Morgunblaðið - 18.11.2011, Page 28
28 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG ER AÐ
SVITNA EINS OG
SVÍN
ÞETTA
ER MIKLU
BETRA
ÉG
ÖFUNDA ÞIG
GERIÐ ÞIÐ YKKUR GREIN
FYRIR ÞVÍ AÐ DROTTNINGIN
FÆR HAUSVERK AF ÖLLUM
ÞESSUM HÁVAÐA!
FIÐRILDI
FÁ NÆRINGU
ÚR BLÓMUM
DREKAFLUGUR BORÐA
FIÐRILDI, FROSKAR BORÐA
DREKAFLUGUR, SNÁKAR
BORÐA FROSKA OG HAUKAR
BORÐA SNÁKA
ÞAÐ ER FÍNT AÐ
STOPPA ÞARNA...
VERA EKKERT
AÐ BLANDA HUNDUNUM
Í ÞETTA
HVAR ER
RUNÓLFUR?
HANN FÓR Í
BÍÓ MEÐ FLUG-
FREYJUNNI,
KÆRUSTUNNI
SINNI
ÚPS, ÉG
HELTI NIÐUR
GOSINU MÍNU!
EF VIÐ LENDUM Á
VATNI ÞÁ ERU BJÖRG-
UNARVESTI UNDIR
SÆTUNUM YKKAR!
ÉG HELTI NÚ
EKKI NIÐUR SVO
MIKLU!!
ÉG HELD AÐ VIÐ
GÆTUM MARKAÐSSETT
FYRIRTÆKIÐ OKKAR BETUR
HVERNIG
ÞÁ?
KÆRASTAN MÍN ER
LÆRÐUR MARKAÐSFRÆÐINGUR
OG HÚN HEFUR BOÐIST TIL
ÞESS AÐ HJÁLPA OKKUR
ÓKEYPIS
HEFUR HÚN MIKLA REYNSLU AF ÞVÍ
AÐ MARKAÐSSETJA FYRIRTÆKI?
HÚN ER AÐ VINNA
Í ÞVÍ
MORGUN Í MIAMI...
ÉG TRÚI
ÞESSU EKKI
VIÐ HVERN
VARSTU AÐ TALA Í
SÍMANN?
VIÐ FENGUM SVO GÓÐA
KYNNINGU, SLAGSMÁLIN Í
LEIKHÚSINU VORU Á ÖLLUM
FRÉTTASTÖÐVUNUM
ÞAÐ Á AÐ SETJA
SÝNINGUNA UPP Í NEW YORK
OG Í ÞETTA SKIPTIÐ VERÐUR ÞAÐ
Á BROADWAY!
VÁ!
Herra Jón Gnarr
Sjaldan hefur mér
verið jafn misboðið
og við ummæli þín
þegar þú bendir
karlmönnum á Ís-
landi á að láta gera
sig ófrjóa. Vilt þú
ekki, herra Jón
Gnarr, byrja á að
benda þínum niðjum
á þetta og sjá hvaða
viðbrögð þú færð?
Ég er svo lánsöm að
eiga fjögur heilbrigð
börn og fimm barna-
börn. Þrjú elstu
börnin mín eru vinn-
andi fólk á barneignaraldri og
borga sína skatta til samfélagsins
og það ekkert litla, yngsti í þess-
um hópi er 27 ára og á hann strák
sem er 21 mánaðar gamall, hann
er með eyrnabólgu og þurfti á
læknishjálp að halda. Pabbi hans
fór með hann til læknis og þurfti
að leysa út lyfjaskammt fyrir ríf-
lega 20 þúsund, en þrátt fyrir það
þá var það ekki það
eina sem olli honum
sorg heldur þessi um-
mæli þín, herra Jón
Gnarr. Ef þú ert ekki
búinn að átta þig á
því enn að við sem
búum og lifum í
þessu landi erum
ekki til í svona djók
þá held ég að þú ætt-
ir að gera þér grein
fyrir því hér og nú og
hypja þig úr Ráðhús-
inu. Því að vandamál
eru til að leysa þau
en ekki til að kasta á
undan sér eins og
þinn er siður. Í frétt-
um í kvöld (miðvikudag sl.) fáum
við svo fréttir af 13% hækkun á
kosti barna í grunnskólunum ofan
á allt annað Svei þér, borgarstjóri,
og öllu þínu fólki.
Sigurbjörg
Hjörleifsdóttir.
Ást er…
… þegar hann eyðir
sparifénu í þig.
Frönsk
ilmvöt
n
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, bingó
kl. 13.30. Skráning og miðasala er hafin
á aðventuhátíð Notendaráðs í Félagsm.
Aflagranda 40. Veglegar veitingar og
skemmtiatriði. Uppl. og skráning í Fé-
lagsm. Aflagranda.
Árskógar 4 | Smíði/útskurður kl. 9.
Stóladans kl. 10.30.
Boðinn | Vatnsleikfimi kl. 9.15, lok. hóp-
ur, félagsv. kl. 13.30, hugvekja kl. 14.
