Morgunblaðið - 18.11.2011, Side 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2011
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Todmobile er með merkustu hljóm-
sveitum Íslands en gott nef fyrir
grípandi, poppvænum melódíum
ásamt styrkum fótum í hinni klass-
ísku hefð gat af sér nokk einstaka
tónlist sem hefur lifað með þjóð-
inni síðan sveitin steig fyrst fram
fyrir réttum tuttugu og þremur ár-
um.
Sjöunda breiðskífa hennar er nú
komin út, kallast hún 7, og verður
hún kynnt í kvöld í Eldborg með
pomp og prakt.
Dramatík
7 er önnur plata sveitarinnar eft-
ir að hún var reist við en platan
Ópus 6 kom út 2006. Síðasta plata
þar á undan var Perlur og svín
(1996).
Eiður Arnarsson bassaleikari
segir að ólíkt Ópus 6 sé nú um
nokkuð breytta liðsskipan að ræða.
„Og munar þar mestu um að Ey-
þór er ekki með. Nú sjá þau Andr-
ea og Eyþór Ingi um sönginn, eða
„Ingri“ eins og við köllum hann
stundum þar sem hann er yngri en
Todmobile (kímir). Þeir nafnarnir
eru gríðarlega ólíkir söngvarar, sá
yngri er til muna dramatískari. Ey-
þór eldri sá gjarnan um þessi rytm-
ískari og léttari lög en nú er það
Andrea sem fer í mýktina og Ey-
þór yngri er meira í dramatíkinni.
Þetta hefur eiginlega snúist við.“
Lögin eru öll utan eitt eftir Þor-
vald Bjarna Þorvaldsson, Andrea
Gylfadóttir á þetta eins og hún
semur auk þess alla texta.
„Svo kemur þetta betur saman í
hljóðverinu,“ segir Eiður. „Við tök-
um ekki upp sem hljómsveit, það
er ekki sest niður og djammað.
Þetta er allt tekið upp sér og þetta
er mikið „pródúserað“, þetta er
einfaldlega þannig band. Þetta hef-
ur gert það að verkum að það get-
ur verið þrautin þyngri að endur-
skapa lög á tónleikum þó það hafi
alveg gengið svona gegnumsneitt.“
Eiður tekur undir það að Tod-
mobile sé mikið hljóðversband en
um leið er það mikið tónleikaband
og sannast það á því að uppselt er
fyrir löngu á tónleikana í kvöld.
Þar verður hvergi til sparað – og
þetta veit fólk.
„Allt sem er stórt hæfir okkur
vel,“ segir Eiður og hlær við. „Og
Eldborgin passar vel undir þetta.
Áður fyrr vorum við gjarnan í Ís-
lensku óperunni þegar öllu var til
tjaldað.“
Þessi einstaka blanda sem
Todmobile hefur verið að hræra í á
ferlinum hefur reynst henni farsæl
og Eiður segist ekki vera hissa á
því, þannig séð.
„Þessi blanda af klassískri tón-
listarmenntun og poppi hefur
gengið ótrúlega vel upp. Og þetta
eru ekki einföld lög. Það er t.d. at-
hyglisvert að fylgjast með færum
kassagítarleikurum reyna sig við
„Stúlkuna“ í partíum. Þær til-
raunir brotlenda iðulega snemma.
Ég er kannski mest hissa á því að
Todmobile sé vinsæl á dansleikjum.
Þetta er ekki beint dansvæn tónlist
(hlær). En svo fylgist maður með
stemningunni vaxa og vaxa í saln-
um. Alveg merkilegt.“
„Allt sem er stórt hæfir okkur vel“
Todmobile
gefa út plötuna 7
Útgáfutón-
leikar í Eldborg
í kvöld
Todmobile í dag „Við tökum ekki upp sem hljómsveit, það er ekki sest niður og djammað …“
Kvikmyndavefur-
inn Screen Daily
birti í fyrradag
viðtal við kvik-
myndagerð-
armanninn Börk
Sigþórsson en
verðlaunastutt-
mynd hans
Skaði/Come To
Harm er meðal
þeirra sem sýndar
verða á Encounters-kvikmyndahá-
tíðinni í Bristol á Englandi sem hófst
í fyrradag og stendur til sunnudags.
Í greininni segir að hundruð stutt-
mynda verði sýnd á hátíðinni og að
mynd Barkar sé vert að veita sér-
staka athygli þar sem hún sé afar vel
gerður tryllir. Í myndinni segir af ís-
lenskum athafnamanni sem á við
vandamál að stríða í einkalífi og
starfi og heldur að óboðinn gestur sé
á heimili hans. Efnahagshrunið á Ís-
landi varð Berki m.a. að innblæstri
við gerð Skaða.
Kastljósinu beint
að mynd Barkar
Börkur
Sigþórsson
Tónlistarmaður-
inn Bergþór
Smári, eða Beggi
Smári, og hljóm-
sveitin Mood
halda tónleika á
Café Rosenberg í
kvöld. Tónleik-
arnir hefjast kl.
22. Í Mood eru
auk Begga þeir
Friðrik Geirdal
Júlíusson trommuleikari, Ingi S.
Skúlason bassaleikari og Tómas
Jónsson hljómborðsleikari. Á tón-
leikunum verður nýtt lag kynnt til
sögunnar, „Apple Of My Eye“. Café
Rosenberg er að Klapparstíg 27 í
Reykjavík.
Beggi Smári og
Mood á Rosenberg
Bergþór
Smári
SVIKRÁÐ
MAGNAÐUR
ÞRILLER
100/100
PHILADELPHIA
INQUIRER
91/100
ENTERTAINMENT
WEEKLY
„MÖGNUÐ OG VEL
GERÐ MYND“
-H.V.A. - FBL
HHHHHEIMSFRUMSÝND
VERTU MEÐ ÞEIM FYRSTU Í HEIMINUM TIL
AÐ SJÁ HIÐ MAGNAÐA
ÆVINTÝRI UM BELLU, EDWARD OG JACOB
BELLA ER Í LÍFSHÆTTU OG EDWARD OG
JACOB ÞURFA AÐ SAMEINA KRAFTA SÍNA
EF ÞEIR ÆTLA BJARGA LÍFI HENNAR
MYNDIR SEM HAFA VERIÐ AÐ SLÁ ÖLL
AÐSÓKNARMET Í USA
NÚMERUÐ S
EINN FYRIR ALLA - ALLIR FYRIR EINN
MIÐASALA Á S
á allar sýningar merktar með grænuSPARBÍÓ 3D 1.000 kr. SPARBÍÓ
-ENTERTAINMENT
WEEKLY
HHHH
SÝND Í EGILSHÖLL OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLLI, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
ÍSLENSK TAL
KVIKMYNDIR.IS
HHHH
SÝND Í ÁLFABAKKA
- BÖRKUR
GUNNARSSON,
MORGUNBLAÐIÐ
HHHH
SSÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI
OG KEFLAVÍK
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI
SÝND Á EGILSHÖLL OG SELFOSSI