Morgunblaðið - 03.12.2011, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.12.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Sigrún Rósa Björnsdóttir sigrunrosa@mbl.is Vestfirðingar hafa áhyggjur af því að skortur á framkvæmdum í vetur geti leitt til aukins atvinnuleysis. Í október voru 106 skráðir atvinnulausir á Vest- fjörðum en sú tala gæti hækkað um helming þegar uppsagnarfrestur hjá þeim 51 manni sem sagt var upp í tveimur hópuppsögnum í lok október og nóvember rennur út. „Það virðist ekki vera borð fyrir báru í því sem maður kallar fram- kvæmdafé. Hvort það er til staðar veit ég ekki en menn virðast alla vega ekki vera að hugsa það þannig að það eigi að koma atvinnulífinu af stað,“ segir Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga, þegar staða framkvæmda á Vestfjörðum er rædd. Öllum starfsmönnum TH-tré- smiðju á Ísafirði var sagt upp í vikunni og í lok október var öllum starfsmönn- um KNH verktaka sagt upp. Erfiðasti vetur eftir hrun Sigurður Óskarsson, framkvæmda- stjóri KNH ehf., segir ekkert fram- undan núna. „Það er algjör dauði í febrúar, ég held að það séu öll jarð- vinnufyrirtæki á landinu að verða verkefnalaus.“ Steinþór Bjarni Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri og eigandi TH, tók í sama streng í vikunni og sagði tímann verða að leiða í ljós hvort einhverjir yrðu ráðnir aftur. Finnbogi segir það hafa verið fyrir- séð að þessi vetur yrði sá erfiðasti eft- ir hrun ef ekkert yrði að gert. Vonast hafi verið eftir því að blásið yrði til sóknar í kjölfar viðræðna við stjórn- völd í vor og sumar. „Fyrirtæki fá bara þau skilaboð að framkvæmdafé sé búið. Ekki verði gert meira í ár.“ Ríkið ekki lengur til bjargar Finnbogi segir sárt að vita af fjölda viðhaldsverkefna hjá bæði ríki og sveitarfélögum, sem ekki sé gengið í og eignir skemmist fyrir vikið. Fyr- irtæki hafi hingað til lifað af veturinn með því að fara í viðhaldsverkefni í þessum „dauðu“ mánuðum. „Maður hefur verulegar áhyggjur af því þegar sveitarfélög og ríki, sem eiga að vera hæf að grípa inn í þegar ástandið er svona, geta það ekki fjár- hagslega. Þá er kominn tími til að hugsa þetta allt upp á nýtt.“ Þegar rætt er um atvinnuhorfur segir Finn- bogi ljóst að sjávarútvegurinn sé hornsteinn Vestfirðinga. Þar séu nú spennandi verkefni í fiskeldi hjá Arnarlaxi á Bíldudal og Fjarðalaxi í Tálknafirði en fyrirtækin hafi auglýst eftir fólki. HG í Hnífsdal boði að fyrirtækið muni fara í aukið þorsk- eldi en það geti einnig skap- að mörg störf. Erfiðasti veturinn eftir bankahrunið  Vestfirðingar segja fé vanta til framkvæmda yfir veturinn Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Atvinna Vestfirðingar hafa áhyggjur af því að skortur á framkvæmdum í vetur geti leitt til aukins atvinnuleysis. Þó að þar sé nú aukning í fiskeldi er ekki víst að hún leysi úr atvinnuleysi iðnmenntaðra manna. Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is „Það sem að mínu mati stendur upp úr í þessu svari er að þarna sést svart á hvítu að veiðigjaldið er fyrst og fremst landsbyggðarskattur,“ segir Einar K. Guðfinnsson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og land- búnaðarráðsherra, svaraði í gær fyrirspurn Einars um árlega upp- hæð veiðigjalds og skiptingu þess eftir sveitarfélögum. Einar segir að samkvæmt svari ráðherrans komi 85% þeirrar upp- hæðar sem sé innheimt frá útgerð- um sem starfa utan höfuðborgar- svæðisins. „Þessir peningar fara síðan til ráðstöfunar í ríkissjóði og allir vita að þeir peningar rata að lokum fyrst og fremst í verkefni á höfuðborgarsvæðinu. Þannig að hér er um að ræða kláran tilflutning á fjármunum með beinum hætti í gegnum ríkissjóð frá landsbyggð til höfuðborgar.“ Útilokað fyrirkomulag Einar bendir á að á næsta fisk- veiðiári hafi ríkisstjórnin í hyggju að þrefalda veiðigjaldið og að það fari þá úr þremur milljörðum króna í níu milljarða. „Þá fer að muna rækilega um þetta í einstökum byggðarlögum og hundruð milljóna úr tiltölulega litlum sjávarplássum munu þá streyma úr hagkerfi þeirra og þar með veikja þau,“ segir Einar og bætir við að það sé alger- lega útilokað að búa við það að fyr- irkomulagið sé með þessum hætti. Hann segir ennfremur að ef halda eigi áfram á þessari leið sé það „sjálfsögð réttlætiskrafa byggðanna úti á landi að þessir fjármunir rati til þeirra að nýju til einhvers konar atvinnuuppbygging- ar þar“. Féð skili sér aftur til lands- byggðarinnar  Segir veiðigjaldið landsbyggðarskatt Álagt veiðigjald frá fiskveiðiárinu 2005/2006 2005/2006: 649.292.360 kr. 2006/2007: 443.563.095 kr. 2007/2008: 403.087.266 kr. 2008/2009: 126.256.035 kr. 2009/2010: 1.127.030.474 kr. 2010/2011: 3.089.232.708 kr. 2011/2012: 4.500.000.000 kr.