Morgunblaðið - 18.11.2011, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.11.2011, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2011 Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is „Allir helstu þjóðvegir landsins eru bara meira og minna auðir núna. Það hafa verið einhverjir hálku- blettir fyrir norðan en þá er það eiginlega upptalið,“ segir Jón Hálf- dán Jónasson hjá Vegagerðinni spurður um ástandið á vegum landsins í ljósi mikilla hlýinda að undanförnu. Færið sé nánast eins og að sumri en engu að síður verði að hafa var- ann á. Kuldapollar myndist alltaf öðru hvoru þrátt fyrir hlýindin. „Þetta getur fyrir vikið verið svolít- ið varasamt en engu að síður er þetta alveg ofsalega góð tíð,“ segir Jón. Skráðir ófærir að vetri til Fram kom í tilkynningu frá Vega- gerðinni um miðjan dag í gær að hálkublettir væru á Mývatnsheiði og í kringum Mývatn. Þá væri hálka á Mývatnsöræfum og ennfremur hálkublettir á Möðrudalsöræfum. Hvað hálendisvegi varðar segir Jón að þeir séu skráðir sem ófærir að vetri til einfaldlega vegna þess að ekkert eftirlit sé með þeim af hálfu Vegagerðarinnar yfir vetrartímann og því ekkert vitað í raun um ástand þeirra. Ekki sé bannað að fara þá að vetri til en það þurfi einfaldlega að hafa allan vara á. „Þetta er nánast eins og sumarfæri“  Helstu þjóðvegir landsins meira og minna auðir vegna mikilla hlýinda Morgunblaðið/Arnaldur Umferð Góðar aðstæður eru á þjóð- vegum landsins vegna hlýjinda. Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Nokkrir aðilar hafa farið þess á leit við Umhverfisstofnun og Siglinga- stofnun Íslands að hætt verði við að mjókka námuveg á Hamragarðaheiði í Rangárþingi eystra. Vegur upp í grjótnámu á Kattarhrygg í Selja- landsheiði var lagður vegna efnistöku til byggingar Landeyjahafnar. Veg- urinn var lagður 12 til 14 metra breið- ur til að svokallaðar búkollur gætu mæst þar auðveldlega. Skilyrði var í starfsleyfinu að hann yrði færður í sjö metra breidd þegar framkvæmdum lyki. Sveitarstjórn Rangárþings eystra, Landgræðsla ríkisins, Vegagerðin, al- mannavarnanefnd Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu og landeigendur á Seljalandi vilja ekki að vegurinn verði mjókkaður, sérstaklega með al- mannahagsmuni í huga en náman er á náttúruhamfarasvæði og gæti þurft að ná í efni úr henni með litlum fyr- irvara til að byggja varnargarða við Markarfljót ef t.d. jökulhlaup yrði í kjölfar eldgoss. Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitar- stjóri Rangárþings eystra, segir veg- inn ekki vera lýti í umhverfinu því hann sjáist nánast ekkert ef keyrt er undir Eyjafjöll. „Við höfum barist við að koma í veg fyrir þetta. Það hafa verið náttúruhamfarir hjá okkur og við komum til með að þurfa á þessum námum að halda í framtíðinni, örygg- isins vegna, og hugsanlega þarf að gera meira við Landeyjahöfn. Það kostar mikla peninga að mjókka hann og okkur finnst það bara splæs.“ Rökin frekar veik Siglingastofnun Íslands er fram- kvæmdaaðili Landeyjahafnar. Sig- urður Áss Grétarsson forstöðumaður segir að vegurinn hafi þurft að vera svona breiður út af framkvæmdinni og fékkst heimild til þess með því skil- yrði að hann yrði mjókkaður aftur. Þeir séu bara að fylgja úrskurði frá Skipulagsstofnun. „Ef á að hafa hann breiðan áfram hefði þurft að fjalla um það í umhverfismatinu á sínum tíma því þetta er veruleg röskun á nátt- úrunni. Rök fyrir samfélagslegri þörf eru líka frekar veik. Það er ekkert sem segir að sjö metra breiður vegur verði ekki fullnægjandi til að fara upp í námuna ef til kemur.