Morgunblaðið - 03.12.2011, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 03.12.2011, Blaðsíða 39
UMRÆÐAN 39Bréf til blaðsins MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2011 Sameinuðu þjóðirnar búa sig undir að krefja Ísraelsmenn um þau landflæmi af Palestínu sem gyð- ingarnir hafa stolið undanfarin 40 ár. En það hugnast gyðing- unum ekki, held- ur skal berjast. Nú hamast þeir við að finna ástæðu til að ráðast á Íran, þ.e. alltaf þarf einhverja ástæðu til því- líkra dægra- leikja sbr. bæði Írak og Afganist- an. Unnið er að því hörðum höndum að búa til sannanir þess efnis að Íran sé að þróa kjarna- vopn – sem væri klassísk ástæða til innrásar. Þá kemur stóra spurningin: Leiðast Bandaríkja- menn inn í leikinn og síðan NATO í kjölfarið og þar með öll helstu lönd Vestur-Evrópu sunnan og vestan Úralfjalla, við þar á meðal? Þar með værum við þá komin í stríð, í bandalagi með Ísrael, helsta óvini Palestínu. Þetta væri kaldhæðnislegt í ljósi þess að við höfum undanfarið verið að styðja við bakið á Palestínumönnum í þeirra sjálfstæðisbaráttu gegn Ísrael. Gegn okkur stæðu Íranar og án efa ýmsar arabaþjóðir, ásamt vinaþjóð okkar Rússum sem hafa tilkynnt Bandaríkja- mönnum að þeir muni ekki sætta sig við innrás í Íran. Ísrael er, eins og flestir sem nenna að fylgjast með málum í Miðaust- urlöndum, þyrnir í augum flestra múslimaríkja í Miðausturlöndum og Bandaríkin eru hötuð á þeim bænum, fyrst og fremst sökum einlægs stuðnings þeirra við Ísr- ael, allt frá stofnun ríkisins 1948. Ísrael er raunar á föstum fjár- lögum í Bandaríkjunum sem hlýt- ur að teljast sérkennilegt í ljósi gríðarlegs halla á fjárlögum í Bandaríkjunum, auk þess sem þeir gera sjálfa sig meðvitað að skotmarki fyrir íslamska hryðju- verkamenn með þessari einstöku gjafmildi. Heimskulegt myndi kannske einhver segja. Dæmi hver fyrir sig. Það kemur jafnframt úr hörð- ustu átt að Ísraelsmenn, eina kjarnorkuveldið í Miðaust- urlöndum, sé að hóta nágrönnum sínum árás ef þeir ætla sér slíkt hið sama. Stuðningur okkar, ef þessi at- burðarás verður að veruleika, mun gera Ísland að skotmarki þjóða sem ella hefðu litið á okkur sem vinveitta þjóð. Hvaða ástæðu höf- um við svosem til að vera í hern- aðarbandalagi? Erum við kannske að dæma afkomendur okkar til að verða sendir til Afríku eða Asíu til að pynta og drepa saklaust fólk, konur og börn í nafni NATO og svokallaðs frelsis sem er reyndar oftast yfirskin til að verja og tryggja sérhagsmuni stórfyr- irtækja í orku – eða vopnaiðnaði? NATO nútímans er ekki varn- arbandalag frjálsra þjóða, heldur hernaðarbandalag undir stjórn Bandaríkjanna sem nýta banda- lagið í eigin þágu til árása, ef þeim hentar, í krafti stærðar sinn- ar. Það lítur auðvitað óneitanlega betur út að um „alþjóðlegt herlið“ sé að ræða, en að Bandaríkin ein séu að skipta heiminum upp eftir eigin höfði og hagsmunum banda- rískra stórfyrirtækja sem toga í spottana í Hvíta húsinu með til- stuðlan fjölskyldutengsla eða lobbýhópa. Nei, ég held að við ættum að hafa vit á að segja skilið við félagsskapinn NATO hið fyrsta. Við þurfum aðeins vernd svo lengi sem við erum hluti af hernaðarbandalagi. KARL JÓNATANSSON, f.v. tónlistarkennari. Ísraels-gyðingar í vígahug – Ísland úr NATO Frá Karli Jónatanssyni Karl Jónatansson Ég hef í fjölda mörg ár átt við þunglyndi og kvíða að stríða. Í vor fór að falla undan fæti án þess að ég áttaði mig á því. Ég fór að mæta alltof snemma í vinn- una, sleppa neysluhléum, missa næt- ursvefn og þar fram eftir göt- unum. Allt end- aði þetta á inn- lögn á geðdeild í 5 vikur. Ég hef alltaf verið mikill einfari og hef ekki átt marga vini. Þegar