Bólstaðarhlíð 43 | Kertanámskeið kl. 9,
handavinnustofa. Leikhópurinn Snúður
og Snælda skemmtir og verður með
ýmsar uppákomur kl. 13.30, aðgangur
1.000 kr., skrán. í síma 535-2760.
Dalbraut 18-20 | Stóladans kl. 10.30,
söngstund kl. 14.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8.
Lestur úr dagblöðum kl. 10, uppi á ann-
arri hæð. Listamaður mánaðarins.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Leik-
félagið Snúður og Snælda, æfing kl. 9.
Námskeið/Egilssaga kl. 13. Félagsfundur
með Guðbjarti Hannessyni kl. 15.30.
Dansleikur sun. kl. 20, Klassík leikur.
Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl.
9.15, málm- og silfursmíði kl. 9.30/13,
jóga kl. 10.50 og félagsvist kl. 20.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn-
aður kl. 9, jóga kl. 9.30, ganga kl. 10,
stólaleikfimi kl. 10.30. Bingó kl. 13.30.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 9/11, leðursaumur og
félagsvist kl. 13, bíll frá Hleinum kl.
12.30, frá Garðatorgi 7 kl. 12.45.
Félagsstarf eldri borgara, Kópavogi |
Opið hús í Gullsmára 13 19. nóv. kl. 14.
Yrsa Sigurðardóttir og Harpa Dís Há-
konardóttir lesa úr bókum sínum. Tísku-
sýning. Kaffiveitingar í boði félagsins.
Félagsstarf eldri borgara í Mos-
fellsbæ | Skrán. stendur yfir í jólahlað-
borðið í hádeginu 25. nóv. á Hótel Nat-
ura, áður Hótel Loftleiðir. Lagt af stað kl.
11.30 með rútu frá Eirhömrum. Sími
5868014 e. hádegi og 6920814.
Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn-
arnesi | Kaffispjall í krók kl. 10.30. Jóga
kl. 11. Spilað í krók kl. 13.30. Syngjum
saman kl. 14. Leikhúsferð kl. 19.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9,
bingó kl. 13.30, sölusýning á glermunum
Huldu kl. 13.
Hraunsel | Tréskurður kl. 10, leikfimi
Bjarkarhúsi kl. 11.30, brids kl. 13, dans-
leikur kl. 20.30, Kristján Hermannsson
og félagar, húsið opnað kl. 20.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 9 og 10.
Vinnustofa kl. 9 án leiðbeinanda.
Hæðargarður 31 | Við Hringborðið kl.
8.50. Thai chi kl. 9. Myndlist kl. 13.
Sönghópurinn Vorboðinn frá Mosfellsbæ
í Salnum kl. 14. Hæðargarðsbíó kl. 16.
Íþróttafélagið Glóð | Opið hús í Kópa-
vogsskóla með línudansi kl. 14.40.
Zumba, byrjendur kl. 16.
Norðurbrún 1 | Myndlist/útskurður kl.
9.
Vesturgata 7 | Setustofa kl. 9, enska kl.
10.15, tölvukennsla byrj. kl. 12.30, tölvu-
kennsla framh. kl. 14.10, sungið v/flygil
kl. 13.30. Dansað í aðalsal kl. 14.30.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.30, leirmótun og handav. kl. 9, morg-
unstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10.15, bingó
kl. 13.30.
Þá er komið að þriðju og síðustuvísunni eftir Hákon Aðal-
steinsson sem Guðni Ágústsson
rifjar upp, en fyrri hluti bréfsins
birtist í Vísnahorni í gær:
„Sú þriðja er þegar Hákon toll-
vörður var að bíða eftir Norrænu
sem sigldi inn fjörðinn. Jónas Hall-
grímsson stóð í norðannepju og
fleiri Seyðfirðingar undir þáver-
andi móttökuhúsi. Þá segir Jónas:
„Ætli við lítum þessa sjón nokkru
sinni framar að þessir þrír fánar
blakti hlið við hlið, sá íslenski, fær-
eyski og framsóknarfáninn?“ En
þá var stutt í kosningar. „Ef ekki
er nú tilefni til að yrkja þá hven-
ær.“
Þá tuggði Hákon pípuna, kom
að vörmu spori, flutti vísuna og
glotti við tönn. Framsókn vann
kosningarnar á Seyðisfirði eins og
jafnan. Vísan spillti ekki:
Ég er vinur Jónasar
ég þarf mörgu að sinna
undir fána framsóknar.
finnst mér gott að vinna.“
Jóhann S. Hannesson orti limru
er Svarthöfði skrifaði fasta pistla í
Vísi og tók stundum stórt upp í sig:
Þegar Gróur á Leiti eru grafnar
og glatkistan mörðunum safnar
er það svolítil fró
fyrir siðlausan róg
að Svarthöfði lifir og dafnar.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af Hákoni og Svarthöfða
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
...þú leitar og finnur