“ Kostnaður við að mjókka veginn er innfalinn í framkvæmdinni sem Suð- urverk sá um að sögn Sigurðar. Sam- kvæmt upplýsingum frá Suðurverki verður líklega farið í þessa fram- kvæmd eftir helgi ef engar breyting- ar verða á. Aðeins umsagnaraðili Það er ekki ákvörðun Umhverfis- stofnunar að mjókka veginn, stofnun- in er bara umsagnaraðili í málinu samkvæmt Ólafi A. Jónssyni, sviðs- stjóra náttúruauðlindasviðs. „Við mat á umhverfisáhrifum var ekki gert ráð fyrir svona breiðum vegi. Okkur þyk- ir æskilegt að mjókka veginn út frá sjónrænum áhrifum en erum ekki að taka afstöðu til hugsanlegrar notkun- ar í framtíðinni. Ef hann verður ekki mjókkaður þarf að sjá til þess að hann haldi sér án þess að skemma nánasta umhverfi, ganga frá vegfláum og tryggja að ekki verði úrrennsli. Það er Siglingastofnunar að afhenda ábyrgð á veginum yfir á einhvern að- ila eins og sveitarfélagið eða Land- græðsluna sem dæmi.“ Vilja ekki láta mjókka námuveg  Vegurinn var lagður vegna efnistöku úr grjótnámu við gerð Landeyjahafnar  Á að mjókka hann úr 14 metrum niður í 7  Óþarfi og peningaaustur að mati sveitarstjóra Rangárþings eystra Námuvegur á Seljalandsheiði Námur NámuvegurSelja- landsfoss Þjóðvegur 1 Þórs- mörk Ma rka rflj ót Stóradalskirkja Eyjafjalla- jökull Grunnkort: LMÍ Útför Matthíasar Á. Mathiesen, fyrrverandi ráðherra og alþingismanns, var gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í gær. Matthías gegndi fjölda trúnaðarstarfa um ævina, var meðal annars þingmaður í yfir þrjátíu ár og ráð- herra í mörg ár. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, minntist hans sérstaklega við setn- ingar landsfundar flokksins í gær. Séra Þórhallur Heimisson jarðsöng. Líkmenn voru, frá vinstri: Árni Mathiesen, Frosti Bergsson, Þorgils Óttar Mathiesen, Þór Gunnarsson, Matthías Árni Ingimarsson, Bjarni Benediktsson, Valdimar Svavarsson og Geir H. Haarde. Útför Matthíasar Á. Mathiesen Morgunblaðið/Sigurgeir S. „Hvernig í ósköpunum á að trúa því að sjö metra vegur sé eitt- hvað fallegri en 14 metra vegur? Mér finnst þetta vera dæmigerð 2007-sóun og vitleysa. Menn eru að tala um að efri hluti veg- arins, næst námunni, verði líka fjarlægður. Það er ljóst að sækja þarf grjót þarna á komandi ár- um og ef menn ætla að leyfa sér að moka í burtu hluta af vegi til að byggja hann aftur upp síðar, fyrir almannafé, er kominn tími til að stöðva ruglið. Svo er verið að bæta við úrrennsli og skakstri ef veginum verður mokað burtu,“ segir Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri. 2007 sóun og vitleysa LANDGRÆÐSLA RÍKISINS LISTMUNA UPPBOÐ Sunnudaginn 20. nóvember næstkomandi fer fram listmunauppboð í Gásum. Forsýning á verkum stendur nú yfir í sýningarsal Gása, Ármúla 38. Opið kl. 10-17 föstudag, laugardag og sunnudag. Á uppboðinu verða verk eftir Jóhannes Kjarval, Tryggva Ólafsson, Tolla, Dag Sigurðarson, Baltasar, Alfreð Flóka, Karl Kvaran o.fl. Óli G. Jóhannsson Án titils Gásar gallerí hefur fengið viðurkenningu frá Myndstef fyrir fagleg viðskipti og heiðar- leika gagnvart listamönnum og kaupendum listaverka. Verð á dísilolíu hækkaði í gær um þrjár krónur á lítra hjá N1, Olís og Skeljungi og nemur verðmunur á dísilolíu og 95 oktana bensíni nú 15 krónum á hvern lítra. Olíulítrinn stóð í kr. 244,70 í sjálfsafgreiðslu hjá félögunum í gær en hjá Atlantsolíu og ÓB 241,40 og 10 aurum minna hjá Orkunni. Algengt verð á bensíni er kr. 229,70 og munurinn því orðinn heilar 15 krónur. Yfirleitt hefur verið talið hagstæð- ara að vera á dísilknúnum bíl en að- spurður segir Runólfur Ólafsson hjá FÍB orðið ljóst að þegar verðmun- urinn er orðinn þetta mikill séu þeir ekki hagkvæmari eins og forsend- urnar eru núna, þrátt fyrir að vera eyðslugrennri en bensínbílar. Runólfur segir skýringanna að leita í mun hærra heimsmarkaðs- verði og aukinni eftirspurn í Evrópu þegar fari að kólna en dísilolían sé einnig notuð þar til húshitunar. sigrunrosa@mbl.is Dísilolían orðin 15 kr. hærri en bensín  Hagkvæmni dísilbíla að hverfa Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.