ég kom út af geðdeildinni átti ég eina vinkonu sem ég gat talað við. Ég hélt áfram að stunda iðju- þjálfun hjá LSH fyrir hádegi en það var öll dagskráin. Ég leit á það sem vinnu sem ég var komin í. Vinnu til að koma mér til heilsu á ný. Ég stundaði Rauðakrosshúsið í Borgartúni 25 eftir hádegi til 4. nóvember en 6. nóvember byrjaði ég í díalektískri atferlismeðferð á Hvíta bandinu á Skólavörðustíg. Þá þurfti ég að endurskoða stundaskrána mína. Það breyttust allir tímar. Það voru ekki margir staðir sem komu til greina, en ég datt niður á hreinan gullmola. Hlutverkasetur í Borgartúni 1. Frá þeirri stundu er ég steig þar fyrst inn fyrir dyr var eins og að koma heim. Eftir að hafa fengið smákynningu á því sem um er að vera var bara sest niður og við fengum okkur kaffibolla saman. Fólk var að koma allan morguninn. Sumir fóru í skipulagða tíma, ein- hverjir fóru í tölvur, enn aðrir í eldhúsið og spjölluðu, drukku kaffi, lásu blöðin eða gerðu það sem þeir vildu. Starfsfólkið þarna er yndislegt, ef þig langar að gera eitthvað sem ekki er á dagskrá færðu hjálp við að koma því í framkvæmd, t.d. smákökubakstur sem er byrjaður fyrir þá sem það vilja. Ef þú hefur vandamál er það ekki vandamál. Það eru allir til- búnir að hjálpa öllum. Og þó að þú þekkir ekki alla með nafni frá fyrsta degi kemur þetta fljótt. Andrúmsloftið er létt og gott og mikið hlegið. Eitt spennandi er þarna og það er sjósund, ég hef ekki hugrekki til að prufa það. Svo þegar allir koma endurnærðir til baka bíður heitur matur gegn vægu gjaldi. Það sem ég er að- allega að leita eftir á þessum stöð- um, Hlutverkasetri og Rauða- krosshúsinu, er að losna úr félagslegri einangrun sem ég var komin í. Nú hitti ég helling af skemmtilegu fólki á hverjum degi og stundaskráin mín er troðfull. Á morgnana fer ég í Hlutverka- setur, þrjá daga í viku eftir hádegi á Hvíta bandið og flesta daga enda ég á að kíkja í kaffi hjá Rauðakross- húsinu áður en ég fer heim. Hlut- verkasetur var stofnað árið 2005 en flutti í núverandi húsnæði 2009 og þangað koma að jafnaði 150 ein- staklingar á viku. Þetta er gullmoli sem við eigum á besta stað í bæn- um. Ég hvet sem flesta til að kíkja í heimsókn og sjá hvort ekki sé hægt að finna sér eitthvað við hæfi. ÁRDÍS JÓNMUNDSDÓTTIR verslunarmaður. Gullmoli í Reykjavík Frá Árdísi Jónmundsdóttur Árdís Jónmundsdóttir Það kom vel í ljós þegar Ögmund- ur Jónasson neitaði Kínverjanum um heimild til að kaupa Gríms- staði á Fjöllum hversu öflugt and- íslenskt hugarfar ríkir á alþingi. Fulltrúar Framsóknar og Sam- fylkingar fordæmdu þau vinnu- brögð Ögmundar að hafna kaup- unum. Framsókn og Samfylking sjá peningafúlgur í hillingum og at- vinnutækifæri í hundruðum starfa. Þeim virðist alveg sama hver á landið. Hefði Kínverjinn fengið að kaupa Gríms- staði gat hann byggt þar nánast hvað sem honum sýndist, þyrfti ekki endilega að vera ferðaþjón- usta. Starfsfólk þyrfti ekki heldur að vera íslenskt. Sá kínverski væri ekki lengi að átta síg á því að á Íslandi væru ekki atvinnutækifæri sérstaklega ætluð íslendingum, því þó hundruð Íslendinga séu at- vinnulaus eru útlendingar fluttir inn í hundraðatali og látnir vinna á gömlu vinnuhjúasamningunum og störfunum gefið nafnið sjálf- boðaliðar. Svo kvarta atvinnurek- endur, sem flytja þetta fólk inn, undan því hversu margir Íslend- ingar séu á atvinnuleysisbótum. Það er ekki bara landið sem menn vilja selja heldur er nánast búið að flytja allan arð af fisk- vinnslu til Bretlands og Þýska- lands. Atvinnutækifærin eru að stórum hluta fólgin í því að veiða fisk fyrir fiskmarkaði þessara þjóða og tekjurnar fara að mestu í að borga