Morgunblaðið - 18.11.2011, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 18.11.2011, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2011 ✝ Sigrún Sigurð-ardóttir fædd- ist í Hafnarfirði 16. júní 1927. Hún lést á Heilbrigð- isstofnun Suð- urnesja 10. nóv- ember 2011. Foreldrar henn- ar voru Sigurður Kristjánsson vél- stjóri, f. 23. apríl 1900, d. 6. sept- ember 1965 og Valgerður Jóna Ívarsdóttir húsmóðir, f. 28. júlí 1901, d. 27. ágúst 1987. Sigrún átti sjö systkini, þau voru Ingv- eldur, Kristján, Valgerður Guð- laug og Ingibjörg, sem eru nú látin. Eftirlifandi eru Sigurður Ívar, Guðrún og Auður. Eiginmaður Sigrúnar var Ás- geir Skúlason, f. 22. júlí 1927, d. 17. október 1997. Þau giftust 11. september 1948. Börn þeirra eru: 1) Guðmundur, f. 18. febr- úar 1947, maki Sigurrós Sigurð- 23. apríl 1965, maki Hafdís Haf- steinsdóttir, börn þeirra eru Ey- dís og Hafþór. Langömmubörn- in eru 26. Að loknum barnaskóla var Sigrún kaupakona í sveit í Hvammi í Hvítársíðu, Arnarbæli í Grímsnesi og seinna á Búrfelli í sömu sveit. Um tíma vann hún á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði og kynntist þá Ásgeiri, sem var í Iðnskólanum í Hafnarfirði. Hún fór í Kvennaskólann að Hvera- bökkum í Hveragerði 1945-46. Sigrún og Ásgeir hófu búskap sinn í Garðhúsum í Ytri- Njarðvík og eignuðust þar fimm börn. Sjötta barnið fæddist eftir að þau fluttu á Grundarveg 21 árið 1960, þar sem þau bjuggu þar til Ásgeir lést árið 1997. Sig- rún fór að vinna utan heimilis í kringum 1970, í fiskvinnslu. Síð- ar vann hún við fyrirtæki þeirra hjóna, Rás, sem þau byggðu upp saman. Hún tók virkan þátt í starfi Kvenfélags Njarðvíkur um árabil og starfaði sem sjálf- boðaliði hjá Rauða krossi Ís- lands síðastliðin 12 ár. Útför Sigrúnar fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag, 18. nóvember 2011, og hefst athöfn- in kl. 14. ardóttir. Börn þeirra eru Sig- urður og Sigrún. 2) Gréta, f. 6. júní 1948, maki Konráð Erlendsson, börn þeirra eru Erlend- ur, Sigrún og Arn- grímur. 3) Hall- fríður Ólöf, f. 17. janúar 1953, maki Charles Burke. Börn Hallfríðar og Jack Dennis frá fyrra hjóna- bandi eru Greta Naomi og Hannah Lisa. 4) Skúli Snæbjörn, f. 23. janúar 1954, maki Elín H. Hermannsdóttir. Börn þeirra eru Áslaug, Ásgeir og Birna Ýr. 5) Valgeir, f. 29. júlí 1956, maki Rannveig Lilja Garðarsdóttir. Börn Valgeirs og Önnu Mar- grétar Guðmundsdóttur frá fyrra hjónabandi eru Guð- mundur Freyr og Ágústa. Börn Rannveigar Lilju eru Hulda og Kristján. 6) Sigurður Ásgeir, f. Tengdamóðir okkar er fallin frá eftir stutt veikindi sem hafa eflaust verið henni erfið því hreysti var eitt af því sem ein- kenndi hana alla tíð. Sigrún var ýmsum hæfileikum gædd. Hún var umhyggjusöm, einlæg og dugleg og hafði skemmtilega kímnigáfu. Hún var nýtin og sparsöm kona sem kom sér vel þegar hún ásamt eigin- manni sínum byggði upp og vann við fjölskyldufyrirtæki þeirra. Það hefur eflaust þurft dugnað og þrautseigju að koma fjórum sonum og tveimur dætrum til manns við erfiðar aðstæður og oft þröngan kost. En þetta tókst henni með ágætum og eftir stendur stór og samheldin fjöl- skylda. Sigrún hafði mörg áhuga- mál þar á meðal söfnun á öllu