Morgunblaðið - 18.11.2011, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2011
Reuters
Kona fer með bæn við dómkirkju í borginni Cotonou í
Benín í gær. Benedikt XVI páfi kemur í þriggja daga
heimsókn til landsins í dag í annarri ferð sinni til Afr-
íku. Kaþólska kirkjan hefur verið í mikilli sókn í álf-
unni á síðustu árum en hún hefur þó átt undir högg að
sækja að undanförnu vegna hneykslismála sem hafa
m.a. orðið til þess að tveimur biskupum í Benín hefur
verið vikið frá.
Benedikts páfa beðið í Benín
Skoska leikskáldið David Greig er
nú í Ósló til að afla upplýsinga um
fjöldamorðin í borginni og Útey 22.
júlí með það fyrir augum að skrifa
leikrit um ódæðisverkin.
„Ég gat einfaldlega ekki hætt að
hugsa um það sem gerðist. Ég
reyndi að skilja það og vildi rann-
saka það. Og þegar leikritahöfundur
fær slíka hugmynd verður hann að
fylgja henni eftir,“ sagði Greig í við-
tali við norska ríkisútvarpið.
Vinnuheiti leikritsins er „Maður-
inn“ og stefnt er að því að það verði
sett á svið í Bretlandi og Noregi eftir
um það bil ár. Greig undirbýr leik-
ritið í samstarfi við leikhúsið Drama-
tikkens Hus í Ósló.
Margir þeirra, sem lifðu af árásir
fjöldamorðingjans eða misstu ætt-
ingja, telja að of snemmt sé að skrifa
leikrit um ódæðisverkin. David
Greig er á öðru máli. „Það er mikil-
vægt að tala um þennan sorgar-
atburð núna, áður en sagan verður
að goðsögn,“ sagði hann.
Norski presturinn Hanne El-
strøm Kjær, sem hefur aðstoðað
syrgjendur vegna fjöldamorðanna,
ræddi við Greig og hvatti hann til að
sýna aðgát. „Þetta er mjög við-
kvæmt efni. Þessu fylgir mikil sálar-
kvöl og sorg. En leikrit getur hjálp-
að fólki að vinna sig út úr erfiðri
sálarkreppu og í því ljósi tel ég að
þetta sé góð hugmynd,“ segir hún.
Þekktasta leikrit Davids Greigs er
„The Architect“ og samnefnd kvik-
mynd, sem byggðist á leikritinu, var
gerð í Bandaríkjunum árið 2006 með
leikkonuna Isabellu Rosselini í einu
aðalhlutverkanna.
Skrifar leikrit um fjöldamorðin
Leikskáld undirbýr leikverk um hryðjuverkin í Noregi
Allir tiltækir lögreglumenn í Þórs-
höfn í Færeyjum tóku í gær þátt í
fyrstu morðrannsókninni í eyjunum í
23 ár eftir að 32 ára karlmaður var
handtekinn vegna gruns um að hann
hefði orðið 42 ára gömlum karlmanni
að bana.
Leitað hefur verið að Dánjal Petur
Hansen síðustu 11 daga en án árang-
urs. Maður, sem grunaður er um að
hafa orðið Hansen að bana, var
handtekinn í fyrradag og dæmdur í
tveggja vikna gæsluvarðhald.
Síðasta morðið framið 1988
Að sögn færeyska útvarpsins er
talið að Hansen, eða Pidda eins og
hann er jafnan nefndur, hafi verið
ráðinn bani á tímabilinu frá 5. til 7.
nóvember á heimili sínu í Saltangará
á Austurey, næststærstu ey Fær-
eyja. Að sögn útvarpsins fannst blóð-
ugur koddi heima hjá manninum
sem grunaður er um verknaðinn.
Málið hefur vakið mikinn óhug
meðal Færeyinga. „Fólki er mjög
brugðið – morð eru ekki daglegt
brauð í Færeyjum,“ hefur fréttavef-
ur danska blaðsins Berlingske eftir
lögregluforingjanum Bergleif Brim-
vik sem stjórnar rannsókninni.
Ekki hefur komið upp morðmál í
Færeyjum frá árinu 1988 þegar ung-
ur maður á Suðurey skaut unnustu
sína til bana í afbrýðisæði.
Færeyska lögreglan nýtur aðstoð-
ar dönsku lögreglunnar við rann-
sóknina. Allir tiltækir lögreglumenn
Þórshafnar tóku þátt í rannsókninni
í gær, leituðu að frekari vísbending-
um og yfirheyrðu fólk sem kann að
geta veitt upplýsingar um málið.
Fyrsta morðið í
Færeyjum í 23 ár
Hefur vakið óhug meðal íbúanna
Jólasöfnun Mæðrastyrksnefndar
Reykjavíkur er hafin
Það hefur sýnt sig að á erfiðum tímum stendur
íslenska þjóðin saman og sýnir stuðning,
hver og einn eftir bestu getu.
Hægt er að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119
Einnig er opið fyrir síma á skrifstofutíma
s. 551 4349, netfang: maedur@simnet.is
Ástund EPONA
Nýr hnakkur úr smiðju Ástundar
Gæða fatnaður, skór og stígvél frá París.
® Frá 1976
• Reiðtygi
• Hnakkar
• Reiðfatnaður
• Dans-, ballet- og fimleikavörur
• Hanskar
• Skeifur
• Öryggishjálmar
• Pískar
• Effol vörur
• Ábreiður
ÁSTUND 35 ÁRA
Í tilefni af 35 ára afmæli Ástundar
bjóðum við viðskiptavinum okkar
25%-35% afslátt dagana 18-20 nóv n.k
Kynnum m.a nýjan Ástundarhnakk,
og nýjan öryggishjálm frá
Helgi Björns lítur við og tekur nokkur lög föstudag og laugardag.
Háaleitisbraut 68 · 103 Reykjavík
Sími: 568 4240 · Fax: 568 4396
astund@astund.is · www.astund.is
®
da
nc
e
hestar