Morgunblaðið - 03.12.2011, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 03.12.2011, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2011 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Evrópusambandið er að taka þeirri eðlisbreytingu að ríkin sem taka þátt í samstarfinu um evruna munu bind- ast nánari böndum í efnahagsmálum. Angela Merkel, kanslari Þýska- lands og valdamesti stjórnmálamað- ur Evrópu um þessar mundir, stað- festi þetta í ræðu í þýska sambands- þinginu í Berlín í gær. Boðaði kanslarinn við það tilefni að á fundi leiðtoga ESB-ríkjanna í næstu viku yrðu lagðar fram tillögur um breyt- ingar á samstarfi sambandsins. Miða breytingarnar að því að hindra klofning sambandsins milli evruríkjanna 17 og aðildarríkjanna tíu sem hafa eigin gjaldmiðil. Hér er ekki tjaldað til einnar næt- ur heldur vill Merkel breyta sjálfum grundvelli Evrópusamstarfsins „svo stofna megi fjármálabandalag sem hafi virkar valdheimildir, að minnsta kosti í ríkjum evrusvæðisins“. Gerist aðildarríki samstarfsins brotleg verði framkvæmdastjórn ESB og Evrópudómstóllinn að bregðast við með viðeigandi hætti. Skírskotar til sögunnar Þegar kosti og lesti Evrópusam- bandsins ber á góma tiltaka stuðn- ingsmenn sambandsins yfirleitt fyrst þá staðreynd að með samstarf- inu hafi tekist að hindra vopnuð átök milli Frakka og Þjóðverja. Á þetta er hér bent vegna þess að Merkel beitti þeirri sögulegu skír- skotun í ræðu sinni að nýja samruna- skrefið væri gert í anda Konrads Adenauer, helsta forystumanns Vestur-Þýskalands eftir stofnun þess í kjölfar síðari heimsstyrjaldar, og Helmuts Kohl, fyrsta kanslara sameinaðs Þýskalands eftir samein- ingu Vestur- og Austur-Þýskalands. Mun þessi skírskotun Merkel án efa rata í sögubækur framtíðarinnar enda gefur hún til kynna að það sé hennar sögulega hlutverk að stíga frekari skref í átt til sameiningar álf- unnar í kjölfar ófara, í þessu tilviki í fjármálum. Við endamarkið Kanslarinn segir undirbúninginn löngu kominn af viðræðustigi. „Í Evrópu er nú deilt og tekist á um smáa letrið, ekki um áætlunina í heild … Hver sá sem hefði látið þau orð falla fyrir nokkrum mánuðum að í árslok 2011 myndum við taka þýð- ingarmikil og ákveðin skref í átt til … evrópsks fjármálabandalags með virkum valdheimildum hefði verið talinn vitskertur. Nú er ná- kvæmlega þetta á döfinni. Við erum næstum komin á leiðarenda,“ sagði Merkel. Boðar frekari samruna ESB-ríkjanna í fjármálum Reuters Kanslari Evrópu? Á auglýsingu vínframleiðenda í Lissabon, höfuðborg Portúgals, er mynd af Merkel með þeim boðskap að Portúgal sé að gera sitt besta [í skuldakreppunni]. Skal tekið fram að þýtt er lauslega úr portúgölsku.  Merkel Þýskalandskanslari vill grundvallarbreytingar á Evrópusamstarfinu Ræða Merkel í þýska þinginu vakti einnig athygli fyrir þá sök að hún varaði við því að úrvinnsla skulda- kreppunnar á evrusvæðinu mundi taka mörg ár. Skuldavandinn mun því fléttast inn í stjórnmál aðildar- ríkja ESB næstu misserin og er þá nærtækast að horfa til forseta- kosninganna í Frakklandi næsta ár. Í því samhengi eru þau ummæli Sarkozy Frakklandsforseta fróðleg að ef ESB taki ekki strax á skulda- kreppunni verði „saga heimsins skrifuð án Evrópu“. Undir- strikar það að evru- samstarfið snýst ekki að- eins um fjármál heldur er það náskylt hug- myndum for- ystumanna ESB um hlut- verk sam- bandsins í heiminum. Viðfangsefni áratugarins MERKEL SEGIR SKYNDILAUSNIR EKKI Í BOÐI Sala á búnaði sem gerir kleift að fylgjast með smáskilaboðum og tölvupóstum milljóna manna veltir orðið sem svarar hundr- uðum milljarða króna á ári. Þetta fullyrðir Julian Assange, stofnandi uppljóstrunarvefjarins WikiLeaks, og heldur því fram að sum fyrirtækin selji þessa tækni til ráðamanna í ríkjum sem búa við ólýðræðislegt stjórnarfar. Afleið- ingin sé sú að hægt sé að fylgjast með samskiptum andófsmanna, að því er segir á vef Financial Times. Er þar jafnframt haft eftir Ass- ange, sem rökstuddi mál sitt á ráð- stefnu í London, að vegna þessarar tækni