mögulegu sem henni fannst vera nýtilegt. Lýsir það skipulags- hæfileikum hennar hvernig hún umgekkst safnið og skráði eins og á besta bókasafni. Hún tók virkan þátt í uppeldi margra barnabarna sinna. Þegar barnabörnin komu í heimsókn var ekki leikið með venjuleg leik- föng heldur var tómum skyrdós- um og tvinnakeflum raðað upp við ómælda ánægju ungu kyn- slóðarinnar. Sköpunarkrafturinn var henni eðlislægur, handavinna átti ávallt hug hennar allan. Útsaumur, leir- list, glermálun, tréútskurður og margt fleira. Seinni árin tók Sig- rún þátt í ýmsum námskeiðum á Nesvöllum og á handverkssýn- ingunum var hún stolt af góðu verki. Handverkið var hún óspör á að gefa okkur og sýna þegar við heimsóttum hana og nutum við tengdadæturnar góðra ráðlegg- inga um ýmsa hluti. Það að fá að kynnast Sigrúnu hefur gefið okkur dýrmætt vega- nesti. Hún var okkur góð tengda- móðir og börnunum okkar ein- stök amma. Fyrir það færum við henni okkar bestu þakkir. Þú áttir þrek og hafðir verk að vinna og varst þér sjálfri hlífðarlaus og hörð. Þú vaktir yfir velferð barna þinna, þú vildir rækta þeirra ættarjörð. Frá æsku varstu gædd þeim góða anda, sem gefur þjóðum ást til sinna landa, og eykur þeirra afl og trú, en það er eðli mjúkra móðurhanda að miðla gjöfum eins og þú. (Davíð Stefánsson.) Elsku Sigrún. Við þökkum þér fyrir sam- fylgdina, sem var bæði ánægju- leg og lærdómsrík. Sigurrós, Elín, Rannveig og Hafdís. Elsku amma Sigrún. Að kveðja þig í ágúst var það erfiðasta sem ég hef gert, vitandi það að við myndum ekki hittast aftur hérna megin. En fyrir þann tíma tókst mér að fjárfesta í dýr- mætum tíma með þér, þar sem við sátum og skoðuðum gamlar myndir. Þú sagðir mér síðan sög- urnar á bakvið myndirnar, fullt af ferðalögum og gamlar fjölskyldu- myndir. Síðustu sögurnar sem þú sagðir mér áður en ég kvaddi þig í hinsta sinn, voru frá þeim tíma sem þú hittir afa og hvernig lífið var á stríðsárunum. Ég er viss um að afi hefur tekið vel á móti þér og það er gott að hugsa til þess að þið séuð sameinuð aftur. Grundarvegurinn ykkar er mér minnisstæður þar sem ég var með mitt annað heimili þegar ég var í grunnskólanum. Ef þið vor- uð heima gat ég alltaf valið á milli kalds hafragrautar eða fisks, ef enginn var heima gat ég valið á milli hafragrautarins eða fengið mér ristað brauð og kakó. Við spiluðum oft lönguvitleysu eða röðuðum upp skyrdósum sem var nú eitt vinsælasta leikfangið hjá þér. Þú varst einstök handverks- kona, alltaf að sauma, prjóna eða búa til einhverja flotta hluti sem ég kann ekki að nefna. Takk fyrir allt, elsku amma. Gerða, Skúli Björn og Brynja Dröfn biðja að heilsa. Ásgeir Skúlason (nafni eða frændi). Sigrún amma er dáin. Það eru skrítnar tilfinningar þegar mað- ur finnur fyrir þakklæti og óskar þess að fólk fái hvíld frá ólækn- anlegum veikindum, en á sama tíma vill maður alls ekki missa fólk úr lífi sínu og saknar þess mikið. Það er furðulegt til þess að hugsa að á dagskrá næstu Ís- landsferðar sé ekki heimsókn til ömmu á Vallarbrautina til að sjá alla handavinnuna frá því síðast. Áfram lifa góðar minningar um góða og hressa ömmu sem alltaf tók á móti mér með opnum örmum, og var til staðar fyrir mig. Ömmu