* *Gert er ráð fyrir að álagt veiðigjald fiskveiðiárið 2011/2012 verðu um 4,5 ma. kr. „Það setur auðvitað ugg að manni,“ segir Daníel Jak- obsson, bæjarstjóri Ísafjarð- arbæjar, um fréttir af tveimur hópuppsögnum með mán- aðarmillibili. Hann segist þó vonast til þess að í öðru til- fellinu eigi hluti starfsmanna að geta horfið að öðrum verk- efnum og vísar þar til verk- efna sem séu að fara í gang á Vestfjörðum; þ.e.a.s. vega- framkvæmdir á suðurfjörð- unum og á Ströndum og snjó- flóðagarðar á Ísafirði. Hjá Ísafjarðarbæ sjái hann fram á meiri framkvæmdir en í lang- an tíma áður, bæði með bygg- ingu hjúkrunarheimilis og tveggja hótela. „Þó veturinn sé erfiður, þar sem allt framkvæmdafé er uppurið hjá ríkinu í ár, ætti næsta ár að geta verið ágætt og verkefnastaðan að fara að lifna við með sumrinu,“ segir Daníel. Erfitt en tek- ur betra við ATVINNUMÁL Í VETUR Daníel Jakobsson Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Gylfi Magnússon, fyrrverandi efna- hags- og viðskiptaráðherra, hækkaði þóknun til stjórnarmanna í Fjár- málaeftirlitinu um 77% 1. september 2010, á síðasta degi sínum í embætti. Árni Páll Árnason, eftirmaður Gylfa, vissi ekki af hækkuninni fyrr en í gær. Hækkunin gilti frá 1. apríl 2010 og heildarlaun til stjórnar fóru þá úr 13,5 milljónum í 24 milljónir. „Ég tók þessa ákvörðun í samráði við ráðu- neytisstjóra og starfsfólk ráðuneyt- isins. Forsendurnar fyrir hækkun- inni voru þær að það var gríðarlegt álag á stjórn Fjármálaeftirlitsins allt frá hruni. Í þessu felst mikil vinna og það er mjög erfitt að fá hæft fólk,“ segir Gylfi. „Þetta eru tímafrek störf, unnin undir miklu álagi og kjörin endurspegla það.“ Gylfi segir að hlutverk stjórnar FME hafi breyst mikið við hrunið, verkefnum hafi fjölgað og umfang aukist. Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, vissi ekki um þessa hækkun fyrr en í gær. „Að- koma mín að þessu er engin. FME er sjálfstætt í sínum störfum og ég veit ekki á hvaða forsendum þessi ákvörðun var tekin. Það er ómögu- legt fyrir mig að leggja mat á ákvarðanir forvera míns,“ segir Árni. Stjórnin er skipuð til fjögurra ára í senn. Þar sitja þrír aðalmenn og þrír varamenn og formaður hennar er Aðalsteinn Leifsson. „Hver stjórnarmaður er með 200 þúsund króna þóknun á mánuði, en stjórn- arformaður er með 600 þúsund. Þessi kjör tóku gildi áður en ég tók sæti í stjórninni og það eru vænt- anlega einhverjar bókhaldslegar ástæður fyrir því að þetta kemur fram í rekstraráætlun núna,“ segir Aðalsteinn. Hann segir störf stjórn- arinnar meðal annars felast í því að marka stefnu FME og sjá til þess að henni sé fylgt eftir. Að auki ræður stjórnin forstjóra og tekur ýmsar ákvarðanir lögum samkvæmt. Hann segir kjörin taka mið af því að stjórn- arsetan takmarki atvinnumöguleika fólks. „Við verðum að halda okkur fjarri öllu því sem gæti valdið hags- munaárekstrum og megum ekki eiga neitt undir eftirlitsskyldum aðilum.“ Stjórn FME fékk 77% hækkun  Forsendur hækkunarinnar sagðar vera gríðarlegt álag á stjórnina  Árni Páll vissi ekki af hækkuninni fyrr en í gær LANGUR LAUGARDAGUR Opið til 17:00 og víða lengur Verslum og njótum þar sem jólahjartað slær Akureyringar og nærsveitamenn fundu greinilega fyrir þremur jarð- skjálftum á áttunda tímanum í gær- kvöldi. Áttu skjálftarnir upptök sín um 14 kílómetrum austan Akureyr- ar, nánar tiltekið í Ljósavatnsfjalli. Sá stærsti var 3,2 stig kl. 19.22 og á næstu 24 mínútum fylgdu tveir eft- irskjálftar; 1,5 stig og ríflega 2 stig. Tveir þeir stærri voru á um það bil 9 km dýpi en sá minnsti á um 6 km dýpi. Einn skjálfti mældist síðan um hálftíuleytið í gærkvöldi, upp á 1,3 stig. Að sögn Sigþrúðar Ármanns- dóttur á jarðvárdeild Veðurstof- unnar eru jarðskjálftar ekki tíðir á þessu svæði, algengara sé að þeir séu norðar á Flateyjarskaganum. Ekki höfðu mælst frekari jarðhrær- ingar er Morgunblaðið fór í prent- un í gærkvöldi. Stóri skjálftinn fannst vel á Akur- eyri. Íbúi á Akureyri segist hafa fundið hann greinilega, en hann býr efst á Brekkunni. Fyrst kom smá forskjálfti að honum fannst og svo talsvert högg ásamt hljóðbylgju. Fátíðir jarðskjálftar fundust við Akureyri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.