplön í gangi í tilefni dagsins,“ segir Ein- ar Kári Magnússon sem er 27 ára í dag. Aðspurður segist hann ekki búast við neinu sérstöku í tilefni afmælisins enda ekki um neitt stórafmæli að ræða. Einar hefur stundað nám í búvísindum við Land- búnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri og vinnur nú að meistararitgerð á sviði fóðurfræði. Hann ólst upp í Gnúpverjahreppi í Árnessýslu og segist alltaf hafa haft áhuga á landbúnaðar- málum. Það hafi því kannski legið beint við að fara út í nám í tengslum við þau. „Eins og staðan er núna er það eitthvað tengt leiðbeiningarþjónustu og fóðurfræðum,“ segir Einar aðspurður hvað hann hugsi sér að gera í framhaldi af náminu. Þá segist hann stefna að því að starfa við landbúnað samhliða störfum tengdum menntun sinni. „Allavega vera með einhverjar kind- ur,“ segir Einar. Einar býr nú hjá tengdaforeldrum sínum á Halldórsstöðum í Seylu- hreppi í Skagafirði og kann vel við sig þar. Aðspurður segir hann það alveg koma til greina að setjast þar að til framtíðar þótt ekkert hafi verið ákveðið í þeim efnum. hjorturjg@mbl.is Einar Kári Magnússon er 27 ára Vinnur að meistararitgerð Söfnun Helena Ósk Baldurs- dóttir, Rebekka Rán Kristjánsdóttir, Rakel Rut Kristjánsdóttir, Vikt- oría Karen Ottósdóttir, Sigrún María Steingríms- dóttir og Líf Þórðardóttir föndruðu skraut úr pappa og seldu á Kjalar- nesi. Þær söfnuðu 9.201 kr. sem þær færðu Rauða krossinum. Flóðogfjara 18. nóvember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 5.03 1,3 11.25 3,3 17.51 1,3 10.06 16.21 Ísafjörður 0.58 1,5 7.10 0,6 13.24 1,8 20.03 0,6 10.32 16.05 Siglufjörður 3.39 1,0 9.21 0,5 15.35 1,1 22.07 0,3 10.15 15.47 Djúpivogur 2.04 0,7 8.28 1,8 14.55 0,7 21.03 1,6 9.40 15.45 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Einhver sem þú ert í sambandi við kynnir þér nýja möguleika. Þú átt ekki að láta það eyðileggja fyrir þér daginn þótt einhver annar hafi farið röngum megin fram úr rúminu. (20. apríl - 20. maí)  Naut Spurðu þig hvort þú ætlir að halda áfram í núverandi starfi eða skipta um starfsvettvang. Margar hendur vinna létt verk og það er þér í hag að klára strax. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Fullt af fólk gerir það sem þú seg- ir. Þér er hlýtt í brjósti til annarra núna. Þú ert líka umvafin/n ást. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Það er engum öðrum að kenna en þér ef þér leiðist eitthvað þessa dagana. Opnaðu augun með jákvæðum huga og þá eru þér allir vegir færir. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Farðu varlega þegar þú átt í höggi við mann sem veit meira en þú um tiltekið efni. Þú átt ýmislegt í geymslunni sem þú ættir að kíkja betur á. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Sumu fólki finnst mjög gaman að vera á skjön við aðra, en ekki þér. Varastu að senda fólki misvísandi skilaboð. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Láttu ekki deigan síga, þótt menn séu að gera einhverjar athugasemdir við hug- myndir þínar. Láttu það ekki angra þig. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Vertu ekki feimin/n við að tjá þakklæti þitt í garð þeirra sem það eiga skilið. Kannski finnur þú eitthvað spenn- andi. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Vinir fara yfir strikið. Gættu þín að falla ekki fyrir freistingum of oft. Þú ert í góðu jafnvægi. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Það er allt í lagi að hampa sjálf- um sér svona af og til ef það er ekki á ann- arra kostnað. Þú ert með allt á hreinu. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú ert á öndverðum meiði við meirihlutann og þarft á öllu þínu þreki að halda. Einhver þér eldri getur miðlað þér af reynslu sinni. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Það er kominn tími til þess að þú leggir áherslu á einkalíf þitt. Aðalatriðið er að segja ekkert vanhugsað sem þú gætir séð eftir. Stjörnuspá Jóhannes Sig- mundsson, fyrr- verandi kennari og ferðaþjón- ustubóndi í Syðra-Langholti, Hrunamanna- hreppi, er átt- ræður í dag, 18. nóvember. Eiginkona hans er Hrafnhildur Svava Jónsdóttir. Þau eru að heiman. 80 ára 1. e4 e6 2. d4 d5 3. exd5 exd5 4. Bd3 Rf6 5. h3 c5 6. c3 Rc6 7. Re2 c4 8. Bc2 Bd6 9. O-O O-O 10. Bf4 b5 11. a3 He8 12. Bxd6 Dxd6 13. Rd2 a5 14. Rg3 Be6 15. Rh5 Rd7 16. Df3 Rb6 17. Hfe1 b4 18. Rf1 b3 19. Bb1 Re7 20. Rfg3 Rd7 21. Rf5 Rxf5 22. Bxf5 Bxf5 23. Dxf5 Rb6 24. Dg5 Dg6 25. Dxg6 hxg6 26. Rg3 Ra4 27. Hxe8+ Hxe8 28. Hb1 Staðan kom upp í Evrópukeppni taflfélaga sem lauk fyrir nokkru í Ro- gaska Slatina í Slóveníu. Stórmeist- arinn Evgeniy Podolchenko (2474) frá Hvíta-Rússlandi hafði svart gegn alþjóðlega meistaranum Yuri Kors- unsky (2419) frá Úkraínu. 28… Rxb2! 29. Hxb2 He1+ 30. Rf1 a4 31. g3 Ha1 32. Kg2 Hxa3 33. Re3 Ha1 34. Rxd5 a3 35. He2 b2 og svartur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.