sem gaf mér soðna ýsu og kartöflur í hádegishléinu í skólanum. Ömmu sem sagði mér sögur frá stríðstímum og ferða- lögum um heiminn. Ömmu sem kenndi mér að prjóna og spila á orgel. Ömmu sem lék sér með mér við að byggja turna og virki úr skyrdollum. Maðurinn minn á góðar minningar um ömmu sem bjó til heimsins bestu fiskibollur, og það gjarnan eftir pöntun úr okkar afla úr sjóstangaveiði. Hjá strákunum mínum lifa áfram minningar um langömmu sem sippar. Langömmu sem býr til margt spennandi í höndunum úr garni, plasti og öðrum efnum. Langömmu sem bakar rosalega góðar pönnukökur. Elsku amma mín. Ég er þakk- lát fyrir að hafa fengið að alast upp í návist þinni og afa, takk fyr- ir allt saman. Eins og ég sagði stundum við þig þá vonast ég til að verða jafn heilsuhraust og þú varst langt fram eftir aldri til að geta verið jafn virk í félagslífinu og handavinnunni og þú, þegar ég kemst á efirlaun. Með saknaðarkveðju frá Áslaugu, Tom-Erik, Borgari og Theodóri. Við minnumst góðs félaga og nágranna, Sigrúnar Sigurðar- dóttur. Við, sem búum í eldri borgara fjöleignahúsinu að Vall- arbraut 6 í Ytri- Njarðvík, höfum flest búið þar í meira en áratug. Við teljum okkur heppin að búa þar með fólki á svipuðu reki, þar sem ríkir friður, öryggi og ein- drægni og fólk lætur sig velferð hvað annars varða. Sigrún hafði misst mann sinn, sómamanninn Ásgeir Skúlason fyrir 14 árum. Þau höfðu búið allan sinn búskap- artíma í Njarðvík og byggt sér hús við Grundarveg í Njarðvík. Þegar börnin voru komin á legg og farin að heiman keypti hún íbúð að Vallarbraut 6 og þar undi hún vel hag sínum þangað til hún dó. Sigrún var ekki mikið fyrir að sitja auðum höndum, t.d. var hún í sjálfboðavinnu hjá Rauða kross- inum. Sigrún var mjög listræn og listmunir eftir hana voru til sýnis á listmunasýningum Félags eldri borgara (FEB) og prýddu hið fal- lega heimili hennar á Vallarbraut 6 og margra afkomenda hennar. FEB rak félagsmiðstöð í „Selinu“ sem var áfast við Vallarbraut 6. Þar var boðið upp á dans, spila- mennsku, námskeið og tóm- stundaaðstöðu með tilsögn. Þetta nýtti Sigrún sér vel enda hafði hún unun af útskurði, glerlist og hannyrðum. Þegar leyfi fékkst til að glerja svalirnar á Vallarbraut 6 þá lét Sigrún strax glerja sval- irnar hjá sér og útbjó þar unaðs- reit þar sem hún gat sinnt sínum hugðarefnum og haft útsýn yfir fótboltavöllinn í Njarðvík sem þá var mikið notaður til æfinga og kappleikja. Í bakgrunninum var Grundarstígurinn og svæðið í kring þar sem fjölskylda hennar hafði búið. Mér þykir ekki ólík- legt að þá hafi hugur hennar oft leitað aftur til þeirra tíma. Síðan voru Nesvellir og fleiri byggingar reistar. Starfsemi Selsins fluttist yfir á Nesvelli og Sigrún hélt áfram þar líka. En útsýnið og knattspyrnuvöllurinn var ei meir. Nú hvílir yfir opna svæðinu ein- hver hrundoði. Vonandi verða fyrri áætlanir framkvæmdar og nýtt líf færist í opna svæðið. Það hefði glatt Sigrúnu. Sigrún hefur átt við erfið veik- indi stríða um langt skeið og endalokin fyrirsjáanleg. Ég hef sjaldan séð manneskju bregðast við slíkum vátíðindum af jafnmik- illi reisn og æðruleysi. Ég heim- sótti Sigrúnu á spítalann nokkr- um dögum áður en hún dó. Þar