Morgunblaðið - 18.11.2011, Side 36
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 322. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Britney Spears með flatan maga
2. Banaslys á Siglufirði
3. Harpa botnlaus hít
4. Með veikt barn til Danmerkur
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Bubbi Morthens er að vinna að
hljómplötu sem ber vinnuheitið Þorp-
ið. Bubbi segir plötuna verða eins
konar skírskotun til tónlistar lokaára
sjöunda áratugarins. Á plötunni verði
m.a. að finna langar sögur.
Morgunblaðið/Ernir
„Þorpið“ vinnuheiti
næstu plötu Bubba
Bjarni Thor
Kristinsson
bassasöngvari fer
með hlutverk Sar-
astrós í Töfra-
flautunni í Ís-
lensku óperunni,
20. nóvember, í
stað Jóhanns
Smára Sævars-
sonar. Þá fer Hlöðver Sigurðsson
með hlutverk annars reglubróður í
stað Kolbeins Ketilssonar. Um 12.000
miðar hafa selst á Töfraflautuna.
Bjarni Thor syngur
í Töfraflautunni
Shogun, sigurvegari Músíktilrauna
2007, er með endurkomutónleika á
Gauknum í kvöld. Hljómsveitin tók
upp stuttskífu í sumar,
„klárlega það þyngsta
sem þessi hljómsveit
hefur gert,“ sam-
kvæmt fréttatilkynn-
ingu. Einnig leika
hljómsveitirnar
Endless
Dark og
Trust The
Lies.
Shogun snýr aftur
á Gauknum í kvöld
Á laugardag Fremur hæg austlæg átt og rigning eða slydda fram
eftir degi um landið austanvert. Annars úrkomulítið.
Á sunnudag Suðlæg átt 8-15 m/s með rigningu og síðar skúrum
eða slydduéljum, en léttir til á NA-verðu landinu. Hiti 3 til 9 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Dálítil súld eða rigning af og til, en úrkomu-
lítið vestanlands. Austan 8-13 og rigning suðaustantil annað kvöld.
VEÐUR
Hagur Skagamannsins Birg-
is Leifs Hafþórssonar vænk-
aðist talsvert í gærkvöldi en
hann er í hörkubaráttu um
að komast inn á PGA-
mótaröðina bandarísku í
golfi. Birgir bætti sig um
þrjú högg þegar hann lék á
67 höggum í gærkvöldi, það
er fjögur högg undir pari
vallarins en leikið er á Flór-
ída. Birgir er í 34.-36. sæti á
2. stigi úrtökumótanna en
20 efstu komast áfram. »1
Birgir bætti sig
um þrjú högg
Fyrir aldarfjórðungi voru ríflega þrjá-
tíu meistaraflokkslið í handbolta
karla hér á landi. Nú eru þau aðeins
fjórtán og aðeins þrjú þeirra koma af
landsbyggðinni. Mörg af stærstu
íþróttafélögum landsins virðast ekki
treysta sér til að halda úti liði í hand-
bolta. »4
Helmingsfækkun liða
í handboltanum
Fram tyllti sér á topp N1-deildar karla
í handknattleik með eins marks sigri
á FH þar sem lokamínúturnar voru
æsispennandi. Þá vann Akureyri ann-
ar sigur sinn í röð í deildinni þegar
Afturelding kom í heimsókn norður
yfir heiðar. Þá vann Valur öruggan
sigur á Gróttu sem enn leitar að
fyrsta sigrinum. Valur er hins vegar
að finna rétta taktinn. » 2-3
Fram á toppinn og Valur
og Akureyri unnu einnig
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Fyrsta fótboltaæfing Knattspyrnu-
félagsins Fram á nýjum gervigras-
velli í Úlfarsárdal var á þriðjudag.
Drengir úr 6. flokki urðu fyrstir til
að spila á vellinum en hann er lagður
gervigrasi af nýjustu gerð. Þetta er
fyrsti áfanginn á framtíðarsvæði
Fram sem sér fyrir endann á.
Félagshús Fram við völlinn á að
verða tilbúið til notkunar um miðjan
desember, að sögn Kristins R. Jóns-
sonar, framkvæmdastjóra Fram.
Um er að ræða færanlegar húsein-
ingar sem settar eru upp til bráða-
birgða á íþróttasvæðinu í Úlfars-
árdal. Í húsinu verða búningsklefar,
skrifstofa, verslun með vörur tengd-
ar Fram, eldhús og félagsaðstaða.
Vinna er einnig hafin við tvö æfinga-
svæði, grasvelli, og eiga þeir að
verða tilbúnir um mitt næsta sumar.
Teikningar að nýju fjölnota
íþróttahúsi Fram í Úlfarsárdal voru
tilbúnar árið 2008 og stóð til að bjóða
byggingu hússins út í október það
ár. „Það stoppaði eins og svo margt
á þeim tíma þegar allt hrundi,“ sagði
Kristinn. Hann sagði Reykjavíkur-
borg ráða framhaldinu með bygg-
ingu hússins. Hugmyndir hafa kom-
ið um meiri starfsemi í húsinu en
upphaflega var ráðgert. Nú er að
störfum nefnd þar sem eiga sæti
fulltrúar íbúa, hverfisráðs og fleiri
og mun hún skila tillögum um fram-
tíðarnotkun hússins í byrjun nýs árs.
Dágóður hópur af Frömurum
Kristinn sagði að í Úlfarsárdal og
Grafarholti væri kominn dágóður
hópur af Frömurum. Þar byggju nú
um sex þúsund manns og ljóst að þar
myndi fólki fjölga enn frekar. „Þetta
er hverfi sem mun byggjast upp á
næstunni. Þetta er eina byggðin í
Reykjavík sem er tilbúin til upp-
byggingar,“ sagði Kristinn.
Fram hefur verið með íþrótta-
æfingar í Grafarholti í mörg ár, bæði
í íþróttahúsi Ingunnarskóla og yfir
sumarið á grasvelli í Leirdal. Þá
hafa verið æfingar í Egilshöll yfir
veturinn og börn og unglingar úr
hverfunum einnig sótt æfingar í
Framheimilinu í Safamýri.
Engin tímaáætlun er um hvenær
starfsemi Fram verður flutt úr Safa-
mýri. Kristinn sagði það ráðast af
því hvenær framkvæmdum lyki í
Úlfarsárdal. Hann sagði það vera
talsvert snúið að reka félagið á
tveimur stöðum. Nú væru allir
flokkar í fótbolta og handbolta tví-
skiptir og svo þyrfti að sameina úr
báðum flokkum í eitt lið fyrir keppn-
ir.
Strætisvagnar ganga eftir Reyn-
isvatnsvegi meðfram íþróttasvæð-
inu. Kristinn sagði að Strætó bs.
hefði verið beðinn að færa stoppistöð
nær göngustíg sem liggur að
íþróttasvæðinu en hún er nú.
Framtíðin hafin í Úlfarsárdal
Nýr gervigras-
völlur og félags-
hús Fram
6. flokkur Fram Þessir vösku knattspyrnusveinar úr Grafarholti og Úlfarsárdal tóku nýjan grasvöll Fram í Úlfars-
árdal í notkun með æfingu á þriðjudaginn var. Ánægjan leynir sér ekki á andlitum þessara hressu stráka.
Gervigrasið Er glæsilegt. Félagshús verður tilbúið um miðjan desember.
Ljósmynd/Jóhann G. Kristinsson
Morgunblaðið/Sigurgeir S.