hafi WikiLeaks beðið með að gera utanaðkomandi aðilum kleift að senda lekavefnum upplýsingar. Er þýski iðnrisinn Siemens meðal fyrirtækja sem nefnd eru. Vopn í hendur Sýrlandsforseta? Blaðið segir einnig frá því að þrír öldungadeildarþingmenn í Banda- ríkjunum, Mark Kirk, Robert P. Ca- sey Jr. og Christopher A. Coons, hafi óskað eftir rannsókn á því hvort tvö tæknifyrirtæki í Kali- forníu hafi selt eftirlitstækni til Sýrlandsstjórnar. Óskin er lögð fram í tveggja síðna bréfi til Hillary Clinton, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna. Er þar m.a. vitnað í tölur frá SÞ um að stjórn Bashar Assad Sýrlandsforseta sé talin bera ábyrgð á drápum 3.500 óbreyttra borgara síðan í mars. WikiLeaks segir njósnaforrit skoða skilaboð í farsímum Julian Assange BRETLAND Kínversk lyfjafyrirtæki hyggja á útrás með framleiðslu og sölu á bóluefnum, þar með talið til fá- tækra ríkja þar sem lyfjakostnaður er oftar en ekki þungur baggi. Sagt er frá málinu á vef Washing- ton Times og er þar rætt við Ninu Schwalbe, yfirmann hjá hjálpar- samtökunum GAVI Alliance sem kaupa árlega bóluefni fyrir 50 milljónir barna. Schwalbe væntir mikils af innkomu kínversku fyrir- tækjanna á markaðinn og telur að með þeim muni forsendur breytast. Blaðið tekur þó fram að nokkur ár kunni að líða áður en útrásin hefst fyrir alvöru, m.a. vegna þess að kínversku fyrirtækin þurfi að byggja upp traust á vörum sínum. Tæki til að kaupa velvild Áherslan á lyfjaútflutning er til marks um stöðuga þróun kínverska hagkerfisins. Lyfjaframleiðsla krefst sérhæfingar og háþróaðs búnaðar og ætti að gefa mun meira af sér en einfaldari framleiðsla. Gangi áætlanir eftir gæti sala ódýrra lyfja gert kínverskum stjórnvöldum kleift að kaupa sér velvild í þróunarríkjum. Eru ríki sem kunna að telja sig hlunnfarin af viðskiptum við Evrópu og Banda- ríkin þar ekki undanskilin. KÍNA Reuters Nálin stingur Filippseysk stúlka grætur við bólusetningu í Maníla. Kínversk fyrirtæki ætla að flytja út ódýrt bóluefni Snemma á síðasta áratug bauðst finnskum almenningi að fjárfesta í WinCapita, fjárfestingarfyrirtæki sem lofaði gulli og grænum skógum í gegnum gjaldeyrisviðskipti. Sjóðnum var ýtt úr vör árið 2003 og hafði forsvarsmönnum hans tek- ist að lokka til sín yfir 10.000 fjár- festa þegar starfseminni lauk 2009. Blekktir með sýndararði Sjóðurinn tók í raun aldrei til starfa. Til að hylja þá staðreynd brugðu sjóðsmenn á það ráð að greiða þeim sem fyrstir voru í röð- inni arð af fjárfestingunni. Gjörningurinn var sjónarspil eitt því arður myndast ekki af engu. Fé sem nýta átti í veðmál með gjaldeyrisbraski var nýtt í annað. Bragðið hafði hins vegar tilætluð áhrif en aðeins í vissan tíma. Arðgreiðslurnar spurðust út og bitu þá fleiri á agnið, grunlausir um að arðurinn var í raun framlag þeirra sjóðsfélaga sem eftir komu. Málið er litið alvarlegum augum í Finnlandi og eru málalok þau að stofnandi WinCapita, Hannu Kaila- järvi, hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir fjársvik, að því er fram kom á vef finnska dagblaðsins Helsingin Sanomat. Fjallað var um málið á vef Hels- inki Times á sínum tíma og kom þá þar fram að sjóðurinn hefði safnað um 100 milljónum evra, eða sem svarar 16 milljörðum króna. Sjóðurinn hét upphaflega Win- Club og var skráður í Panama. Þeg- ar fréttir bárust af grunsemdum um píramídasvindl árið 2005 var nafninu breytt í WinCapita. Féð hélt engu að síður áfram að streyma til sjóðsins. Dæmdur Hannu Kailajärvi hefur verið dæmdur í 4 ára fangelsi. Píramídasvindl endar með dómi  Finni dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að blekkja almenning Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Angela Merkel FRÁBÆRT VERSLUNARHÚSNÆÐI EINSTÖK STAÐSETNING Til leigu er verslunarhúsnæði á 2 hæðum að Hallarmúla 2, samtals um 1.500 fm. Húsnæðið er tilbúið undir verslunar- rekstur. Næg bílastæði. Nánari upplýsingar gefur Örn V. Kjartansson, orn@m3.is, gsm 825 9000. TIL LEIGU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.