lán í erlendum bönkum vegna skipakaupa og viðgerða og olíukaupa erlendis. Hundruð starfa hafa verið lögð niður á Ís- landi til að efla fiskmarkaði í Bretlandi. Í Evrópusambands- samningunum þurfum við ekki að semja um neitt annað en að fá áfram einkarétt á því að veiða fisk á Íslandsmiðum fyrir Breta. Flestar laxveiðiár landsins er búið að leggja undir yfirráð er- lendra auðmanna svo íslenskur al- menningur á þess engan kost að geta notið návistar við þessar náttúruperlur vegna verðlags sem er utan við alla heilbrigða skyn- semi. Það er því lítið orðið eftir af því frjálsa Íslandi sem þjóðin von- aðist eftir að öðlast með stofnun lýðveldis 1944. Þetta er afleiðing þess hugarfars sem kom svo skýrt í ljós á alþingi þegar Kínverjanum var neitað að kaupa Grímsstaði. Þeir erlendu aðilar sem vilja fjár- festa hér og stofna fyrirtæki eiga aðeins að fá leigt land undir starfssemi sína og það er engin frágangssök að fjárfesta á þeim grundvelli. En fyrst og fremst eig- um við að nýta atvinnutækifærin af okkar aðalauðlindum en ekki færa erlendum þjóðum þau nánast ókeypis. GUÐVARÐUR JÓNSSON, Valshólum 2, Reykjavík. Á að selja Ísland í bútum Frá Guðvarði Jónssyni Guðvarður Jónsson Alþjóðlegur dagur fatlaðs fólks er hald- inn hátíðlegur 3. des- ember ár hvert. Landssamtökin Þroskahjálp hafa allt frá árinu 1993 haldið upp á þennan dag með því að vekja at- hygli á því sem vel er gert. Á því verður engin undantekning í ár. Sameinuðu þjóðirnar leggja í ár sérstaka áherslu á mikilvægi þess að líta til fatlaðs fólks í viðleitni þjóðanna til að ná metnaðarfullum þúsaldarmarkmiðum samtakanna um að draga marktækt úr fátækt í heiminum fyrir árið 2015. Í því ljósi er gaman að geta þess að í fyrsta sinn sem samtökin héldu daginn hátíðlegan árið 1993 kom fram í ræðu þáverandi formanns, Ástu B. Þorsteinsdóttur, sérstök ánægja samtakanna með þá ákvörð- un félagsmálaráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, og ríkisstjórnar Ís- lands að veita Eystrasaltslöndunum og Rúmeníu þróunaraðstoð vegna fatlaðs fólks. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra mun í dag afhenda Múrbrjóta Þroskahjálpar sem eru viðurkenning til þeirra sem með einum eða öðrum hætti hafa stuðlað að framþróun og því að brjóta niður múra sem oft umlykja líf fatlaðs fólk. Þau verkefni sem fá múrbrjót samtakanna í dag hafa öll hlotið verðskuldaða athygli. Landssamtökin Þroskahjálp hvetja alla til að taka þátt í atburð- um dagsins og með því undirstrika að málefni fatlaðs fólks og fjöl- skyldna þeirra eru ekki einkamál- efni þeirra heldur samfélagsins alls. Enn er múrbrjóta þörf Eftir Gerði Aagot Árnadóttur og Friðrik Sigurðsson Gerður Aagot Árnadóttir »Mennta- og menn- ingarmálaráðherra mun í dag afhenda Múr- brjóta Þroskahjálpar ... Gerður er formaður Landssamtak- anna Þroskahjálpar og Friðrik er framkvæmdastjóri. Friðrik Sigurðsson - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Heimsferðir bjóða frábært tilboð á allra síðustu sætunum til Tenerife 3 og 17. janúar. Í boði er sértilboð á Villa Adeje Beach íbúðahótelinu með öllu inniföldu. Athugið að mjög takmörkuð gisting er í boði! Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Tenerife Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is 3. og 17. janúar í 14 nætur Frá kr. 124.900 með „öllu inniföldu“ Frá kr. 124.900 sértilboð 3. janúar Villa Adeje Beach *** með „öllu inniföldu“. Netverð á mann m.v. tvo fullorðna og tvö börn, 2 - 11 ára, í íbúð á Villa Adeje Beach með allt innifalið. Netverð á mann m.v. tvo fullorðna 166.900 í íbúð með allt innifalið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.