sat dóttir hennar við rúmstokk- inn, komin frá Ameríku, Sigrún í rúminu brosandi út að eyrum, mæðgurnar nýkomnar úr bíltúr um svæðið þó veðrið væri hrá- slagalegt. Ég veit ég tala fyrir munn annarra í húsfélaginu þeg- ar við vottum aðstandendum Sig- rúnar okkar dýpstu samúð og þökkum henni samfylgdina. Guðmundur Jóhannsson, Elísabet Vigfúsdóttir. Sigrún Sigurðardóttir Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 – www.utforin.is – Allan sólarhringinn Komum heim til aðstandenda ef óskað er ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Jón G. BjarnasonHermann Jónasson g|Ä Å|ÇÇ|ÇztÜ âÅ {xyâÜ etâ"t ~ÜÉáá| ˝áÄtÇwá äxÜ|" y—Ü" z}≠yA `x" |ÇÇ|ÄxzÜ| átÅØ" Minnist vina og ættingja með stuðningi við starf Rauða krossins. Farið á raudikrossinn.is eða hringið í síma 570 4000 MINNINGARKORT RAUÐA KROSS ÍSLANDS Samúðarkveðjur ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRHILDUR GUÐNADÓTTIR, sem andaðist á Heilbrigðisstofnun Þing- eyinga föstudaginn 11. nóvember, verður jarðsungin frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 19. nóvember og hefst athöfnin kl. 14.00. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÁGÚSTU SIGRÍÐAR ERLENDSDÓTTUR, Garðvangi, áður til heimilis að Birkiteigi 3, Keflavík. Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjúkrunarheimilisins Garðvangs fyrir einstaka umönnun. Erlendur Karlsson, Elísabet Andrésdóttir, Vilborg Tryggvadóttir MacNealy, Christopher MacNealy, Sigmar Scheving, Linda Helgadóttir, Davíð Scheving, Harpa Frímannsdóttir, Andrés Már Erlendsson, Linda Malín Erlendsdóttir, Sandra Ösp MacNealy, Andri Scheving, Birgitta Kristín Scheving, Lovísa Scheving, Lilja Scheving, Birgir Scheving. ✝ Móðir okkar, VIGDÍS EINARSDÓTTIR, áður til heimilis að Fornastekk 11, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk laugardaginn 12. nóvember. Útför fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, föstudaginn 18. nóvember kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Jón Friðberg Hjartarson, Einar Friðberg Hjartarson, Stefán Friðberg Hjartarson, Ævar Sigmar Hjartarson. ✝ Ástkær sonur okkar og bróðir, NJÁLL STEINÞÓRSSON, lést laugardaginn 12. nóvember. Útför hans fer fram frá Prestsbakkakirkju á Síðu laugardaginn 19. nóvember kl. 14.00. Steinþór Jóhannsson, Margrét Ísleifsdóttir, Árni Steinþórsson, Hulda Jónasdóttir, Sólborg Lilja Steinþórsdóttir, Tryggvi Þórhallsson, Sif Steinþórsdóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, bróðir, tengdafaðir og afi, ÁRNI MAGNÚSSON skipstjóri, Suðurmýri 16, Seltjarnarnesi, lést á heimili sínu fimmtudaginn 17. nóvember. Móeiður M. Þorláksdóttir og fjölskylda. ✝ Móðir okkar og tengdamóðir, SIGRÍÐUR KRISTINSDÓTTIR, lést á dvalarheimilinu Hornbrekku í Ólafsfirði miðvikudaginn 16. nóvember. Magnús Magnússon, Sigursveinn Magnússon, Örn Magnússon, Þorgeir Gunnarsson og fjölskyldur. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, EÐVALDÍNA MAGNEY KRISTJÁNSDÓTTIR frá Glerárskógum, Dvergabakka 4, Reykjavík, lést á Hrafnistu í Reykjavík þriðjudaginn 15. nóvember. Viðar G. Waage, Björk Magnúsdóttir, Steinar T. Karlsson, Bjarnheiður Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.